Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Side 23
23Vikublað 16.–18. desember 2014
L73, Laugavegi 73
„Jólastellan er mætt í hús
í hátíðarbúning.“Vetrarljóð
S
lái maður Uniimog inn
í google fær maður upp
United Nations Iran-Iraq
Military Observer Group,
stofnun sem sá um að
framfylgja vopnahléi Íran og Írak
eftir 1988. Allt frá Franz Ferdinand
hefur það verið algengt að hljóm-
sveitir sæki nöfn sín til stjórn-
málasögunnar, svo sem British
Sea Power eða Spring Offensi-
ve, án þess endilega að það rati
inn í texta. Uniimog þessi virð-
ist við fyrst sýn vera súpergrúppa
með Ásgeir Trausta innanborðs
og Samma í Jagúar til aðstoðar, en
Þorsteinn Einarsson sér að mestu
um lagasmíðar. Og það er gam-
an að heyra plötu þar sem nokk-
uð er lagt í íslenska texta, þó að
andinn sé meira í ætt við Tómas
Guðmundsson en Rauða penna.
Fjalla þeir flestir um náttúruna
og ástina og er höfundur hrifinn
af hvoru tveggja, þó einsemdin sé
aldrei langt undan. Íslensk texta-
gerð þessa dagana virðist frem-
ur fjalla um rómantíkina (í víð-
um skilningi) en þjóðmálin. Vetur
konungur leikur stórt hlutverk á
plötunni, eins og menn hafi vitað
þegar þeir tóku hana upp að snjó-
þungi væri í nánd, eða ætli þetta sé
metafór fyrir þjóðarsálina? Platan
byrjar vel og við tjörnina, ekki þó
Reykjavíkur heldur mögulega for-
sögulega, en verður fastari í rúmi
þegar gengið er yfir Herðubreið til
að vitja ástarinnar. Hæst rís hún á
hinu gullfallega titillagi og síðan
er haldið inn í draumaland sem er
frekar bókstaflegt en ort gegn virkj-
unum. Við göngum áfram inn í
myrkrið og nóttina, en enn leynast
rúsínur í pylsuenda. Hegðun skýja
um vetur er, eins og nafnið bendir
til, eitt best orta kvæði plötunnar,
með hendingum á borð við „falið
hálendið undir hvítum dúk/Snær
vill stríð og af hans vörum blæs um
hríð.“ Endað er á þjóðlaginu Vetr-
arhríð, og á það einstaklega vel
við. Það mættu vera fleiri tindar og
færri dalir á plötunni, en tindarnir
eru fagrir. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
Yfir hafið
Flytjandi: Uniimog
S
enn líður að áramótum og
því ekki úr vegi að gera upp
tónlistarárið 2014. Við hefj-
um leik á þeim tíu plötum
sem þóttu skara fram úr, að
mati sérvalinnar dómnefndar DV
Músík. Hópurinn kom úr ólíkum átt-
um en hefur það sammerkt að hafa
brennandi áhuga á tónlist og láta sig
flest allt varða í þeim efnum. Listinn
er því sannarlega fjölbreyttur.
Framkvæmdin var ekki flókin.
Hver og einn sendi frá sér lista með
tíu plötum, ekki í neinni sérstakri
röð. Þessar plötur sem hér birtast
voru oftast nefndar hjá okkar fólki.
1 FKA Twigs - LP1 Með langflest atkvæða valnefnd-
ar er plata FKA Twigs á toppnum
sem erlenda plata ársins. Breska
listakonan hefur sigrað heiminn
með draumkenndu og afar listrænu
rafpoppi, ímynd hennar er nokk-
uð á reiki. Söngkonan er eins og
einhvers konar óskilgetið afkvæmi
Squarepusher og Madonnu, er allt í
senn forvitnileg, skrítin auk þess að
fara sínar eigin leiðir.
2 Todd Terje - It's Album Time Platan sem var valin
ein af 100 bestu plötum áratugar-
ins af tónlistarveitunni Pitchfork,
vermir annað sætið á listanum
okkar. Þar með virðist listamannin-
um fyrirgefið að hafa endurunnið
fjögur af eldri lögum sínum og
skellt þeim á plötuna. Hljóðheimur
hennar einkennist svolítið af níunda
áratuginum og eru eðal pastellituð
syntha-hljóð áberandi. Ótrúlega
fjölbreytt plata.
3 D'Angelo - Black Messiah Spútnikkið fyrir þessi plötujól
verður að teljast meistari D'Angelo.
Þvílík og önnur eins listasmíð. Það
fylgja því ákveðin gæðamerki að
gefa plötuna sína út á þeim tíma að
hún rétt slefi inn á topplistana. Á
plötunni kveður við kunnuglegan
tón og gefur hún goðsagnakenndum
forvera sínum Voodoo ekkert eftir.
4 Jessie Ware - Tough Love Það er tregapoppið sem vermir
fjórða sæti listans, en Jessie Ware
var mörgum af okkar fólki ofarlega
í huga. Platan þykir nokkuð örugg,
þ.e.a.s. tónlistarkonan er ekki að
uppgötva neina hluti hér. Hins vegar
fetar hún hinn gullna meðalveg
poppsins og það virkar, eins og
alltaf. Gott popp, fínt á fóninn við
flest tækifæri.
5 Flying Lotus - You're Dead Sú plata sem virðist hafa
komið flestum tónlistarrýnum
heims á óvart var fimmta skífa Fly-
ing Lotus. Það sem er heillandi við
Lótusinn er hve óhræddur hann er
við að blanda saman og tengja ólíka
hljóðheima saman. Plötunni mætti
lýsa sem tilraunakenndri elektró-
hip hop-jazz samsuðu. Ef geimverur
hlusta á músík, þá er hún einhvern
veginn svona.
6 Beck - Morning Phase Tólfta stúdíóplata indíkóngsins kom
út í febrúar á þessu ári. Samkvæmt
tilkynningu frá listamanninum er
hún einhvers konar sjálfstætt fram-
hald plötunnar Sea Change sem
kom út árið 2002. Kunnulegt hljóð
sem svíkur engan aðdáenda.
7 Schoolboy Q - Oxymoro Frábært tímalaust hip hop.
8 Aphex Twin - Syro Fáar plötur hafa vakið jafn mikla
tilhlökkun og Syro. Standardinn var
því nokkuð hár en það kom ekki að
sök. Meistarastykki.
9 Taylor Swift - 1989 Ætti að vera mynd af þessari plötu við
orðabókaskýringuna popptónlist.
Algjört möst í partíið!
10 Run the Jewels - RTJ2 Þegar tveir gamlir rapphundar koma
saman verða til einhverjir töfrar.
Algjörlega frábær plata.
11 Avb Soul - These
Days Hip hop-ið
var allsráðandi.
Hér er ein plata
sem á fullt erindi
við alla hip hop-
og r&b-aðdáendur. Sexí og næs.
12 Freddie Gibbs
& Madlib -
Pinata Annað
Old School-
rapptvíeyki sem
kom á óvart á
árinu. Virkilega þakkar vert og gott
verk.
13 Carcass - Surgical
Remission /
Surplus Steel
EP Safnplata með
sjaldgæfum og/
eða óútgefnum
upptökum plötunnar Surgical Steel
Sessions. Þrusurokk frá „grindcore“
konungunum.
14 Future Islands
- Singles
Indípopp með
syntha-slikju var
aldeilis uppá pall-
borðið hjá okkar
fólki. Enda þrusufín plata frá lipra
Íslandsvininum.
15 St. Vincent -
St. Vincent
Skemmtilega
skrítin popprokk-
plata sem hittir
beint í mark.
16 Banks - Goddes
17 Anna Calvi - One Breath
18 YG - My Crazy Life
19 Pharell Williams - G I R L
20 Lykke LI - I Never Learn
Erlendar plötur ársins
n DV Músík fékk álitsgjafa úr ólíkum áttum til liðs við sig n Þessar plötur þóttu standa upp úr
María Lilja Þrastardóttir
maria@dv.is
Þessar voru
líka nefndar
en náðu ekki á
topp 20:
n NenehCherry - Blank
Project
n Shabazz Palaces - Lese
Majesty
n Diamond Versions - CI
n Ratking - So it goes
n Yung Lean - Unknown
Memory
n Behemoth - The Satanist
Álitsgjafar:
Haukur Viðar Alfreðsson
Sigga Ólafsdóttir
Stígur Helgason
Þórður Ingi Jónsson
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Lára Rúnarsdóttir
Þóranna Björnsdóttir
Bjarni Jónsson
Dana Rún Hákonardóttir
Birna Schram
Óli Dóri
Frosti Logason
Jón Pétur Þorsteinsson
Benedikt Freyr Jónsson