Morgunblaðið - 29.08.2015, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.08.2015, Qupperneq 18
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Tryggingafélögin þrjú sem skráð eru á aðallista Kauphallarinnar skiluðu samanlagt tæplega 3,4 milljarða hagnaði á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Samanlagður hagnaður þeirra er því rúmlega 100% meiri en yfir sama tímabil í fyrra, en þá nam hagnaður þeirra allra 1.671 milljón króna. Félögunum hefur öllum gengið betur að ávaxta bótasjóði sína það sem af er ári miðað við það sem reyndin varð í fyrra og hefur sú þró- un leitt til aukins hagnaðar þrátt fyr- ir aukinn tjónaþunga hjá þeim öllum og aukinn rekstrarkostnað í tilfelli TM og VÍS. Sjóvá gat eitt félaga sýnt fram á lækkun rekstrarkostnaðar milli ára og dróst hann saman um lið- lega 110 milljónir króna. Fjárfestingar gengu vel Fjárfestingatekjur jukust mest hjá Sjóvá, en þær hækkuðu um rúm 676% frá árinu 2014. Í því sambandi verður að taka tillit til þess að af- koma félagsins var óviðunandi á sam- anburðartímabilinu í fyrra. Nú reyndust fjárfestingatekjurnar rétt rúmir tveir milljarðar og fóru þær úr 257 milljónum árið 2014. Í tilfelli VÍS fóru fjárfestingatekjurnar úr 663 milljónum í 2.065 milljónir, en það samsvarar um 211% aukningu milli ára. Fjárfestingastarfsemi TM hafði skilað mestu á árinu 2014, eða rúm- um 1.017 milljónum, en við uppgjör fyrri hluta þessa árs reyndust tekj- urnar 1.453 milljónir rúmar. Það fól í sér aukningu um 43% milli ára. Arnar Ingi Jónsson hjá hagfræði- deild Landsbankans segir að þrátt fyrir aukinn tjónaþunga hafi upp- gjörin komið vel út. „Sérstaklega verður þar að líta til hagfelldrar þróunar á innlendum hlutabréfamarkaði, en hann skilar félögunum góðri ávöxtun og tryggir gott uppgjör,“ segir Arnar Ingi. Þá jukust iðgjaldatekjur hjá öllum félögunum þremur. Eigin iðgjalda- tekjur TM jukust um 8,6% milli ára. Hjá VÍS nam aukningin um 4,2% og hjá Sjóvá jókst hún um 5,4%. Arðsemi eigin fjár á ársgrunni kemur vel út hjá félögunum en er þó sýnu lægri hjá TM en hinum tveim- ur. Þannig reyndist arðsemin 18,7% hjá VÍS og 16,7% hjá Sjóvá en 9% hjá TM. Tjónakostnaður eykst Tjónakostnaður félaganna þriggja jókst umtalsvert. Mest varð aukning- in hjá TM, þar sem hann jókst um tæpar 1.300 milljónir milli ára. Hjá VÍS fór hann upp um 666 milljónir og hjá Sjóvá um réttar 973 milljónir. Öll hafa félögin vísað til þeirrar ótíðar sem landsmenn fengu að kynnast í vetur, en hún náði hámarki 14. mars síðastliðinn þegar gríðarlega kröpp lægð gekk yfir landið. VÍS hefur sér- staklega gefið út að 3,7 prósentustig í samsettu hlutfalli félagsins megi rekja beint til þessa tiltekna óveðurs- dags. Þá kom fram í máli Sigrúnar Rögnu Ólafsdóttur, forstjóra félags- ins, á fundi með fjárfestum að félagið greindi gríðarlega aukningu bílrúðu- tjóna, sem mætti að öllum líkindum rekja til slæms ástands vega víða um landið. Samsetta hlutfallið óhagstætt Öll horfðu félögin upp á nokkra hækkun samsetts hlutfalls, sem er hlutfall rekstrar- og tjónskostnaðar af þeim iðgjaldagreiðslum sem þau innheimta. Engu þeirra tókst að halda því undir 100%. Sjóvá komst næst því; þar lá hlutfallið í 102,5% en lækkun rekstrarkostnaðar hefur komið í veg fyrir að það færi enn hærra. Hjá VÍS var hlutfallið 104,5% en hafði verið rétt innan við 100% á viðmiðunartímabilinu í fyrra. Hjá TM rauk hlutfallið hins vegar upp og endaði í 111,5%. Arnar Ingi telur að líkur standi til að samsetta hlutfallið muni að nýju leita í jafnvægi. „Tjón á fyrri helmingi ársins voru óvenju mikil og það er ekki endilega að búast við svo háu hlutfalli á næstu fjórðungum. Það má búast við því að samsetta hlutfallið lækki á komandi mánuðum,“ segir Arnar Ingi, sem telur þó ósennilegt að þau muni ná markmiðum sínum hvað varðar hlut- fallið á þessu ári. Tryggingafélögin högnuðust um 3,4 milljarða á fyrri hluta ársins Hagnaður félaganna á fyrstu 6 mánuðum þessa árs og í fyrra Heimild: Árshlutauppgjör félaganna 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 120% 100% 80% 60% 40% 20% 0% 6 m. 2014 6 m. 2015 Samsett hlutfall á hægri ás 1.419 104,5% 102,5% 111,5% 1.380 554 milljónir 451 205 1.015  Hagnaður Sjóvár og VÍS eykst en dregst saman hjá TM  Samsett hlutfall versnar 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015                                      !"! #!$ ### # " %#" "$! !##   &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 !! !  $#  $% ##% #% % %% " ! $  #%  ! $$ #% #" #% % $ "$ !"  #$# $%  Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hækkun vaxtaálags í Evrópu vegna óróa á mörkuðum hefur leitt til hækk- unar vaxtaálags fyrirtækjaskuldabréfa í krónum hér á landi. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri útgáfu frá IFS grein- ingu um mat á vaxtaálagi fyrirtækja- skuldabréfa sem gert er út frá lánshæfiseinkunnum Reitunar. Í matinu segir að bjartsýni sé á að hækkun vaxtaálagsins geti gengið til baka og rúmlega það. Þá sé vænst góðrar eftirspurnar á ný eftir sumarfrí bæði í evrum og krónum sem setur þrýsting til lækkunar. IFS greining er með áform um að leggja reglulega mat á vaxtaálag fyrir helstu einkunnarflokka Reitunar. Vænta lægra vaxtaálags fyrirtækjaskuldabréfa ● Nýskráningum einkahlutafélaga síð- ustu 12 mánuði fram til júlí á þessu ári hefur fjölgað um 11% í samanburði við 12 mánuði þar á undan, samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Á tíma- bilinu voru skráð 2.219 ný félög. Mest fjölgaði nýskráningum í bygginga- starfsemi og mannvirkjagerð, um 38% á síðustu 12 mánuðum. Gjaldþrotum einkahlutafélaga hefur fækkað á sama tímabili um 15%, en 719 fyrirtæki voru tekin til gjald- þrotaskipta. Fjölgun í skráningu einkahlutafélaga STUTTAR FRÉTTIR ... Hagnaður Samherja á síðasta ári var rúmir 11 milljarðar króna, sem er helmingur þess hagnaðar sem var árið á undan. Rekstrartekjur félags- ins drógust saman en þær voru rúm- ir 78 milljarðar króna á síðasta ári í samanburði við 89 milljarða árið á undan. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 16 milljarðar króna, samanborið við 25 milljarða árið á undan. Á vef félagsins kemur fram að það ár hafi verið 8,1 millj- arðs króna söluhagnaður og því sé afkoma af reglulegri starfsemi svip- uð og árið á undan. Eignir í lok árs voru 116 milljarðar króna. Skuldir voru 41 milljarður og eigið fé því 75 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall hækkaði og var 64,8% um áramótin í samanburði við 58,5% ári fyrr. Arðgreiðsla til hlut- hafa verður 1,4 milljarðar króna fyrir síðasta ár í samanburði við 3,3 milljarða króna arðgreiðslu vegna ársins á undan. Fjárfestingar ársins voru 9,4 milljarðar króna, meðal annars vegna nýsmíði fiskiskipa fyrir 2,2 milljarða króna og kaupa á aflaheim- ildum fyrir 2,1 milljarð. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir á vef fyrir- tæksins að árið 2014 hafi farið illa af stað og fyrri helmingur ársins hafi ekki gefið tilefni til bjartsýni varð- andi reksturinn en á seinni árshelm- ingi hafi tekist að veiða og nýta vel þær heimildir sem samstæðan hafi yfir að ráða og afurðaverð hafi farið hækkandi. „Rekstrarafkoma ársins er því mjög sambærileg árinu áður sem ég get ekki annað en verið ánægður með.“ Á vef Samherja kemur fram að fé- lagið greiddi 2,6 milljarða króna í tekjuskatt og 900 milljónir í veiði- leyfagjald vegna síðasta rekstrarárs. Morgunblaðið/RAX Samherji Þorsteinn Már Baldvins- son er sáttur við rekstur síðasta árs. Hagnaðist um 11 milljarða í fyrra  Rekstrartekjur Samherja drógust saman milli ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.