Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 13
Jólablað 23. desember 2014 Fréttir Erlent 13
www.itr.is ı sími 411 5000
* Á öðrum dögum er opið samkvæmt
hefðbundnum afgreiðslutíma
Þorláksmessa Aðfangadagur Jóladagur Annar í jólum Gamlársdagur Nýársdagur
23. des 24. des 25. des 26. des 31. des 1. jan
Árbæjarlaug 06.30-18.00 08.00-12.30 Lokað 12.00-18.00 08.00-12.30 Lokað
Breiðholtslaug 06.30-18.00 08.00-12.30 Lokað Lokað 08.00-12.30 Lokað
Grafarvogslaug 06.30-18.00 08.00-12.30 Lokað Lokað 08.00-12.30 Lokað
Klébergslaug 11.00-15.00 10.00-12.30 Lokað Lokað 10.00-12.30 Lokað
Laugardalslaug 06.30-18.00 08.00-12.30 Lokað 12.00-18.00 08.00-12.30 12.00-18.00
Sundhöllin 06.30-18.00 08.00-12.30 Lokað Lokað 08.00-12.30 Lokað
Vesturbæjarlaug 06.30-18.00 08.00-12.30 Lokað Lokað 08.00-12.30 Lokað
Ylströnd 11.00-13.00 Lokað Lokað Lokað Lokað 11.00-15.00
*
Heilsulindir í Reykjavík
AFGREIÐSLUTÍMI
SUNDSTAÐA
JÓL OG ÁRAMÓT
2014-2015
SUNDKORT
ER GÓÐ
JÓLAGJÖF
pantað heim að dyrum með einum
músarsmelli.
Kína uppgötvar jólin
Í Yiwu gengur allt út að selja ódýr-
an varning, „kínverskt drasl“ eins
og það var einhvern tímann kallað.
En þetta ódýra drasl átti mjög upp
á pallborðið hjá neytendum víðs
vegar um veröldina í kreppunni. Al-
þjóðlegar sölutölur hafa lækkað eitt-
hvað í ár en samkvæmt forsvars-
manni Jólavöruiðnaðarráðs Yiwu,
Cai Qingliang, hefur kínverski mark-
aðurinn tekið verulega við sér. Kín-
verjar virðast vera að meðtaka jólin.
Samkvæmt breska vikublaðinu
Economist þekkja fleiri Kínverjar nú
jólasveininn en Jesú sjálfan.
Þó að verkamennirnir sem þræla
sér út í jólavöruverksmiðjum Yiwu
sjái ekki björtu hliðarnar í jólahaldi
hluta heimsbyggðarinnar þá eru
sölumenn þar í bæ hæstánægð-
ir með að búa við þessi heilsársjól.
Cheng Yaping, sem rekur einn sölu-
básanna segir:
„Það léttir manni lundina að fá
að sitja hér alla daga, umkringd-
ur þessum fallegu jólaskreytingum
allan daginn.“ n
Blikar jólastjarnan
Hér má sjá verkamann í
Yiwu nostra við rekka af
rauðum jólastjörnum sem
síðan munu prýða heldur
þrifalegri heimili en verk
smiðjurnar sem þær voru
framleiddar í. Mynd ReuteRs
svona verða jólin til Í
verksmiðjum jólabæjarins Yiwu
verða 60% af öllu jólaskrauti
veraldar til. Verkamenn þræla
langa daga fyrir sultarlaun
við subbulegar aðstæður sem
þessar til að útbúa skrautið sem
lýsir upp og fegrar hátíðarnar
hjá okkur hinum. Mynd ReuteRs
Aflífa 500 í kjölfar hryðjuverkaárásar
Dauðarefsing tekin upp á ný í Pakistan eftir sex ára hlé
P
akistönsk yfirvöld hafa
ákveðið að aflífa um 500
fanga á næstu vikum í kjölfar
hryðjuverkaárásarinnar sem
átti sér stað í landinu í síðustu viku. Í
árás talíbana á barnaskóla í borginni
Peshawar féll 141, þar af 133 börn,
en um er að ræða mannskæðasta
hryðjuverk í sögu landsins.
Dauðarefsing var afnumin í
landinu fyrir sex árum, en nú hafa
yfirvöld ákveðið að leyfa hana á
ný og hyggjast aflífa fangana með
hengingu. Um er að ræða fanga sem
hafa hlotið dóma vegna tengsla við
hryðjuverkastarfsemi. Þegar hafa sex
manns verið teknir af lífi í landinu
síðan á föstudag, en fimm þeirra
tengdust misheppnuðu tilræði gegn
Pervez Musharraf, fyrrverandi yfir-
manni herforingjastjórnar landsins,
árið 2003, á meðan einn þeirra átti
þátt í árás á herstöð árið 2009.
Pakistönsk yfirvöld hafa gefið út
yfirlýsingu þar sem þeir segja að at-
vikið í síðustu viku hafi breytt miklu
og hafa yfirvöld heitið því að efla bar-
áttuna gegn öfgamönnum í landinu
og eru aftökurnar liður í því. Lög-
regla og herlið hafa verið sett í við-
bragðsstöðu víðs vegar um landið og
hefur öryggisgæsla verið hert.
Mannréttindasamtök hafa þó for-
dæmt ákvörðun yfirvalda í Pakistan
og segja yfirvöld misnota hryðju-
verkalögin. Þá hafa Sameinuðu
þjóðirnar einnig óskað eftir því að
yfirvöld í Pakistan endurskoði þessa
ákvörðun sína. n
jonsteinar@dv.is
Frá vettvangi árásarinnar 141
lét lífið í árásinni, þar af 133 börn. Yfir
völd hyggjast skera upp herör gegn
hryðjuverkum í landinu, meðal annars
með dauðarefsingum. Mynd ReuteRs