Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
mbl.is/askriftarleikur
Fylgstu með og sjáðu hvað Morgunblaðið
hefur að geyma fyrir heppinn áskrifanda
22. október þegar við drögum út
vinning að verðmæti 5.440.000 kr.
FRÉTTASKÝRING
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
„Hún var daprasta brúður sem ég
hef séð á ævi minni,“ sagði ljósmynd-
arinn Allison Joyce sem myndaði í
síðustu viku brúðkaup hinnar fimm-
tán ára gömlu Nasoin Akhter og hins
32 ára gamla Mohammad Hasamur
Rahman, í borginni Manikganj í
Bangladesh, en Joyce er með aðset-
ur í höfuðborginni, Dhaka.
Í Bangladesh er hæsta hlutfall
barnabrúðkaupa í heiminum, á eftir
Niger, Mið-Afríkulýðveldinu og
Tjad, eftir því sem kemur fram í
gögnum UNICEF. Á tímabilinu
2005-2013 voru 29% bangladeskra
stúlkna gift fyrir fimmtán ára aldur
og 65% fyrir 18 ára aldur. Þrátt fyr-
ir fögur loforð ráðamanna um að
fækka barnabrúðkaupum virðast
þau vinsælli en nokkru sinni fyrr í
landinu.
„Samkvæmt hefðinni á brúðurin
að vera feimin og hlédræg í brúð-
kaupinu en ég tók eftir depurð, ótta
og óvissu þegar hún var stödd í her-
berginu sínu ásamt vinum sínum fyr-
ir athöfnina eða á snyrtistofunni með
systur sinni, sem var líka gift á sama
aldri. Hún var hlédræg og þögul,“
sagði Joyce í samtali við The Wash-
ington Post.
Þó svo að brúðkaup Nasoin Ak-
hter sé ólögmætt að nafninu til í
Bangladesh, er lögum sem banna
barnahjónabönd sjaldan framfylgt.
Það vakti athygli Joyce, að fjöl-
skylda stúlkunnar var alls ekki fá-
tæk. „Það sem kom mér mest á óvart
var að fjölskylda hennar er afar auð-
ug. Oft er sagt að helsta orsök barna-
brúðkaupa sé fátækt en faðir stúlk-
unnar er auðugur kaupsýslumaður
sem á fjölmörg tveggja hæða hús.
Um tvö þúsund manns var boðið í
brúðkaupið. Mörg hundruð kjúkling-
um og tylft stórra kúa var slátrað til
að fæða gestina,“ sagði hún.
Ætlaði sér að verða kennari
Joyce hefur myndað fleiri barna-
brúðkaup í landinu. Ein brúðanna,
hin fjórtán ára gamla Mousammat
Akhi Akhter, hafði sagst vilja bíða
með að giftast þar til hún yrði eldri,
þegar hún var gift hinum 27 ára
gamla Mohammad Sujon Mia í fyrra.
Þrýstingur samfélagsins og hefðir
hafa mikil áhrif og því ákváðu for-
eldrar Mousammat að gifta hana
strax eftir sjötta bekk grunnskóla.
„Fyrir brúðkaup sitt áttu þær sér
drauma. Þær elskuðu báðar að vera í
skóla og höfðu væntingar um fram-
tíðina. Eftirlætisfag Akhi var stærð-
fræði og hún ætlaði að verða kenn-
ari, eða þar til hún var gift þrettán
ára að aldri,“ greinir Joyce frá og
bætir við: „Hún sagði að faðir henn-
ar hefði verið hlynntur því að hún
fengi menntun. Móðir hennar sá
ekkert að barnahjónaböndum enda
væru þau hefð í þorpinu og samfélagi
þeirra og því væri það best fyrir
hana að giftast. Stúlkan sagði mér að
hún væri hrædd, að hún væri ekki
tilbúin til að giftast,“ segir Joyce.
Rannsóknir hafa sýnt að stúlkur á
aldrinum 10-14 ára eru fimm sinnum
líklegri til að látast af barnsförum en
mæður á aldrinum 20-24. Einnig
hafa rannsóknir sýnt að því mennt-
aðri sem bangladeskar konur eru,
því ólíklegra er að þær giftist á unga
aldri. Loks hefur verið sýnt fram á,
að stúlkur sem eru giftar fyrir fimm-
tán ára aldur eru mun líklegri til að
upplifa ofbeldi af hálfu maka sína en
konur sem giftast eftir 25 ára aldur.
Þetta kemur allt fram í skýrslu
Mannréttindavaktarinnar frá mars á
þessu ári.
Ljósmynd/Wikigender.org
Barnabrúðkaup Rannsóknir sýna að stúlkur á aldrinum 10-14 ára eru fimm sinnum líklegri til að deyja af barnsfötum en 20-24 ára konur.
Draumar verða að engu
„Daprasta brúður sem ég hef séð,“ segir bandarískur ljósmyndari sem myndar
barnabrúðkaup Fjórða hæsta hlutfall barnabrúðkaupa í heiminum í Bangladesh
Nemandi í Ríkisháskólanum í Sav-
annah í Georgíufylki í Bandaríkj-
unum lést í gærmorgun af sárum
sínum, en hann var skotinn í gær í
nágrenni við húsakynni nemenda-
félags skólans. Nemandinn hét Chri-
stopher Starks, var tuttugu og
tveggja ára, var frá Atlanta og hæfi-
leikamaður í fótbolta. Hann mun
hafa verið skotinn eftir rifrildi fyrir
utan bar á vegum skólafélagsins.
Hann var eina fórnarlambið í árás-
inni.
Enginn hefur verið handtekinn
vegna málsins enn sem komið er en
rannsókn stendur yfir. Kennsla
hófst síðar en vanalega í gær og sál-
fræðingur veitti nemendum áfalla-
hjálp og ráðgjöf.
Háskólanemi
skotinn til bana
Nemandi Christopher Starks.
Að minnsta kosti fjórir eru látnir og
fjölmargra er leitað eftir að hita-
beltisstormurinn Erika herjaði á Pú-
ertó Ríkó í gær. Aurskriður eru
sagðar hafa grandað fólkinu.
Stormurinn var um 250 kílómetr-
um suðaustur af Santo Domingo í
Dóminíska lýðveldinu og færði sig í
vesturátt á ógnarhraða, ef marka má
frétt NY Times um málið.
Vindstyrkur stormsins fór upp í
85 kílómetra á klukkustund þegar
mest lét. Yfirvöld í Púertó Ríkó hafa
lokað vegum á sumum svæðum af
ótta við skriður og leitarsveitir leita
nú fólks sem saknað er.
brynja@mbl.is
AFP
Erika Vindstyrkur fór í 85 km/klst.
Stormur í
Púertó Ríkó