Bændablaðið - 09.07.2015, Side 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
gagnvart neytendum eins og kom
fram í umræðum um málið í síðustu
viku.
Orkufyrirtækin verða beðin að
hætta sölu bréfanna – ef …
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
ræddi málið í útvarpsþættinum „Í
bítið“ á Bylgjunni 14. júní. Þar
viðurkenndi hún fáránleika sölu
þessara upprunavottorða og sagði
m.a.:
„Ég get alveg viðurkennt það að
manni hefur þótt ankannalegt að sjá
þetta á rafmagnsreikningunum sínum,
en þetta er ákveðin bókhaldsleg
framsetning. Þetta breytir engu um
það og er ekki raunveruleg lýsing
á okkar orkubúskap sem er eins og
allir vita þannig, að hann byggir
að 99,99% á endurnýjanlegum
orkubúskap. […] Nú hafa
grænmetisbændur vakið á þessu
athygli og ef þetta er farið að skaða
þeirra atvinnugrein eða hagsmuni
Íslands að einhverju leyti, þá hef ég
látið hefja þá skoðun í ráðuneytinu
að skoða hvaða hagsmunum erum
við að fórna, erum við að fórna meiri
hagsmunum fyrir minni? Fyrsta
skoðun bendir til þess að tekjurnar
af þessu hafi ekki verið gríðarlega
miklar fyrir orkufyrirtækin en við
erum ekki komin að endanlegri
niðurstöðu um það. Við munum þó
ekki geta komist út úr tilskipuninni
eða kerfinu sjálfu, en það sem við
getum gert, og það er sú leið sem
við hugsanlega myndum fara, ef við
kæmust að þessari niðurstöðu, væri
að fara þess á leit við orkufyrirtækin
að þau hætti þessu til þess að skaða
ekki okkar hagsmuni.“
Syndaaflausn
Ráðherrann tók undir þá skoðun
sem sett var fram í forsíðufyrirsögn í
Bændablaðinu, að þetta væri ákveðin
syndaaflausn.
„Það væri þá lausnin ef í ljós
kemur að þetta er að skaða okkur
[…] að fá þau til þess að hætta
þessu.“
Ragnheiður Elín sagði einnig
að umræðan um kolefniskvóta
á alþjóðavísu snerist í raun um
þetta sama. „Þetta snýst um
það að menn geta keypt sig frá
einhverjum vanda. Þannig er búið
að setja upp viðskiptakerfi í þessu
og upprunaábyrgðir eru annar angi af
því. Þetta er ekki alveg sambærilegt,
en þetta eru fyrst og fremst tölur á
blaði og hvernig menn geta reiknað
sig út frá ákveðnum markmiðum og
að ákveðnum markmiðum. Þannig
að mér finnst ekkert skrítið að fólki
finnist þetta kúnstugt.“
Hún sagði að Norðmenn væru í
svipaðri stöðu þótt umræða hafi ekki
komist á þetta stig þar en væri að
koma upp á yfirborðið núna.
„Ég er algjörlega tilbúin að
skoða það að fara þess á leit við
orkufyrirtækin, ef í ljós kemur að
þetta er að skaða okkur, að þau hætti
að selja þessar ábyrgðir. Ég get ekki
fyrirskipað þeim það vegna þess
að þetta er í lögunum, en þetta er
eitthvað sem við munum taka upp
við þau að lokinni þessari skoðun.“
Þarna er greinilega um mjög stórt
ímyndarmál að ræða fyrir Ísland og
Íslendinga til langrar framtíðar sem
taka þarf afstöðu til.
Ríkið dragi sig út úr
upprunavottun orku
Ragheiður Elín tók í svipaðan streng
í samtali við Morgunblaðið í síðustu
viku. Þar sagði hún m.a.:
„Ég hef skilning á sjónarmiðum
þeirra, til að mynda garðyrkjubænda,
sem gert hafa athugasemdir við sölu
á upprunaábyrgðum og hef ég óskað
eftir því í ráðuneytinu að kannað
verði hvaða leiðir eru færar í þessum
efnum. Ef í ljós kemur að tekjur eru
litlar og að hagsmunum gæti verið
fórnað þá væri möguleikinn sá að
beita sér fyrir því að orkufyrirtæki
ríkisins dragi sig út úr þessu kerfi
og eftir atvikum ræða við aðra
orkusala um að hverfa frá þessari
stefnu einnig.“
Gefur sér sumarið
til að meta stöðuna
Bændablaðið sendi Ragnheiði
Elínu Árnadóttur iðnaðar- og
viðskiptaráðherra fyrirspurn í
nokkrum liðum er þetta varðar. Þar
var hún fyrst spurð:
− Hvenær má búast við niður-
stöðu vegna skoðunar ráðu neytisins
á málinu?
Svar ráðherra er svohljóðandi:
„Ráðuneytið hefur verið að fara
yfir hvaða kostir séu í stöðunni.
Við höfum ekki marga kosti vegna
skuldbindinga okkar gagnvart
EES. En eitt af því sem við höfum
rætt er að ríkið sem eigandi beini
þeim tilmælum til orkufyrirtækja í
ríkiseigu að þau einfaldlega hætti
sölu slíkra upprunaábyrgða og
jafnframt að rætt verði við hin
orkufyrirtækin um að gera það sama.
Það væri þó alltaf háð því mati að
sala á upprunaábyrgðum sé í heild
að skaða íslenska hagsmuni umfram
þær tekjur sem orkufyrirtækin hafa
af slíkri sölu. Við munum gefa
okkur sumarið til að fara betur yfir
málið enda liggja hagsmunir víða
og mikilvægt að gefa sér þann tíma
sem þarf.“
Látið viðgangast
Ragnheiður Elín sagði einnig í
viðtalinu á Bylgjunni að þetta væri
ekki bara látið viðgangast hér og
úti í Evrópu þótt menn vissu að
þarna væri um blekkingu að ræða,
heldur væri þetta markmiðið með
öllum þessum tilfæringum. Þetta
væri ekki eitthvað sem gerðist með
handahófskenndum hætti því þetta
væri eins og orkupólitíkin innan
Evrópusambandsins væri rekin.
Sæstrengur gerir Ísland óhreint
Þá kom ráðherrann inn á
athyglisverðan þátt sem einnig var
bent á í greininni í Bændablaðinu, en
það varðar hugmyndir um lagningu
sæstrengs fyrir raforkuflutning frá
Íslandi til Evrópu. Um það sagði
ráðherrann:
„Síðan eru önnur tæki þar sem
er verið að aðstoða þá sem eiga í
erfiðleikum með að ná þessum
markmiðum við að kaupa frekar
endurnýjanlega orku heldur en aðra
með því að gera hana ákjósanlegri.
Sæstrengsumræðan, til dæmis á
Íslandi eða í Evrópu, snýr að miklu
leyti að þessu. Þess vegna eru Bretar
og aðrir áfjáðir um að kaupa orku frá
Íslandi í gegnum sæstreng af því að
þá er þetta ekki bara á pappírnum. Þá
er þetta sannarlega hrein íslensk orka
sem er að koma í gegnum strenginn.
En þá er það líka það sem við verðum
að varast, þá getum við ekki lengur
sagt að við séum bara með hreina
orku. Þá værum við að fá aðra
orku hina leiðina með strengnum
sem getur verið upprunnin með
öðrum hætti en endurnýjanlegum
orkugjöfum.“
Einn hluti af sæstrengsmálinu
Bændablaðið spurði iðnaðar- og
viðskiptaráðherrann sérstaklega út í
þetta mál. Í erindi blaðsins var spurt:
− Mun ráðherra beita sér fyrir
því að umræðan um hreinleikaímynd
Íslands verði tekin upp og höfð til
hliðsjónar í viðræðum um sæstreng?
Ráðherra svaraði þessari spurn-
ingu svona:
„Það er stýrihópur að störfum sem
er að skoða hagkvæmni sæstrengs og
eitt af því sem við þurfum að meta
áður en endanleg afstaða er tekin
til sæstrengs er einmitt þetta atriði.“
Segir mikilvægt að fá
öll spilin á borðið
Ráðherrann var einnig spurður um
persónulegt mat sitt á ímyndarlegu
mikilvægi Íslands:
− Hvort metur ráðherrann
mikilvægara í þessu samhengi,
að viðhalda hreinleikaímynd
Íslands gagnvart umheiminum, eða
óljós hagnaðarsjónarmið vegna
hugsanlegrar sölu raforku um
sæstreng?
Þessu svaraði ráðherrann ekki
með afgerandi hætti en sagði:
„Ég tel mikilvægt að stýrihópurinn
ljúki störfum og að við fáum öll spilin
á borðið áður en ég svara spurningu
sem þessari. Þá munum við sjá betur
hvaða hag við hefðum af sæstreng og
ættum jafnframt að hafa á borðinu
hugsanlega galla við slíkt verkefni.“
Umhverfisráðherra vísar á
ummæli iðnaðarráðherra
Bændablaðið sendi umhverfis-
ráðherra fyrirspurn um afstöðu
ráðherrans til sölu orkufyrirtækja á
hreinleika- og upprunavottorðum á
orkuframleiðslu til útlanda. Ekki er
hægt að segja að svar ráðherrans hafi
verið afdráttarlaus um eigin afstöðu,
en það hljóðar svo:
„Skoða þarf hvort sala uppruna-
ábyrgða íslenskra orkufyrirtækja
undanfarin ár hefur neikvæð áhrif
á ímynd okkar sem lands sem
er í fararbroddi þegar kemur að
endurnýjanlegum orkugjöfum.
Sömuleiðis þarf að athuga hvort
og þá með hvaða hætti þetta
fyrirkomulag hefur neikvæð áhrif á
atvinnustarfsemi, eins og hugsanlega
í tilfelli garðyrkjubænda. Þess vegna
fagna ég því að iðnaðarráðherra hafi
tekið málið til skoðunar og láti nú
kanna í atvinnuvegaráðuneytinu
hvaða leiðir séu færar í þessum
efnum. Ráðherrann hefur í því
sambandi nefnt að kanna þurfi
möguleika á að orkufyrirtæki ríkisins
hætti að selja eiginleika orku og dragi
sig úr upprunavottunarkerfinu komi í
ljós að tekjur af sölunni séu litlar um
leið og of mikilvægum hagsmunum
sé fórnað. Ég bind vonir við athugun
atvinnuvegaráðuneytisins á málinu.“
Erum í raun og veru að taka
alveg gríðarlega áhættu
Viðar Garðarson, markaðsráðgjafi
hjá Markaðsmönnum.is, var einnig
fenginn í morgunþáttinn Í bítið til
að ræða þessi mál. Þar tók hann
mjög sterkt undir þau sjónarmið
að sala þessara hreinleikavottorða
væri að skaða Ísland og íslenska
hagsmuni. Fór ekkert á milli
mála hvernig hann lítur á þetta út
frá viðskiptalegum hagsmunum
Íslands. Viðar sagði m.a.:
„Það má segja að allt sem við
Íslendingar gerum tengist hreinleika
á einhvern hátt. Ferðamennskan
okkar byggir á hreinni náttúru.
Matvælaframleiðslan okkar er
hrein. Við erum að selja fisk í
stórum stíl erlendis úr hreinni
auðlind og menn geta bara rétt
ímyndað sér hvaða áhrif það
hefði ef það kæmist í hámæli
erlendis að orkuvottun okkar hér
á Íslandi væri að stórum hluta
byggð á jarðefnaeldsneyti og
kjarnorku. Það myndi hafa mjög,
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
allar þessar greinar. Mér sýnist að
orkufyrirtækin séu í raun og veru
í einhverjum exel-leik. Vissulega
eykur þetta tekjurnar þeirra, en
áhættan sem við erum að taka er
margföld þessi tekjuaukning. Við
erum í raun og veru að taka alveg
gríðarlega áhættu sem getur hitt
okkur mjög illa, svona seinna í
tímanum.“
Hann sagði að það væri mjög
einfalt til hvaða ráða ætti að grípa
gagnvart stærsta aðilanum í þessu
máli.
„Eigendur Landsvirkjunar, þ.e.
ríkisstjórn og ráðherra, þeir verða
bara að tukta svolítið til þessa
stjórnendur. Menn verða að gera
sér grein fyrir því að áhættan er
margfaldur ávinningurinn.“
Hann sagði að Íslendingar ættu
að vera stoltir af því að framleiða
græna umhverfisvæna orku því það
gæfi okkur samkeppnisforskot á
öllum sviðum gagnvart þeim sem
ekki eiga græna orku.
„Við eigum að nýta okkur þetta
að sjálfsögðu í útflutningi á öllu því
sem við erum að flytja út og við
eigum ekki að taka það í mál að það
sé hægt að selja þessar vottanir.“
Alvarleiki málsins fer því ekki
á milli mála í huga Viðars.
Sumartilboð Iðnvéla
- nú er loksins byrjað að hlýna fyrir alvöru!
Kynntu þér úrvalið á idnvelar.is
Rafstöð
69.826 kr.
Fjölnotasög
34.900 kr.
Hjólsög og sleðasög
með fínstillingu
46.600 kr.
Borðsög með bútsleða
og ristilandi
115.988 kr.
Geirungssög
38.991 kr.
Borvél á borði
48.201 kr.
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra.
Hart er barist fyrir sæstrengshugmyndinni, en enginn hefur svarað því hvar
eigi að fá alla orkuna og hverju sé vert að fórna fyrir slíka tengingu.