Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Síða 18
18 Neytendur Vikublað 16.–18. desember 2014 L ítil dós af Jólajógúrt frá MS sem markaðssett er fyrir börn inniheldur viðbættan sykur sem nemur tíu sykur- molum. Aðrar jólamjólkur- vörur MS eru einnig drekkhlaðnar sykri en fyrirtækjum á borð við MS ber engin skylda til að upplýsa um sykurinnihald á umbúðunum. For- eldrar og forráðamenn eru því jafn- an fullkomlega ómeðvitaðir um að þeir séu í raun að gefa börnunum dulbúið sælgæti, en ekki heilnæma mjólkurvöru í millimál. Dísætur eftirréttur Blaðamaður var staddur í mjólkur- kælinum í Bónus Holtagörðum á dögunum þar sem blasti við hon- um mannhæðarhár frístandandi rekki með sérstökum jólavörum frá MS. Staðsetningin var líklega engin tilviljun, beint á móti mjólkurrekk- anum þar sem flestir viðskiptavin- ir stoppa. Á meðan fullorðna fólk- ið raðar mjólk í innkaupakerruna leita augu barnanna í litríkar jóla- umbúðirnar sér á vinstri hönd. Þar sem blaðamaður stóð og virti inni- hald MS Jólajógúrtar fyrir sér heyrði hann börn suða í foreldrum sínu hvert af öðru. Það hljóp á snærið hjá einum ungum dreng sem fór heim með dós af Jólajógúrt í farteskinu og vilyrði um að innihaldsins mætti hann neyta eftir kvöldmat. Móðir hans virðist því hafa verið meðvit- uð um að innihaldið væri meira í ætt við dísætan eftirrétt en nokkuð annað. Þetta vakti áhuga blaðamanns á að endurtaka það sem DV gerði í sumar með nokkra áberandi og vinsæla barnadrykki og rýna í falda sykurinn í þessum jólavörum mjólkurrisans. Í Bónus má finna þrjár tegundir úr sérstakri jólavöru- línu Mjólkursamsölunnar (MS). Hátíðarjógúrt með súkkulaði og kókos, títtnefnda Jólajógúrt með jarðarberjum og meðlæti og loks Jóla-engjaþykkni með hrískúlum. En það er smá kúnst að finna syk- urinnihald í mjólkurvörum því taka þarf tillit til náttúrulega mjólkur- sykursins sem finna má í öllum mjólkurafurðum. Svona finnur þú sykurinnihaldið DV fékk þær upplýsingar frá MS fyr- ir nokkrum árum að þumalputta- reglan væri sú að draga 4 grömm (eða fjögur prósent) af 100 grömm- um af uppgefnu magni af kolvetn- um í því magni vörunnar. Ef upp- gefin kolvetni í 100 grömmum af mjólkurvöru eru t.d. 27,3 grömm þá má finna út að sykurinnihaldið, sé 23,3 grömm sem jafngildir tæp- lega 12 sykurmolum, sem hver er 2 grömm á þyngd. Með þessa þumalputtareglu var því einfalt að finna hvert magn viðbætts sykurs væri í hverri dós af þessum þremur jólavörum MS. Litlu minna en í Coke Í 180 gramma dós af Hátíðarjógúrt nreyndust vera 15,84 grömm af viðbættum sykri eða sem nemur 8 sykurmolum. Í jógúrtinni eru kókos- og súkkulaðiagnir en það síðarnefnda hefur vafalaust áhrif á sykurinnihaldið. Í 150 gramma dós af Jóla-engja- þykkni eru 18,75 grömm af viðbætt- um sykri eða sem nemur 9 sykur- molum. Eins og flestir vita þá er engjaþykkni þannig að jógúrtin er í sér hólfi en hér eru súkkulaðikorn- kúlur í aðskildu hólfi. Þessar korn- kúlur eiga sinn þátt í að hífa upp sykurmagnið. Og í 165 gramma dós af títt- nefndri Jólajógúrt var að finna hvorki meira né minna en 29,79 grömm af viðbættum sykri eða sem nemur ríflega 10 sykurmolum. Á þessari dós er hólf í lokinu fyrir svo- kallað meðlæti. Um er að ræða litlar súkkulaðihúðaðar hrískúlur og lit- ríkar sykurflögur sem ætlaðar eru til íblöndunar. Án nokkurs vafa á þetta dísæta meðlæti sinn þátt í að hækka sykurmagnið. Sykurbombur í jólabúningi n Þurfa ekki að segja þér frá viðbætta sykrinum n Það mun þó brátt breytast þegar ný Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is 8 sykurmolar Hátíðarjógúrt – með súkkulaði og kókos n Þyngd: 180 gr n Verð: 148 kr n Samtals viðbættur sykur: 15,84 gr Vikublað 13.–15. maí 2014 Vikublað 13.–15. maí 2014 Neytendur 25 24 Neytendur SakleySiSlegar Sykurgildrur Þ etta er vara sem höfðar til barna. Það er engin tilvilj- un hvernig verslanir stilla upp vörum sínum. Þetta er að sjálfsögðu útpælt,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. DV leitaði álits hjá honum á staðsetningu Hello Kitty-gosdrykks í verslun Hagkaupa í Skeifunni. Þar er hann í augnhæð fyrir lítil börn, neðarlega í hillu umkringd- ur öðrum dísætum ávaxtadrykkjum. Umbúðirnar eru skærbleikar með stórri mynd af hinni ástsælu teikni- myndapersónu framan á og eru aug- ljóslega markaðssettar fyrir börn. Drykkurinn er þó ekki jafn sak- laus og teiknimyndapersónan Hello Kitty því ein lítil dós inniheldur meiri viðbættan sykur en í sama magni af Coca-Cola. Óhófleg sykurneysla er ein stærsta heilbrigðisváin sem steðj- ar að Íslendingum í dag. Kitty skákar Coke Reglulega kemur upp umræða um sykurleðjudrykki og aðra óholl- ustu sem markaðssett er fyrir börn en blaðamaður veitti umræddum drykk og staðsetningu hans athygli í verslun Hagkaupa í síðustu viku. Framkvæmdastjóri Hagkaupa segir tilviljun eina hafa ráðið því hvar drykkurinn endaði í hillunni. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá inniheldur lítil, sakleysisleg 250 millilítra dós af Hello Kitty-gos- drykknum heil 30 grömm af sykri, eða sem nemur 15 sykurmolum. Til sam- anburðar þá eru „aðeins“ 27 grömm af sykri í sama magni af Coca-Cola, sem flestir eru meðvitaðir um að er lítið annað en sykurvatn. Foreldrar ættu því ekki að láta fagurbleikar um- búðirnar og góðlátlegt andlit teikni- myndakisunnar blekkja sig. Ætti að vara við drykknum Jóhannes segist þeirrar skoðunar að það ætti að vara sérstaklega við vör- unni vegna mikils sykurmagns og gagnrýnir hillustaðsetninguna. „Það fyrsta sem hvarflar að manni er að þarna er verið að setja vöruna í augnhæð fyrir börn og mér finnst það ekki sæmandi sómakærri verslun.“ Í verslun Hagkaupa á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi var einnig hægt að fá Hello Kitty-drykkinn en rétt er að taka það fram að þar voru dósirnar stað- settar ofar í rekkanum og ekki í beinni augnhæð fyrir börn. Óformleg og ekki tæmandi athug- un DV í öðrum verslunum leiddi í ljós að Hello Kitty-gosdrykkurinn er ekki seldur í verslunum Bónuss, Krónunn- ar eða Nettó úti á Granda en hann er fáanlegur í Melabúðinni í Vesturbæn- um þar sem honum er stillt upp í kæli við afgreiðslukassa og útgang. Þó aðrar verslanir selji ekki um- ræddan Hello Kitty-drykk, sem vissu- lega er sláandi birtingarmynd mark- aðssetningar óhollustu gagnvart börnum, þá eru þær síður en svo saklausar af því að selja sambæri- lega óhollustu. Aðrir vinsælir ávaxta- drykkir, drekkhlaðnir sykri, eru þar í boði sem og víðar. Vinsæl sykurskot Einn vinsælasti ávaxtadrykkurinn hjá börnum í dag er Fruit Shoot sem einnig er fáanlegur í flestum matvöru- verslunum. Drykkurinn er seldur í kippum sem inniheldur fjórar flöskur sem virðast sakleysislegar og jafnvel innihalda eitthvað heilnæmt. Þegar nánar er að gáð kemur í ljós að í hverri 200 millilítra flösku kippunnar leynast 22 grömm af sykri. Í hverri kippu eru því samtals 88 grömm af sykri. Þessi drykkur er markaðssettur fyrir börn og meðal annars auglýstur í sjónvarpi, útvarpi og í sérstökum rekkum í matvöruverslunum und- ir yfirskriftinni „Fyrir fjöruga krakka.“ Vafalaust verða þeir fjörugir í ein- hvern ákveðinn tíma eftir 22 gramma sykurskot. Meira að segja hinn sívinsæli Svali, sem einnig er markaðssettur sérstaklega fyrir börn, inniheldur mikið magn viðbætts sykurs. Nota börnin Jóhannes bendir á í þessu samhengi að það sé heldur engin tilviljun að verslanir hafi sælgæti við kassana. Uppröðun í verslunum séu útpæld vísindi til að fá viðskiptavini til að kaupa sem mest og hafa áhrif á okkur í gegnum börnin. „Eitt sinn sagði bandarískur sölu- sérfræðingur: Besta leiðin að buddu foreldranna liggur í gegnum börn- in. Ég held að það sé mjög margt til í þessu, því miður. Börnin suða í búðunum, þessi vara höfðar til þeirra, þau fara kannski að gráta og þá er oft þægilegasta lausnin að kaupa sér frið. Þarna eru verslanir að koma foreldrum í mjög erfiða stöðu.“ n Drykkjum sem drekkhlaðnir eru sykri otað að börnum n Heilnæmar teiknimyndafígúrur notaðar til að villa um fyrir þér n Hello Kitty skákar Coke Markaðssetning sem beinist að börnum varðandi óholl matvæli á aldrei rétt á sér,“ segir Ólöf Helga Jónsdóttir, doktor í næringarfræði. Hún segir mjög ung börn þekkja vel vöru- merki sem beint er að þeim og eru oft tengd teiknimyndum sem þau sæki í. Því miður nýti markaðurinn sér það oft og tíðum. „Foreldrar eru líka oft að gefa börnum sínum einhver matvæli sem þeir telja vera holl en eru svo stútfull af sykri, þar sem sykur leyn- ist í gríðarlega mörgum matvælum.“ Fjórðungur frá sætindum Ólöf bendir á að samkvæmt landskönnun á mataræði sex ára barna sem Rannsóknastofa í nær- ingarfræði framkvæmdi á árunum 2011–2012 kom fram að nær fjórð- ungur af heildarorku barnanna kom úr fæðu sem er tiltölulega nær- ingarsnauð. Matvæli á borð við kex, kökur, gos- og svaladrykki, sæl- gæti og ís. Einnig kom fram í rann- sókn þessari að meðalneysla á gos- og svaladrykkjum var rúmlega 800 millilítrar á viku og þau 10 prósent barna sem mest neyttu af gos- og svaladrykkjum drukku um tvo lítra á viku. Eins var neysla á kexi og kök- um næstum þrisvar sinnum meiri en neysla á trefjaríku brauði. Neysla þessara barna á áðurnefndum sætindum var sambærileg í grömm- um talið og meðal fullorðinna einstaklinga á aldrinum 18–80 ára. Þó er orkuþörf sex ára barna einung- is um 60% af orkuþörf fullorðinna. Sykurneysla og sjúkdómar „Það þarf að taka það alvarlega hve stór hluti mataræðis ungra barna kemur úr sykurríkum og tiltölu- lega næringarsnauðum vörum. Mikilvægt er að grípa strax inn í og minnka sykurneyslu barn og draga þannig úr líkum á offitu og lífs- stílstengdum sjúkdómum seinna á lífsleiðinni,“ segir Ólöf. Börn þurfa orku og næringarefni fyrir vöxt og þroska en ef vörur sem innihalda mikinn sykur verða of stór hluti fæðu þeirra þá er alltaf hætta á að það taki pláss frá næringarríkum og hollum mat. „Ef sykur verður of stór hluti fæðunnar er alltaf hætta á óhóflegri þyngdaraukningu sem oft viðhelst til fullorðinsára, og einnig verri tann- heilsu.“ Blaðamaður hefur einnig kynnt sér rannsóknir þar sem sykur er tengdur, auk sykursýki II, hækk- uðu kólesteróli sem getur leitt til hjartasjúkdóma, sykur er talinn auka líkur á hjartaáfalli, þvagsýru- gigt, hækkuðum blóðþrýstingi, auk- inni fitumyndun í lifrinni sem leiðir til fitulifrar auk þess sem hann hef- ur verið tengdur við krabbamein af vísindamönnum. Það er því ljóst að mikilvægt er að grípa strax í taumana. Þörf á aðgerðum Ólöf bendir á að fæðuvenjur mótist að miklu leyti í barnæsku og mikil- vægt sé að börn læri snemma að borða hollan og fjölbreyttan mat og minna af sykurríkum vörum til að hægt sé að sporna gegn hraðri þró- un ofþyngdar, offitu og annarra lífs- stílstengdra sjúkdóma. Það er mikil þörf á markvissum íhlutunum með- al barna í landinu sem miða að því að bæta mataræði barna og ung- linga. Rannsóknir hafa sýnt að íhlutun í formi fræðslu og verkefna í samstarfi við heimili og skóla er áhrifarík leið til þess að auka ávaxta- og grænmetisneyslu barna, eða koma í veg fyrir minnkandi neyslu með hækkandi aldri. Svipaðra að- gerða væri þörf til að draga úr sykur- neyslu barna á Íslandi. *Upplýsingarnar sem Ólöf Helga vísar til eru fengnar úr rannsókninni „Landskönnun á mataræði sex ára barna 2011–2012“. Höfundar: Ingi- björg Gunnarsdóttir, Hafdís Helgadótt- ir, Birna Þórisdóttir, Inga Þórsdóttir. Birt í Læknablaðinu í janúar 2013. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Sakleysislegar sykurgildrur 10 sykurmolar Svali hefur um áratugaskeið verið vinsæll hjá íslenskum börnum. Hann inniheldur viðbættan sykur sem samsvarar rétt tæp- lega tíu sykurmolum en inniheldur einnig ávaxtasafa úr þykkni sem inniheldur sykur. Enginn við- bættur sykur Hér til hliðar má sjá dæmi um þrjá drykki sem innihalda engan viðbættan sykur. Aðeins sykur sem er að finna í þeim ávöxtum sem þeir eru unnir úr. Latabæj- ar-Brazzi inniheldur 23 grömm af náttúrulegum ávaxtasykri. Trópí appelsínusafi inniheldur inniheldur 28 grömm af náttúru- legum ávaxtasykri. Flórídana heilsusafi inniheldur 17,4 grömm af náttúrulegum ávaxtasykri. 11 sykurmolar Fruit Shoot er markaðssett undir yfirskriftinni „Fyrir fjöruga krakka“ og nýtur mik- illa vinsælda hjá börnum. 15 sykurmolar Í þessari 250 millilítra dós af Hello Kitty-gosdrykknum er sykurmagn sem samsvarar um það bil fimmtán sykur- molum. Meira en í sama magni af Coca-Cola. Flagð undir fögru skinni Hér má sjá dæmi um þrjá drykki sem höfða til, og eru vinsælir meðal barna, en eru fullir af viðbættum sykri. Hér táknar einn sykurmoli um 2 grömm af sykri. Tilviljun segir Hagkaup Gunnar Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaupa, segir hins vegar að það sé tilviljun ein að um- ræddur drykkur hafi verið í kjörhæð fyrir lítil börn í hillum verslunarinnar. Hann hafi bara verið settur þar sem er pláss. „Það er engin svona djúp hugsun að baki hér á Íslandi. Við höfum ekki efni á svo fínni markaðsdeild,“ segir hann um staðsetninguna og ítrekar að það sé ekki meðvituð ákvörðun tek- in af versluninni Hagkaupum. Hann viðurkennir þó að drykkir sem þessir séu auðvitað bara eins og sælgæti. En Hagkaup er ekki að fara að taka drykkina úr sölu og á meðan varan selst standi hún til boða. „Við náttúrlega gerum út á vöru- úrval og bjóðum upp á allt sem er í boði á markaðnum og svo ef það selst ekki þá dettur það út aftur,“ segir Gunnar Ingi. Það væri ríkisvaldsins, ekki verslana að ákveða að banna ein- hverja vöru. „Við spilum eftir reglun- um. Hitt væri komið út fyrir ystu mörk ef við ættum að vera með einhverja forsjárhyggju í versluninni.“ Þannig að Hello Kitty verður áfram í hillunum? „Við erum ekkert að taka hana úr sölu ef hún er ekki ólögleg. Hún er ekki ólöglegri en Snickers-ið í hill- unni.“ Lærðu að lesa á umbúðir Það er mikilvægt fyrir þá sem vilja vera upplýstir neytendur að kunna að lesa á umbúðir og rýna í innihalds- lýsingar. Það dugar nefnilega ekki að lesa bara í sykurtölurnar á umbúðun- um því sykur er ekki það sama og við- bættur sykur. Hundrað prósent hreinn ávaxta- safi, sem til dæmis er unninn úr þykkni, inniheldur til að mynda syk- ur en það er ekki viðbættur sykur. Það er sykur sem er frá náttúrunnar hendi í ávextinum sem safinn er unninn úr. Viðbættur sykur er í flestum tilfell- um óvinurinn. Hann má greina með því að lesa innihaldslýsinguna. Þar getur til dæmis verið gefið upp: Vatn, sykur, ávaxtasafi úr þykkni. Þarna er sykurinn viðbættur og sérstaklega til- greindur sem slíkur. Einnig gildir um þessa röð innihaldsefna sú þumal- puttaregla að það sem er nefnt fyrst er það sem mest er af og svo koll af kolli. Ef þú þekkir þennan mun, og bæt- ir umbúðalæsi þitt, þá getur þú betur sneitt fram hjá viðbættum sykri, þér og fjölskyldu þinni til heilsubótar. n Börn þurfa ekki allan þennan sykur n Getur aukið líkur á ýmsum sjúkdómum n Aðgerða er þörf til að draga úr sykurneyslu íslenskra barna Aldrei réttlætanlegt Ólöf Helga starfar sem næringarfræðingur við Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Hún segir markaðssetningu óhollustu sem beinist að börnum aldrei réttlætanlega. „Besta leiðin að buddu foreldranna liggur í gegnum börnin Ætti að vara við drykknum Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það ekki sómakærri verslun sæmandi að halda sykurhlöðnum drykkjum á borð við Hello Kitty-gosið svo skammlaust að börnum. Í kjörhæð fyrir börn Hinn sykurhlaðni Hello Kitty-gosdrykkur er í augnhæð fyrir lítil börn í Hagkaup í Skeifunni. Börnin laðast að hinum skærbleika lit og hinni heimsþekktu teiknimyndapersónu. Innihaldið er allt ann- að en saklaust. MyNd SiGurður MiKAeL JóNSSoN 13. maí 2014 Fjallað var ítarlega um falinn sykur í drykkjum í DV í vor. „Ef viðbættur syk- ur er í vörum á það skilyrðislaust að koma fram á umbúðum um hve mikið magn sé að ræða. Þ ó að tölvuleikir fyrir leikja- tölvur á borð við Playstation 4 og Xbox One séu orðnir hálf- gerð lúxusvara þegar horft er til þess að þeir kosta flestir í kring- um tólf til þrettán þúsund krónur þá eru þeir engu að síður vinsæl jóla- gjöf. Ofbeldisfullir tölvuleikir toppa vanalega flesta vinsældalista og af þeim sökum freistast margir foreldr- ar og forráðamenn til að stinga þeim í pakkann hjá börnum og ungmenn- um þrátt fyrir aldurstakmarkanir sem á þeim eiga að hvíla. Vefsíðan Consumer Reports hefur því tekið saman leiðarvís- ir fyrir eldri kynslóðina yfir þá leiki sem ESRB (Entertainment Software Rating Board) telur að ekki séu ætl- aðir börnum yngri en 17 ára og ættu því ekki að rata í jólapakka þeirra sem yngri eru. Í mörgum tilfellum eru þessir leikir bannaðir innan 18 ára hér á landi. 1 Grand Theft Auto V. Einn vinsælasti en jafnframt ofbeld- isfyllsti og umdeildasti tölvuleikur sögunnar. Hér hafa leikmenn fullkomið frelsi til að gera það sem þeim sýnist hvort heldur sem það er að fremja morð eða aðra glæpi á borð við það að stela bílum með því að draga ökumenn út úr þeim. Berja gangandi vegfarendur til bana og hirða af þeim peninga eða stunda hvers kyns ólöglega glæpastarfsemi. 2 Watch_Dogs. Þessum leik svipar til GTA að því leytinu til að hér hefur spilarinn frelsi til að gera það sem honum sýnist í hlutverki Aidens Pearce, fyrrverandi glæpamanns og hakkara sem tekur réttlætið í eigin hendur og leitar hefnda vegna atburða úr fortíðinni. Leikurinn fer inn í mörg skuggasund tilverunnar sem ekki eru ætluð börnum. 3 The Evil Within. Verulega óhuganlegur og hrollvekjandi leikur sem er svo blóðugur og of- beldisfullur að hann býður þér upp á að setja síu á til að takmarka allan hryllinginn. Eitt atriði er sérstaklega nefnt þar sem aðalsögupersónan er afhöfðuð mjög myndrænt með keðjusög ef henni mistekst að sleppa úr prísund sinni. 4 Assassin's Creed. Þess-ir leikir eru fyrst og fremst bannaðir börnum vegna þess að þeir snúast um leigumorðingja og leikmenn þurfa að drepa fólk með frumstæðum vopnum. 5 Sunset Overdrive. Kann að virðast saklaus á yfirborðinu enda í teiknimyndastíl en ekki láta barnalegt yfirbragðið blekkja þig. Hér þarf spilarinn að drepa bæði stökkbreytt kvikindi og fólk svo blóðið flæðir. Hægt er að sía út mesta hryllinginn en þessi er ekki fyrir börn. n mikael@dv.is Þessir eru of ofbeldisfullir fyrir börn Fimm tölvuleikir sem ekki ættu að vera í jólapakkanum hjá krökkum Evil Within Aðalsögupersónan er afhöfðuð með keðjusög ef illa fer. Leikurinn er ekki við hæfi einstaklinga undir 18 ára aldri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.