Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 16
Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 16 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjóri: Hallgrímur Thorsteinsson Fréttastjóri: Jóhann Hauksson • Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Jólablað 23. desember 2014 Ég bara grét Erfið krísa í Rússlandi 21 árs íslensk kona um reynslu sína af hefndarklámi. – DV R ússland er sokkið í gjaldeyris- krísu eins og við fundum fyrir á Íslandi vorið 2008 og dundi svo yfir af fullum þunga í banka- hruninu í byrjun október. Að hluta til er ástæðan fyrir hátt í fimmtíu pró- senta falli rúblunnar núna refsiað- gerðir Vesturlanda gegn Rússum vegna Úkraínudeilunnar. Krísan er því að þessu leyti heimatilbúin, en lækk- andi heimsmarkaðsverð á olíu er þó meginástæðan. Verðbólga er komin í tveggja stafa tölu, vextir hafa verið snarhækkaðir, landið er á barmi efna- hagshruns. Íslenskur sjávarútvegur er farinn að finna fyrir þessum hremmingum því Rússland er sá markaður fyrir ís- lenskar sjávarafurðir sem hefur vax- ið hvað hraðast. Áratuginn 2003 til 2013 jukust útflutningsverðmæti sjáv- arafurða frá Íslandi til Rússlands úr 600 milljónum króna í 18,6 milljarða króna, sem er 32-föld aukning og nú koma 43% af útflutningsvirði heilfrysts makríls frá Rússlandi. Óvissan um framhald þessara viðskipta er mik- il, stórir íslenskir fiskútflytjendur hafa stöðvað útflutning til Rússlands og fyrirtæki þar skulda íslenskum útflytj- endum þrjá til fimm milljarða króna. Efnahagsleg óvissa sem fylgir Rússlandskrísunni er því umtals- verð hjá okkur og mörgum nágranna- þjóðanna sem þegar eru farnar að ræða möguleikann á að hætta refsi- aðgerðunum gegn Rússum. Þannig létu utanríkisráðherrar Þýskalands og Danmerkur áhyggjur sínar í ljós í síð- ustu viku á að áframhaldandi aðgerðir myndu valda óstöðugleika í Rússlandi og François Hollande Frakklandsfor- seti segir að Vesturlönd ættu að skoða hvernig hægt væri að vinda ofan af spennunni í samskiptunum við Rúss- land. Í Danmörku ráða hér hags- munir Carlsberg-bjórverksmiðjanna talsverðu og í Frakklandi hergagna- iðnaðurinn, Frakkar eru að selja Rúss- um tvö herskip. Ómögulegt er að spá á þessari stundu um hvaða afleiðingar krísan hefur á efnahags- og fjármálalíf í Evrópu og jafnvel Kína en ljóst þykir þó að aflétting refsiaðgerðanna myndi rétt aðeins lina krísuna, ekki afstýra henni. En sennilega er þó rétt að hafa mestar áhyggjur af pólitískum af- leiðingum þessara þrenginga hjá Rússum. Pólitískt er Rússland staðn- að og frosið, rétt eins og efnahags- lífið, sem hefur treyst um of á orku- útflutning og hefur ekki náð að þróa framleiðslu og þjónustugreinar og auka framleiðni. Áframhaldandi refsi- aðgerðir mundu fyrirsjáanlega gefa Pútín ástæðu til að kenna Vestur- veldunum um ófarir Rússa og valda enn meiri kælingu samskipta. Og innanlands í Rússlandi er enn frekar ástæða til að fylgjast vel með, því þar gætu mestu hætturn- ar leynst. Fram eftir þessu ári hefur stöðugt dökknað yfir þjóðlífinu í Rúss- landi að því er Ivan Sukhov, blaða- maður Moscow Times, segir í nýrri grein. Hann lýsir árásargirni sem stig- magnist í samfélaginu og viljaleysi til að stemma stigu við henni. Farið sé að bera á margs konar brestum og sprungum í undirstöðum samfélags- ins. Sukhov nefnir sem dæmi að aldrei eftir lok Sovéttímans hafi starfsfólk þjónustustörfum sýnt af sér jafn al- gjört skeytingarleysi gagnvart starfs- skyldum sínum og nú. Það er eins og allur þjónustugeirinn á einu bretti hafi skyndilega tekið upp hinn sov- éska sið fyrri tíma að gelta reiðilega að viðskiptavinunum. Hann segir að þeir Rússar sem ekki eigi þess kost að flytja til útlanda eigi ekki annan möguleika en þann að hugsa það í botn hvað þurfi til að endurstilla samfélags- gerðina. Ljóst sé að núverandi stjórn- völd ætli ekki að gera það. Það er því frekar sláandi að lesa það sem Sukhov segir um framhaldið í Rússlandi, því í rauninni stönd- um við hér á landi enn frammi fyrir þeirri stöðu sem hann lýsir þar: „Í lífi allra þjóða getur sú staða komið upp þar sem kallað er eftir skýru vali milli breytinga til batnaðar eða stöðnun- ar og hnignunar. Á slíkum tímum er það aðeins sameiginlegur vilji fólks- ins sem þrýst getur á að breytingarn- ar hefjist.“ Og hann segir að breytingar feli alltaf í sér áhættu, það sem byrji sem umbætur endi oft í byltingu, heimur- inn þekki það – frá Ferguson til Kiev – og vonar að gætum þess í lengstu lög að vindar breytinganna nái þó ekki fellibylsstyrk eins og í fyrri heimsstyrj- öldinni fyrir 100 árum. Í ferli breyting- anna þurfi svo jafnframt af öllum mætti að gæta þess að við gröfumst ekki sjálf undir rústum þeirra pólitísku og félagslegu múra sem verða og eiga skilið að falla. n Jón Ásgeir í Vestur-Indíum Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfest- ir hélt að sögn nýlega til Kúbu ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Pálmadóttur. Um var að ræða beint flug á vegum ferðaskrifstof- unnar Vita til karabísku eyjar- innar. Ekki fer neinum spurnum af tilgangi ferðar þeirra en nokkra athygli vakti að Jón Ásgeir var ekki með í flugvélinni á leiðinni til Íslands. Hermt er því að fjár- festirinn hafi aðeins flogið aðra leiðina, af einhverri ástæðu. Jón Ásgeir hefur áður komið til umræðu vegna eyja í Vestur-Ind- íum. Árið 2008 var hann spurður að því í sjónvarpsþættinum Silfri Egils hvort hann kannaðist við skattaparadísina Tortólu sem er ein af Bresku Jómfrúaeyjunum sem eru austan við Kúbu. Svar fjárfestisins var nei en síðar kom í ljós að fjárfestingarfélagið Gaum- ur, sem hann átti og stýrði meðal annarra, var stofnað á Tortólu. Brotthvarf vekur athygli Brotthvarf Heiðu Kristínar Helga- dóttur úr Bjartri framtíð vakti nokkra athygli í síðustu viku. Hún var einn stjórn- endum flokksins, þó ekki sæti hún á þingi nema um skamma hríð sem varaþingmaður, og eitt af andlitum hans. Vægi henn- ar á bak við tjöldin er svo talið hafa verið meira en á yfirborðinu. Heiða Kristín er ekki sú fyrsta sem yfirgefur framvarðasveit Bjartrar framtíðar en fyrr á ár- inu hætti Atli Fannar Bjarkarson sem aðstoðarmaður Guðmund- ar Steingrímssonar af ástæðum sem ekki hafa verið útskýrðar til fulls. Tveir einstaklingar sem ver- ið hafa í stjórnendateymi flokks- ins hafa því yfirgefið hann með tiltölulega stuttu millibili. Spurningin er hvort einhverj- ir samstarfsörðugleikar séu í flokknum. Ríkisstyrktur Hannes Facebook er oft fundarstaður þar sem menn takast á um stórvægileg og smávægileg efni. Talsverð um- ræða var á samfé- lagsmiðlinum um samkvæmisleik DV um bestu rit- höfunda þjóðar- innar og var Einari Kárasyni rithöf- undi nóg boðið þar sem einhver vel þekkt nöfn vantaði á listann. Hannes Hólmsteinn Gissurar- son skaut þá á Einar og sagði að hann væri rithöfundur á fram- færi þjóðarinnar. Einar skaut hins vegar á Hannes Hólmstein á móti og sagði hann hafa verið á fram- færi íslensku þjóðarinnar í áratugi í gegnum störf sín við Háskóla Ís- lands og fleira. Fáir séu því eins ríkisstyrktir og þessi þekktasti postuli einkaframtaksins á Íslandi. Leiðari Hallgrímur Thorsteinsson hallgrimur@dv.is Ég eyk hreyfinguna Silja Úlfarsdóttir íþróttaþjálfari passar að eiga fyrir kræsingunum. – DV Þetta er svo svakalegt Einar Bollason hjá Íshestum á erfitt með að tjá tilfinningar sínar. – Vísir „ Í lífi allra þjóða getur sú staða komið upp að kallað er eftir skýru vali milli breytinga til batnað- ar eða stöðnunar og hnignunar. Þ egar fjárlagafrumvarpið var lagt fram í haust, þá leið mér svolítið svona: Mér fannst eins og Ísland þyrfti að taka sér pásu í um það bil eitt ár. Hugsa málin. Fara í saumana á hlutunum. Gera plön. Byrja svo aft- ur. Hlutirnir eru of mikið skrifaðir aftan á umslag, eins og einn góður vinur minn og samstarfsfélagi orð- aði það. Sýnin er svo óskýr. Hvert er stefnt? Þetta er allt í rassvasan- um einhvern veginn. Tóm óreiða. Erum við öll að fara að vinna á Sauð- árkróki? Á ég að borga lánin mín í framtíðinni eða ætlar ríkið að gera það? Hvað er málið? Ætlum við að hafa fyrsta flokks heilbrigðiskerfi eða annars flokks? Hvert er stefnt með skólana? Á að laga vegina eitt- hvað, eða er í lagi að hafa þá holótta? Á að greiða niður skuldir ríkissjóðs eða ekki? Hvenær losnar Ísland und- an höftum? Á að virkja allt í drasl eða ætlum við kannski mögulega að vernda hina óspjölluðu náttúru okk- ar, eins og okkur ber? Samráð við kertaljós Trommað er fram með miklar yfir- lýsingar. Nú skal skattkerfið einfald- að og gert skilvirkara. Gott og vel. Það er skynsamlegt. En svo rýnir maður í smáa letrið. Les frumvörpin. Fátt er gert einfaldara í raun og veru. Enn skiptir máli, í skattalegu tilliti, hvort vatnið í lauginni er með klór eða ekki. Lítið er skilvirkara, nema kannski aðförin að bókaútgáfunni. Hún verður mögulega skilvirk. Og áfram stundar ríkið þá miklu ósiði, að klípa til sín hin og þessi gjöld sem eru samningsbundin eða eiga á grundvelli laga að renna til ýmissa þjóðþrifamála. Ríkið reynir að redda sér, einhvern veginn. Með alls konar flækjum. Svo notað sé dæmið um skattana og gjöldin: Betra væri að setjast nið- ur, við kertaljós kannski, þverpóli- tískur hópur í samstarfi við vinnu- markaðinn og aðra, og reyna að ákveða til langrar framtíðar hvernig við viljum, sem samfélag, haga þess- um málum. Ég er viss um að það myndi skapast góður samhljómur. Tölum í markmiðum En þetta er ekki gert. Samráð og yfir- vegun er ekki stíll núverandi stjórn- valda, virðist vera, þótt það standi í stjórnarsáttmálanum. Mér finnst það miður. Ég held að Ísland sé upp- fullt af góðum möguleikum. Það sem helst vantar er traust og tiltrú. Traust þarf að ríkja á milli fólks. Það kemur ekki af sjálfu sér. Það þarf að vinna í því. Traust skapast með samræðu og samvinnu, þar sem ólíkar skoðanir fá að njóta sín í þeirri vinnu að skapa lausnir fyrir samfélagið, sem aftur skapa trú á framtíðinni. Björt framtíð hefur tileinkað sér þann stíl í stjórnmálum, að tala í markmiðum, ekki loforðum. Raun- verulegar framfarir verða í samfé- laginu þegar margir leggjast á eitt. Þegar stefnan er skýr. Ég er viss um að flest viljum við að auðlind- ir landsins skili samfélaginu góðum arði, sem við getum nýtt til að bæta grunnþjónustuna við allan almenn- ing. Ég er líka viss um að flest vilj- um við að hið opinbera sé ekki svona skuldsett, sem raun ber vitni. Við viljum líka örugglega flest búa við fyrirmyndarskólakerfi og heilbrigð- iskerfi. Við viljum efnahagslegan stöðugleika, geri ég ráð fyrir. Við vilj- um lifa frjáls, í heilnæmu umhverfi og njóta mannréttinda. Setjumst niður Ég veit að við tökum ekki pásu árið 2015 og veltum fyrir okkur málun- um, en það væri að minsta kosti einnar messu virði að setjast aðeins niður saman og spá í það hvern- ig við náum markmiðum um betra samfélag, á tímamótum eftir djúpa kreppu. Við í Bjartri framtíð teljum raunar að mjög mikið hafi verið spáð og spekulerað í þeim efnum, margar vandaðar stefnumarkanir unnar og skýrslur skrifaðar. En þær virð- ast einhvern veginn ekki höfða til núverandi ríkisstjórnar. Þess vegna þarf greinilega að setjast niður með henni. Við kertaljós, kannski. Með jóla- sveinahúfu. Við erum til. n Gleðileg jól, kæru landsmenn, og farsælt komandi ár. Nú skal segja Guðmundur Steingrímsson formaður Bjartrar framtíðar Kjallari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.