Morgunblaðið - 29.08.2015, Side 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
● Hagnaður Símans nam 1,3 millj-
örðum króna á fyrri helmingi ársins,
sem er sami hagnaður og fyrstu sex
mánuðina í fyrra. Sala fyrirtækisins
dróst saman á milli ára um 4,4% og
skýrist það meðal annars af sölu á
dótturfyrirtæki í Danmörku í fyrra.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBIDTA) nam 4,0 millj-
örðum króna og breyttist lítið á milli
ára. EBIDTA-hlutfall var 27,5%.
Eiginfjárhlutfall Símans var 50,7% um
mitt árið og eigið fé 31,2 milljarðar.Gert
er ráð fyrir því að Síminn verði skráður í
Kauphöllina á fjórða ársfjórðungi.
Morgunblaðið/Golli
Síminn Orri Hauksson er forstjóri Símans.
Afkoma Símans svipuð
á fyrri helmingi ársins
Hagnaður Eimskipafélags Íslands var
5,5 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi,
sem jafngildir um 804 milljónum
króna. Þetta er 20% aukning miðað við
annan fjórðung síðasta árs. Rekstr-
artekjur voru 16,2% meiri á fjórð-
ungnum en á sama árshluta í fyrra og
námu þær 126,6 milljónum evra, eða
sem samsvarar 18,5 milljörðum króna.
Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagsliði
og skatta, EBITDA, nam 13,3 millj-
ónum evra, en EBITDA-hagnaður var
11,0 milljónir evra á öðrum fjórðungi
2014. Flutningsmagn á öðrum fjórð-
ungi jókst milli ára um 6,9% í áætlana-
siglingum og um 20,5% í frystiflutn-
ingum.
Hagnaður Eimskips á fyrri helm-
ingi ársins var samtals 7,0 milljónir
evra, eða liðlega milljarður króna.
Hagnaðurinn á fyrri helmingi síðasta
árs var 3,8 milljónir evra og batnar af-
koman því um 85% á milli ára.
Rekstrartekjur á fyrstu sex mánuð-
unum hafa aukist um 12,2% miðað við
sama árshluta í fyrra og námu sam-
tals 239,3 milljónum evra, eða tæp-
lega 35 milljörðum króna.
Ársáætlun endurskoðuð
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips,
segir að rekstrartekjur og EBITDA á
fjórðungnum séu þær hæstu frá end-
urskipulagningu félagsins árið 2009.
„Flutningsmagn í áætlunarsiglingum
félagsins hefur vaxið umfram vænt-
ingar það sem af er þriðja ársfjórð-
ungi,“ segir Gylfi. „Rekstur félagsins
tengdur Íslandi hefur verið góður það
sem af er ári og er gert ráð fyrir áfram-
haldandi vexti. Afkoma af starfsemi
Eimskips í Noregi var undir vænt-
ingum á fyrsta ársfjórðungi vegna veð-
urfars og aflabrests en afkoman var
mun betri á öðrum ársfjórðungi og er
áfram gert ráð fyrir vexti.“
Stjórnendur félagsins hafa endur-
skoðað ætlun um EBITDA-hagnað
ársins 2015 og hefur hún verið hækk-
uð úr 39-44 milljónum evra í 41-45
milljónir evra.
Morgunblaðið/Ómar
Eimskip Gylfi Sigfússon forstjóri segir rekstrarafkomu annars ársfjórð-
ungs þá bestu á einum fjórðungi frá endurskipulagningu félagsins.
Hagnaður Eimskips 85%
meiri á fyrri árshelmingi
Flutningamagn jókst umtalsvert á öðrum ársfjórðungi
Ógagnsæ og óljós uppsetning
verðskráa og vaxtataflna stóru við-
skiptabankanna á íslenskum fjár-
málamarkaði gerir það að verkum að
erfitt er fyrir neytendur að leita að
þeim upplýsingum sem þeir þurfa á
að halda hverju sinni. Verðskrár og
vaxtatöflur Arion banka, Íslands-
banka og Landsbanka eru samanlagt
12 talsins og um 45 blaðsíður að lengd
ásamt því að telja yfir fleiri hundruð
liði. Þetta kemur fram í grein Þráins
Halldórs Halldórssonar, sérfræðings
á eftirlitssviði FME, í nýju tölublaði
Fjármála.
Í grein Þráins kemur fram að á
meðan því fylgi kostnaður að afla sér
upplýsinga verði svigrúm til aukinnar
álagningar. Þá sé til staðar hvati fyrir
fjármálafyrirtæki til að auka álagn-
ingu sína, svo lengi sem hún haldist
undir upplýsingakostnaði neytenda.
Einnig kemur fram að með tilkomu
þjónustugjalda sem áður voru óþekkt
á íslenskum fjármálamarkaði sé lík-
legt að þetta vandamál hafi stækkað.
Verðskrár stærstu viðskiptabankanna
Heimild: Fjármálaeftirlitið
Verðskrá Vaxtatöflur Lengd
Arion banki 3 2 17 bls.
Íslandsbanki 3 1 15 bls.
Landsbankinn 2 1 13 bls.
Samtals 8 4 45 bls.
Vaxtatöflur og
verðskrár 45 síður
TWIN LIGHT GARDÍNUR
Láttu sólina ekki
trufla þig í sumar
Betri birtustjórnun
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 10-18
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk
framleiðsla
eftir máli
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á ÍslandiFæst í öllum helstu raftækjaverslunum
Allt í eldhúsið frá