Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Síða 15
Umræða 15 Ég er ekki sú karlremba sem ég er sagður vera Ég spangóla sjaldnast á fullu tungli Berum ábyrgð á okkar eigin lífi Einar Guðmundsson kortlagði tunglið og gerir dagatal. – DVJóhanna S. Hannesdóttir skrifaði bókina 100 heilsuráð til langlífis. – DV Vikublað 16.–18. desember 2014 Mest lesið á DV.is 1 Hóf einsöng í kassaröð-inni í Krónunni Viðskipta- vinir vissu vart hvaðan á þá stóð veðrið þegar kona ein hóf fallegan einsöng í kassaröðinni í verslun Krónunnar í Lindum síðastliðinn sunnudag. Lagið könnuðust líklega allir þeirra við; Nóttin var sú ágæt ein. Lesið: 49.153 2 „Ég næ ekki einu sinni að ná þessari obboðslega fínu launatölu sem þú nefnir á Alþingi“ Halldór R. Bergvinsson, almennur læknir á Landspítalanum, skrifaði Bjarna Benediktssyni, efna- hags- og fjármálaráðherra, opið bréf og sagði launaútreikninga Bjarna ekki samræmast launaseðlinum sínum. Lesið: 41.305 3 „Ég var á mjög slæmri leið“ Pétur Örn Guðmundsson tónlistarmaður tók bestu ákvörðun lífs síns og hætti að drekka. „Ég veit hreinlega ekki hvar ég væri í dag ef ég hefði haldið þessu áfram. Ég var á mjög slæmri leið og á verri stað andlega en ég hafði nokkurn tímann verið,“ segir hann í helgarblaði DV. Lesið: 31.825 4 Lemstraður lögmaður Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson þurfti að leita á slysadeild eftir að hafa dottið illa á reiðhjóli sem hann var að prófa. Lesið: 25.813 5 Tony á götunni og betlar sér til matar „Ég veit ekki hvað ég hef gert til þess að eiga þessa framkomu stjórnvalda skilið,“ segir Tony Omos. Hann heldur til á lestarstöð í Mílanó á Ítalíu. Tony hefur verið ólögleg- ur innflytjandi á Ítalíu í rúmt ár og hefur því átt erfitt með að framleyta sér. „Nú þarf ég að finna leiðir til þess að lifa af. Ég betla fyrir mat.“ Lesið: 23.506 Guðni Ágústsson segir bók sína um Hallgerði vera bleika til staðfestingar um femínisma hans. – Akureyri Vikublað T jáningarfrelsið er þungamiðj- an i siðuðu samfélagi. Hug- takið höfðar jafnt til vitsmuna sem tilfinninga og hverfist um og skilgreinir sjálfa mennsk- una. Innan tíðar mun dómur falla í Hæstarétti sem varðar möguleika fólks til að tjá sig og þanþol tjáningar- innar, innan sem utan listaheimsins. Málið er sérstætt að því leyti að dóms- orðið mun verða vatn á myllu sköp- unarkraftsins sama hver niðurstað- an verður – „win win“ eins og það er orðað á vondri íslensku. Þessu má lýsa svona í stuttu máli: Ef stefndi vinnur málið verður gefið grænt ljós á að tjá sig með dónaskap og ærumeiðingum um starfsheiður fólks ef menn vilja það viðhafa. Verði hins vegar niður- staða stefnanda í vil fæst viðurkenn- ing á því fyrir dómstólum að heimilt sé að vinna að hvers kyns sköpun með klassískum aðferðum listarinnar. Háskalegur fótaskortur Upptök þessa furðulega máls má rekja til greinaskrifa í Morgunblaðinu á vor- mánuðum 2013 sem fjölluðu um fram- tíð Listaháskóla Íslands. Einn ást- sælasti myndhöggvari þjóðarinnar, Kristinn E. Hrafnsson, fann sig knúinn til að veitast að starfsheiðri nýráðins rektors, Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur, í blaðagrein með fyrirsögninni Og/eða. Ásmundur Ásmundsson, virkur lista- maður af yngri kynslóð, gekk fram fyrir skjöldu henni til varnar með greininni Góður drengur/rétt manneskja. Krist- inn sneri þá viðbrögðum sínum alfar- ið að Ásmundi í greininni Þverfræði og vandar kollega sínum ekki kveðjurn- ar og uppnefnir hann „þvergirðing,“ „kverúlant,“ „gamaldags“ og „ráðs- mann.“ Þetta eru út af fyrir sig mein- laus og brosleg ummæli en Kristni vex svo ásmegin og „orðhefndin“ fer al- gerlega úr böndunum, svo vitnað sé í lögfræðina, þegar hann fullyrðir að Ásmundur sé „kunnastur fyrir að eyði- leggja listaverk annarra listamanna.“ Myndhöggvaranum verður svo enn fótskortur á tungunni í vitnaleiðslum í héraðsdómi þar sem hann áréttar, án minnstu vísbendinga um iðrun, að listaverk Ásmundar séu ekkert annað en glæpaverk og listsköpun hans sé í rauninni refsivert athæfi. Ofstopafull orðhefnd af þessu tagi er ígildi þess að í blaðagrein um kjaramál heilbrigðisstétta væri órök- studd fullyrðing þess efnis að tiltekinn læknir væri þekktastur fyrir lækna- mistök og að hafa valdið sjúklingum heilsutjóni og jafnvel dauða. Eða í um- ræðum um menntamál væri haldið fram að kennari væri kunnastur fyrir að brjóta niður sjálfstraust barna með andlegu ofbeldi og einelti og legði sig fram um að grafa undan framtíðar- möguleikum þeirra. Órökstuddar að- dróttanir af þessu tagi sem kalla mætti háskaleik með orð, geta leitt til mann- orðsmorðs sem er ógerningur að bæta fyrir, þrátt fyrir sterk og réttmæt viðbrögð viðkomandi einstaklinga og jafnvel starfsgreinasambanda. Að fengnu áliti hæfustu manna var því talið nauðsynlegt, með tjáningar- frelsið að leiðarljósi, að fara fram á fyr- ir dómstólum að ofangreind ummæli Kristins um meint refsivert athæfi Ás- mundar væru dæmd dauð og ómerk og krafist viðeigandi miskabóta og refsingar. Kristinn, þ.e. stefndi, var sýknaður í héraðsdómi en málinu áfrýjað til hæstaréttar þaðan sem dóms er að vænta á næstu dögum. Kosmísk palletta Listaverk sem skipta máli koma fram með löngu millibili. Slagkraftur slíkra verka byggir á hárfínu efnisvali ásamt ísmeygilegri samsetningu á lif- andi táknmáli og óræðum vísunum. Slík verk eru í rauninni merkingar- þrungin táknfræðileg púðurtunna og orkuuppspretta framtíðarinnar. Þau hræra jafnt upp í undirmeðvitund- inni sem og í ríkjandi hugmynda- fræði, setja spurningarmerki við gefn- ar leikreglur og eignarhald, varpa ljósi í skúmaskotin, gefa hagsmunagæslu og hræðslubandalögum langt nef, en finna um leið smugur, marka ótroðn- ar slóðir og kveikja neistann í kulnaðri leikgleði. Margt hefur gerst í listum síðustu hundrað árin og vettvangur sköp- unarinnar verið víkkaður og dýpkað- ur. Óvæntu ljósi hefur verið varpað á mannlega tilveru með beitingu nýrra aðferða og það er nútíma klassík í myndlist að blása lífi í hlutlaust og líf- vana hráefni, fundna hluti eða fjölda- framleitt góss og umbreyta því í lista- verk. Þannig hafa myndlistarmenn fyrir löngu sprengt af sér fjötra lita- kassans, blindrammans og vinnu- stofunnar. Þeir hafa þess í stað gert nærumhvefið, eigin líkama og al- heiminn að mögulegri pallettu í verk- um sínum. Þessir landkönnuðir and- ans eru óþreytandi í leit sinni að blæbrigðum og hughrifum og bera jöfnum höndum niður í steina-, dýra- eða jurtaríkinu, veröld gerviefnanna, sýndarveruleika og astral-planinu. Kærleiksríkir samúræjar Undirrituð vonast til að listamenn kynni sér vel dómsorð Hæstaréttar og nýti sér það sem áskorun til að hrista af sér sinnuleysið og drungann. Nái aftur vopnum sínum og sæki fram til nýrra landvinninga í sköpunarstarfi hvort heldur til að fínstilla tjáningar- frelsið með klassískum aðferðum eða til að útvíkka það á háskalegan en um leið spennandi hátt. Allir ærlegir lista- menn eru og verða hinir einu sönnu samúræjar tjáningarfrelsins og þeim er öðrum mönnum fremur treystandi til að beita vopnum tungumálsins, á réttum tíma og á réttum stöðum, af dómgreind, snerpu og kærleika. n Ásmundur Ásmundsson, Hannes Lárusson, Tinna Grétarsdóttir Fallegasta orð í heimi Myndin Vetur um allt land Síðustu daga hafa veður verið válynd um allt land með stuttum hléum. Reyndar er útlit fyrir áframhaldandi vetrarveður næstu daga, samkvæmt spánum. Mynd SiGtryGGur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.