Morgunblaðið - 29.08.2015, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
Reykjavíkurborg
Reykjavík City grants
Granty Miasta Reykjavík
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum
um styrki vegna starfsemi á árinu 2016. Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til
samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í
samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir
til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningarmála
• markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð
• hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf
• hvort unnt sé að meta framvindu verksins
• hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur
• væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi
• fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn
Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um
styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun nefnda og ráða verði lokið í ársbyrjun 2016.
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má
senda á netfangið: styrkir@reykjavik.is
More information: styrkir@reykjavik.is
Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is
Styrkir
Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/styrkir
www.reykjavik.is
Áwww.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli. Einnig er
þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum
málaflokkum. Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 á hádegi 1. október nk. og eru einungis teknar til
greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur
Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og
mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki
styrkt eftir á. Þá eru styrkir allajafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu
fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi:
Ungverska lögreglan handtók í
gær fjóra í kjölfar þess að vörubíll
fannst í fyrradag í Austurríki,
nærri ungversku landamærunum,
yfirfullur af líkum.
Morgunblaðið fjallaði um lík-
fundinn í gær en nýjustu fréttir
herma að líkin séu 71 talsins, að öll-
um líkindum af sýrlensku flótta-
fólki, en réttarmeinafræðingar
unnu alla aðfaranótt föstudags við
að reyna að greina líkin.
Þrír hinna handteknu eru Búlg-
arar en sá fjórði er Afgani.
Meðal fórnarlambanna voru 59
karlmenn, átta konur og fjögur
börn. Eitt barnanna var stúlka á
aldrinum eins til tveggja ára. Talið
er að fólkið hafi verið látið í tvo
daga þegar það fannst og að það
hafi þegar verið látið þegar vöru-
bíllinn fór frá Ungverjalandi til
Austurríkis. Yfirvöld í Austurríki
segja fólkið að öllum líkindum hafa
kafnað inni í vörubílnum. Ferða-
gögn sem fundust í bílnum benda til
þess að fólkið hafi verið frá Sýr-
landi. brynja@mbl.is
Fjórir handteknir
vegna líkfundarmáls
AFP
Til rannsóknar Vörubíllinn þar sem 71 lík fannst, á mörkum Austurríkis og Ungverjalands í fyrradag.
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Óttast er um afdrif tvö hundruð
manns eftir að tveir bátar sukku
undan ströndum Líbíu sl. fimmtu-
dag, yfirfullir af flóttafólki. Á öðrum
bátnum voru um hundrað farþegar
en 400 á hinum. Fulltrúi Rauða hálf-
mánans í Líbíu sagði 82 lík hafa skol-
að á land og 198 hefði verið bjargað.
Um 200 manns er enn saknað, eftir
því sem kemur fram í fréttum BBC
um málið.
Sukku bátarnir við strendur
borgarinnar Zuwarah, en hún er
brottfarastaður fjölmargra farand-
og flóttamanna sem reyna að komast
yfir Miðjarðarhafið í átt til Evrópu,
yfirleitt í var haffærum bátum, í von
um betra líf. Mannfallið sl. fimmtu-
dag er sagt með því mesta í sumar.
Yfir 300 þúsund manns eru sögð
hafa reynt að komast yfir hafið í ár
og um 2.400 hafa látist á leiðinni, eft-
ir því sem kemur fram í gögnum
Flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Yfir 100 þúsund hafa kom-
ið að landi á Ítalíu og 160 þúsund í
Grikklandi.
AFP
Líbýa Hluti fólksins sem var bjargað undan ströndum Zuwarah.
Yfirfullir bátar
sökkva við Líbýu
Fyrrverandi preláti í kaþólsku kirkjunni sem hafði
verið sviptur kjóli og kalli vegna gruns um barnaníð
fannst látinn í Vatíkaninu í gær, 67 ára að aldri. Hann
hét Jozef Wesolowski og hafði verið í stofufangelsi á
meðan beðið var eftir réttarhöldum í máli hans. Til
stóð að réttað yrði yfir honum í Vatíkaninu þann 11.
júlí sl. vegna gruns um barnaníð og vörslu gífurlegs
magns af barnaklámi en þann sama dag var hann
lagður inn á spítala vegna skyndilegra veikinda. Þá
var réttarhöldunum seinkað og hann settur í stofu-
fangelsi, þar til hann dó af eðlilegum orsökum.
VATÍKANIÐ
Meintur barnaníðingur finnst látinn
Yfir þriggja vikna hátíðarhöld standa nú yfir í
Indlandi til að fagna því að fimmtíu ár eru liðin
frá sigri landsins í stríðinu við Pakistan. Forseti
Indlands, Pranab Mukherjee, lagði í gær blóm-
sveig við minnismerki píslarvotta í Delhí. Um
svipað leyti var tilkynnt að átta óbreyttir borg-
arar hefðu fallið í Kasmír-héraði þar sem Ind-
verjar og Pakistanar skiptust á skotum. Bæði rík-
in gera tilkall til héraðsins og því hafa deilur
verið reglulegar í yfir 60 ár.
INDLAND
Indverjar fagna 50 ára stríðslokaafmæli