Bændablaðið - 09.07.2015, Page 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
Hjá Líflandi færðu vetrarafbrigðin af
hveiti, rúgi, olíurepju og nepju.
V rar
Lynghálsi, Reykjavík
Óseyri, Akureyri Borgarbraut, Borgarnesi
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Dekkjainnflutningur
15% afsláttur af öllum dekkjum
til 31. júlí 2015
Eigum á lager flestar stærðir
traktora-, vagna-, vinnuvéla-
og vörubíladekkja.
Einnig mikið úrval fólksbíla-
og jeppadekkja.
33“-35“ jeppadekk í úrvali
á góðu verði.
Jason ehf.
Hafnarstræti 88
Akureyri
Vinsamlegast hafið samband við
Ármann Sverrisson 896-8462 e-mail jasondekk@simnet.is
Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124
Bændadagur Búnaðarsambands
Vestfjarða (BSV) var haldinn
á Bíldudal í tengslum við
bæjarhátíðina Bíldudals grænar
þetta árið.
Sáu félagsmenn úr Búnaðarfélagi
Barðarstrandarhrepps um skipu-
lagninguna. Bændadagurinn er
árlegur viðburður og flakkar á
milli bæjarhátíða innan starfssvæðis
BSV.
Sigmundur Hagalín Sigmunds-
son, bóndi á Látrum við
Ísafjarðardjúp, segir að á deginum
hafi verið margt um að vera. Þar
hafi meðal annars verið komið upp
smá húsdýragarði með svínum,
hænum og heimalningum. Þá
var börnum hleypt á hestbak
og teymt undir þeim, grillvagn
Landssambands sauðfjárbænda
var á svæðinu en hann hefur fylgt
deginum undanfarin ár. „Það er mat
manna að hátíðin hafi tekist í alla
staði mjög vel.“
Hvatningarverðlaun Búnaðar-
sambandsins voru veitt á deginum
eins og síðustu ár, að þessu sinni urðu
fyrir valinu ábúendur á Reykhólum,
Svanhildur Sigurðardóttir og Tómas
Sigurgeirsson, en þau hafa bryddað
upp á nýjungum í ferðaþjónustu í
Reykhólasveit með því m.a. að
bjóða upp á þaraböð.
Búnaðarsamband Vestfjarða:
Bændadagur á Bíldudals grænum
Afhending hvatningarverðlauna BSV 2015. Helga Dóra Kristjánsdóttir,
gjaldkeri Búnaðarsambands Vestfjarða, afhendir Margréti Hjartardóttur
verðlaunin fyrir hönd ábúendanna á Reykhólum.
Hrútar tilnefnd LUX Film Prize
− fyrsta íslenska myndin sem er tilnefnd
Tilkynnt var um 10 evrópskar
kvikmyndir sem tilnefndar
eru til kvikmyndaverðlauna
Evrópusambandsins, LUX-
verðlaunanna, árið 2015 á
kvikmyndahátíðinni Karlovy Vary
í Tékklandi fyrir skömmu.
Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk
kvikmynd er tilnefnd til verðlaunanna
sem hafa verið veitt frá árinu
2007. Þrjár af þessum 10 myndum
komast svo áfram í undanúrslit,
verða sýndar á Feneyjahátíðinni,
þýddar og textaðar á öll 24 opinber
tungumál Evrópusambandsins og
sýndar í öllum 28 aðildarríkjunum.
Sigurvegari verður svo kunngjörður
í lok árs. Í fréttatilkynningu vegna
tilnefningarinnar segir Grímur
Jónsson, framleiðandi Hrúta:
„Ég verð að viðurkenna að ég
vissi ekki um þessi verðlaun fyrr
en ég fékk sendar upplýsingar um
að Hrútar væru tilnefndir og ég átta
mig betur á því núna hvað er í húfi
og hversu merkilegt þetta er. Það
eru allir að óska okkur Grími til
hamingju hérna úti og manni líður
hálfpartinn eins og maður hafi verið
að vinna eitthvað bara við það eitt að
vera tilnefndur. Það væri magnað að
komast áfram í 3 mynda úrslit og það
verður ljóst eftir 2 vikur. Sjö, níu,
þrettán.“ /VH