Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 17
Umræða 17Jólablað 23. desember 2014 Valdið til fólksins Þ inghaldi fyrir jól er nú ný­ lokið, með samþykkt fjár­ laga fyrir næsta ár og annarra fjárlagatengdra mála. Margt má segja um forgangsröðun fjárlaganna, þar sem skattar eru hækkaðir á mat og menningu, skorið er niður hjá Rík­ isútvarpinu og aðgangur að fram­ haldsskólum takmarkaður þannig að 25 ára og eldri eru útilokað­ ir frá námi. Þá er aukinn kostnað­ ur lagður á herðar sjúklinga, t.d. með aukinni greiðsluþátttöku í sérhæfðum lyfjum. Á sama tíma er byrðum létt af tekjuhærri hópum, t.d. með afnámi auðlegðarskatts. Meðal annars vegna þessara mála hefur myndast gjá milli þings og þjóðar á undanförnum mánuð­ um, eins og fram kemur í skoðana­ könnunum á fylgi ríkisstjórnarinn­ ar og ríkisstjórnarflokkanna. Rökræða í stað árása Raunar held ég að sú gjá skýrist einnig af því hvernig forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa talað til þeirra sem eru ósammála þeim síðan þeir tóku við völdum. Fyrir nokkru greip forsætisráðherra til þess bellibragðs að saka stjórnar­ andstöðuna fyrirfram um að koma til með að segja ósatt í þinginu. Það gefur auga leið að slíkur mál­ flutningur bætir ekki umræðu­ hefðina á Alþingi. Sömuleiðis er það áhyggjuefni að formaður fjár­ laganefndar og þingflokksformað­ ur Framsóknarflokksins skuli leynt og ljóst tengja niðurskurð á fram­ lögum til RÚV við meinta ósann­ gjarna umfjöllun um flokkinn sinn. Verst af öllu er þó hvernig rík­ isstjórnin hefur talað til þjóðar­ innar sjálfrar. Þeir sem gagnrýna ríkisstjórnina eru sagðir taka þátt í „loftárásum“ eða byggja skoð­ anir sínar á „misskilningi“. Í stað rökræðu um forgangsröðun og grunngildi samfélags okkar er fólki ítrekað stillt upp í lið – „við“ og „hinir“ – þar sem öll gagnrýni er gerð tortryggileg og þeim sem hafa aðra skoðun gerðar upp annar­ legar hvatir. Lýðræði á tímamótum Framferði ríkisstjórnarinnar í þessum efnum veldur ekki aðeins eðlilegri gremju meðal þjóðar­ innar heldur grefur það undan lýðræðinu. Það er forsenda lýð­ ræðislegrar ákvarðanatöku að upplýsingar séu fyrir hendi og al­ menningur geti tekið þátt í opin­ berri umræðu án þess að vera átalinn af valdafólki. Lýðræði þarf líka á því að halda að til séu óháð­ ir fjölmiðlar sem miðla upplýsing­ um til fólksins með aðgengilegum hætti. Í fámennu samfélagi hefur almannaútvarpið þar feikimikil­ vægu hlutverki að gegna og því sérstakt áhyggjuefni að framlög þess séu skert. En til framtíðar eigum við líka að huga að annars konar lýð­ ræðisumbótum. Mikilvægt er að efla þjóðþingið gagnvart fram­ kvæmdavaldinu og styrkja þannig fulltrúalýðræðið. Samhliða því er líka brýnt að setja sem fyrst ákvæði í stjórnarskrá um að tiltekinn hluti landsmanna geti krafist þjóðar­ atkvæðagreiðslu. Þannig hefði til dæmis mátt knýja fram þjóðarat­ kvæðagreiðslu um lækkun veiði­ gjalda en 35 þúsund Íslendingar skrifuðu undir áskorun til forseta Íslands um að synja þeim lögum samþykktar. Því miður voru lögin hins vegar samþykkt, og það þó að skoðanakannanir hafi sýnt að 70% þjóðarinnar væru þeim andsnúin. Þátttökulýðræði Þó að mikilvægt sé að setja skýr ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðsl­ ur er einnig rétt að huga að því að lýðræði snýst ekki einungis um atkvæðagreiðslur. Okkur hættir til að hugsa um lýðræði sem eitt­ hvað sem gerist í kjörklefanum en í reynd snýst það að sjálfsögðu um að almenningur – „lýðurinn“ – taki þátt í að móta samfélag sitt. Undanfarin ár hafa ýmsar athygl­ isverðar tilraunir verið gerðar til að auka þátttöku almennings í opin berri stefnumótun og þar með styrkja stoðir lýðræðisins. Í sumum tilvikum snúast þessar tilraunir um að kanna afstöðu al­ mennings til tiltekinna mála eftir að hafa kynnt sér málið og rætt það til hlítar. Í öðrum tilvikum kemur fólk saman til að móta stefnuna beint, eins og í svokallaðri þátt­ tökufjárhagsáætlanagerð. Þá hafa verið skapaðar leiðir þannig að al­ menningur geti sett mál á dagskrá þjóðþinga og þau þannig hlot­ ið umræðu. Lýðræðistilraunir af þessu tagi hafa verið settar af stað í ótal löndum, þar á meðal í Dan­ mörku, Bandaríkjunum, Brasilíu og Japan. Reyndar höfum við Ís­ lendingar einnig verið framarlega á þessu sviði, því sú vinna sem fram fór í tíð síðustu ríkisstjórn­ ar við gerð nýrrar stjórnarskrár – með þjóðfundi, stjórnlagaráði og þjóðaratkvæðagreiðslu – hef­ ur vakið athygli erlendis. Við þurf­ um að halda áfram á þessari leið á næstu árum og styrkja þannig stoðir lýðræðisins. Þannig getum við tekið betri og lýðræðislegar ákvarðanir. Að lokum óska ég landsmönn­ um öllum gleðilegra jóla og friðar yfir hátíðirnar, með von um að við sjáum frekari lýðræðisumbætur á komandi ári. n Katrín Jakobsdóttir formaður VG Kjallari Myndin Hátíð ljóss Margir eru nú að leggja lokahönd á undirbúning fyrir hátíðarhöld næstu daga. Sumir kjósa að hafa síðustu daga aðventunnar rólega en aðrir vilja hlaupa á milli búða og fara í sendiferðir. Mynd sigtRygguR aRi „ Í stað rökræðu um forgangsröðun og grunngildi samfélags okkar er fólki ítrekað stillt upp í lið – „við“ og „hinir“ – þar sem öll gagnrýni er gerð tortryggileg og þeim sem hafa aðra skoðun gerðar upp annarlegar hvatir. Ég skarst illa Ársæll Þór ingvason varð fyrir aðkasti vegna litarhafts síns. – DV Ég sá engan detta tanja Ýr Ástþórsdóttir um reynslu sína í Miss World. – DV Helvítis krabbameinið steinar Bragi greindist með krabbamein. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.