Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 2
2 Fréttir Jólablað 23. desember 2014 1 matsk. safieða 1 hylki. F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i . Jafnvægi og vellíðan lifestream™ nature’s richest superfoods „Fékk aldrei tækifæri til að gefa mitt álit“ Nýtt tölvukerfi í ferðaþjónustu fatlaðs fólks fór ekki í útboð Þ að var ekkert samband haft við mig, bara ekki neitt,“ segir Bjarni Einar Einarsson kerfisfræðingur sem séð hefur um hugbúnaðinn sem notaður hefur verið í ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ, ásamt Akureyri, undan- farin ár. Í nóvember síðastliðnum var nýtt tölvukerfi tekið í notkun í ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykja- vík. Kerfið er frá sama hugbúnað- arfyrirtæki og Strætó bs. hefur átt í viðskiptum við síðastliðin átta ár. Bjarni segir Strætó hafa fyrirvara- laust ákveðið að taka upp nýtt tölvu- kerfi. „Ég hafði ekki hugmynd um að það væri einhver óánægja með hug- búnaðinn og hef aldrei fengið neina kvörtun. Þetta kom mér því mjög mikið á óvart,“ segir hann. Ástandið ennþá slæmt DV fjallaði um óánægju notenda og bílstjóra ferðaþjónustunnar um miðj- an síðasta mánuð. Kerfið var sagt ómanneskjulegt og ekki taka tillit til sérþarfa fatlaðs fólks. Bílarnir komi iðulega of seint og farþegar séu of lengi í bílunum. Þá kom fyrir að alltof margir bílar voru sendir á sama stað- inn til þess að sækja farþegar sem voru jafnvel á leið á sama staðinn. Smári Ólafsson, sviðsstjóri hjá ferða- þjónustu fatlaðs fólks, hefur viður- kennt að ákveðin mistök hafi verið gerð við innleiðingu kerfisins. Engu að síður virðist fátt hafa breyst á síð- astliðnum vikum ef marka má að- standanda sem DV ræddi við. „Þetta er alveg hræðilegt. Kona sem ég þekki pantaði sér um daginn bíl klukkan fjögur en hann kom klukkan hálf fjög- ur. Þetta er kona sem getur ekki klætt sig sjálf og þarf aðstoð með allt. Hún var náttúrlega ekki tilbúin og þá var hún bara skilin eftir. Hún varð því að hringja á leigubíl,“ segir aðstandandi konunnar. Hann nefnir einnig dæmi um Alzheimer-sjúkling og fjölfatlað- an einstakling sem voru skildir eftir á víðavangi sökum reynsluleysis nýrra bílstjóra. „Það er verið að brjóta á réttindum fatlaðra. Þetta er glapræði.“ Ekkert útboð Frá árinu 2006, þegar Trapeze-tölvu- kerfið var tekið upp, hefur Strætó bs. samtals greitt fyrir það og þjónustu vegna þess rúmlega 111 milljónir króna. Kerfið er notað vegna leiða- kerfis, vaktakerfis, leitarkerfis og far- þegaþjónustu. Fyrsta árið greiddi Strætó rúmar 2,6 milljónir krónur fyr- ir kerfið en greiðslurnar voru hæstar árið 2012 en þá greiddi Strætó tæp- ar 27 milljónir til Trapeze. „Á undan- förum þremur árum hefur kostnaður aukist nokkuð vegna innleiðingar og reksturs nýrra lausna og munar þar mestu um leiðarvísi Strætó sem far- þegar geta notað til að skipuleggja ferðir sínar,“ segir í svari Guðrún- ar Ágústu Guðmundsdóttur, upp- lýsingafulltrúa Strætó, við fyrirspurn blaðamanns. Ekki fór fram útboð áður en tölvukerfið var tekið í notk- un heldur var árið 2004 gerð verð- athugun. Í tengslum við það komu fulltrúar tveggja fyrirtækja, Trapeze og Hastus, til landsins og kynntu sín kerfi. Á grundvelli þessa var ákveðið að hefja viðskipti við Trapeze. DV sendi fyrirspurn á föstudag um áætl- aðan kostnað vegna tölvukerfisins á næsta ári, nú þegar það hefur verið tekið upp við ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Fyrirspurninni hafði ekki ver- ið svarað þegar DV fór í prentun á mánudag. „Mér var ekki gefinn kostur á að bjóða í þetta,“ segir Bjarni um málið. „Ef þeir vildu breytingar þá hefði ég alveg getað gert það sama og þeirra hugbúnaður gerir fyrir miklu minni pening. Ég hefði alveg getað gert kerfi sem gerir það sama, kerfi sem tek- ur við pöntunum, sem er óskilgreint hverjir meðhöndla, og búið svo til al- góritma sem hefði raðað þeim nið- ur á bíla um hvippinn og hvappinn. Ég hefði bara aldrei gert þetta svona heimskulega. Mitt forrit hefði aldrei sent fimm bíla á sama stað að sækja fimm farþega. En ég fékk aldrei tæki- færi á að gefa mitt álit.“ Bjarni furðar sig enn fremur á því að Strætó kjósi að eiga í viðskiptum við erlent fyrirtæki þegar þjónustan er í boði hér á landi. Ópersónulegt kerfi Hugbúnaðurinn sem Bjarni smíðaði sá um að raða niður farþegum í bíla og skipuleggja ferðir. Þá samkeyrði kerfið upplýsingarnar við viðskipta- hugbúnað í eigu Bjarna og sá þannig í leiðinni um alla reikninga. „Nýja kerfið getur ekki rukkað,“ fullyrð- ir Bjarni. „Þannig ég hef núna verið að reyna að draga þá í land með að rukka farþega. Það er nefnilega miklu hærra flækjustig á þessu en þeir gerðu sér grein fyrir. Nýja kerfið skrá- ir ekki það sem þarf til þess að gera reikninga, þannig ég veit ekki hvernig þetta fer um áramótin. Þetta er bara hreint klúður.“ Bjarni óttast einnig að nýja kerfið sé ekki nógu persónulegt. Í gegnum árin hafi til dæmis stundum komið upp atvik sem valdi því að ákveðn- ir farþegar geti ekki verið í bíl hjá ákveðnum bílstjórum eða með öðr- um farþegum. Nýja kerfið taki ekki tillit til þess. „Þetta fólk er margt veikt og það er ekki hægt að bjóða því upp á svona ópersónulegt kerfi. Það virð- ist vera tilgangurinn með nýja kerfinu að fjarlægja það notendum. Það eru ekki lengur menn sem raði á bílana heldur tölva. Minn hugbúnaður vann ekki þannig. Þar var reynt að koma til móts við þarfir notenda, sem hlýtur að vera það mikilvægasta í þjónustu við þennan hóp. Það er í rauninni ver- ið að skipta um hugmyndafræði.“ n „Þetta fólk er margt veikt og það er ekki hægt að bjóða þeim upp á svona ópersónulegt kerfi. Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is 25. nóvember 2014 Ferðaþjónusta fatlaðs fólks enn í ólestri Bílarnir koma of seint og farþegar eru of lengi í bílunum. Skjaldbökur og hvítt efni Lögreglan á Suðurnesjum stöðv- aði nýverið tvær kannabisræktan- ir sem karlmaður á fertugsaldri er grunaður um aðild að. Einnig voru haldlögð kannabisefni í pakkning- um, sveppir, lyf, poki með hvítu efni og tvær skjaldbökur. Lögreglumenn stöðvuðu í upphafi akstur mannsins og reyndist hann vera með útrunnin ökuréttindi. Hann var að auki eft- irlýstur. Maðurinn gaf þvagsýni á lög- reglustöð sem staðfesti neyslu hans á amfetamíni, metam- fetamíni og kannabis. Við leit í bifreið hans fannst meðal annars lítil vog með leifum af hvítu efni og kannabis. Lögregla fór þá í húsleit á iðnaðarhúsnæði sem maður- inn hafði til umráða. Þar fannst kannabisræktun falin inni á milli nóta, kaðla og fiskineta. Á heim- ili hans fannst önnur kannabis- ræktun, kannabisefnin, sveppirn- ir, lyfin og hvíta efnið. Þar fundu lögreglumenn að auki skjald- bökurnar. Meindýraeyðir frá Hafnarfjarðarbæ fjarlægði þær. Lögreglan segist einnig hafa fundið falskt rými undir ísskáp þar sem meðal annars voru tvær glerkrukkur með meintum am- fetamínleifum, kannabismyljari og fíkniefnaáhöld. Útgáfa DV Ekkert helgarblað kemur út á fimmtudaginn, annan dag jóla. Næsta tölublað DV verður glæsi- legt Völvublað sem út kemur þriðjudaginn 30. desember. Þar verður árið gert upp auk þess sem völvan spáir í árið sem senn fer í hönd. Fréttaþjónusta verður með hefðbundnu sniði yfir há- tíðarnar á vefnum, DV.is. DV óskar lesendum sínum, velunnurum og landsmönn- um öllum gleðilegrar hátíðar og þakkar fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.