Bændablaðið - 09.07.2015, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
Árneshreppur á Ströndum:
Eitt versta vor um langt skeið
Valgeir Benediktsson í Árnesi 2 í
Árneshreppi hefur sinnt æðarvarpi
í Árnesey um langt skeið og segir að
liðið vor hafi verið eitt það versta
sem hann man hvað veður varðar.
Um miðjan maí hafi kólnað mikið,
jafnvel komið kolvitlaust veður og
ýmist rigning eða snjókoma og frost
verið um nætur um alllangt skeið.
Kollur hafi byrjað varpið um
hálfum mánuði seinna en venja er
til. „Það rættist þó úr þessu, manni
leist ekki vel á útlitið um tíma, en
það er enn ekki ljóst hvernig þetta
kemur nákvæmlega út hjá okkur,“
segir Valgeir. „Það er alltaf slæmt
þegar er mikil bleyta, það er slæmt
fyrir kollurnar þegar undirlagið er
blautt og við skiptum þá í hreiðrum
og setjum hey undir, það er heilmikil
vinna.“
Valgeir segir að sér þyki kollan
hafa verið betur undir varpið búin en
t.d. í fyrravor, sem gæti skýrst af því
að hún væri í meira æti og því feitari.
Eins væru fleiri egg í hreiðrum en var
á liðnu ári.
Minkasíur bjarga miklu
Varpið er sem fyrr segir úti í Árnesey
og þangað sótti á árum áður minkur í
nokkrum mæli, en hin síðari ár hefur
minna sést af honum. Þakkar Valgeir
það minkasíum sem settar hafa verið
upp í landi og varna því að minkurinn
syndi út í eyjuna. Sían er steypurör,
keila er á öðrum endanum og vírnet
hinum megin, en minkurinn villist
inni í rörinu. „Hér var alltaf töluvert
um mink, en sem betur fer erum
við laus við hann að mestu núna.
Okkar versti óvinur er veiðibjallan,
hún getur verið ansi stórtæk,“ segir
Valgeir. /MÞÞ
Bjarki búinn að taka dúninn úr hreiðrinu, en auðvitað er passað upp á að skilja nægilega mikið eftir til að vel fari um eggin og kolluna. Myndir / VB
Kollunni þótti greinilega ekki slæmt að láta Gauta strjúka á sér bakið.
Hér er Ásta að laga til í einu hreiðrinu.
Arney stendur sig greinilega vel við dúnsöfnunina.