Morgunblaðið - 29.08.2015, Page 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
Guðmunda fór í gegnum
krabbameinsmeðferð árið 2010 og
náði sér ótrúlega fljótt. Hún
greindist aftur með krabbamein
nú í ágúst og lést þann 15. ágúst,
aðeins fjórum mánuðum eftir lát
eiginmannsins, Ólafs Guðmunds-
sonar.
Það eru margir sem missa mik-
ið við fráfall Guðmundu, börnin og
fjölskyldur þeirra, bræður, skyld-
fólk og vinir sem sjá á eftir ósér-
hlífni, traustri og góðri konu.
Margir hafa notið velvilja og um-
hyggu Guðmundu og Óla, búið
heima hjá þeim, verið velkomnir í
mat og gistingu, fengið ýmsa fyr-
irgreiðslu, þegið fallega handa-
vinnu frá Guðmundu og margt
fleira væri hægt að telja upp. Ég á
eftir að sakna félagsskapar Guð-
mundu mikið því við vorum búnar
að ræða um kaffihúsaferðir, fara á
námskeið hjá Sjávarleðri og
fleira, eða þegar um hægðist eftir
sumarið. En enginn veit sína ævi
fyrr en öll er.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég þakka Guðmundu góða sam-
veru og samstarf á liðnum árum.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Þórunn Bernódusdóttir.
Stutt er síðan ég sat og rifjaði
upp kynni mín af þeim heiðurs-
hjónum Mundu og Óla, þá sat ég
og skrifaði minningargrein um
Óla skip.
Aðeins rúmir fjórir mánuðir
hafa liðið. Óli fór á undan, kom sér
fyrir og undirbjó komu elskunnar
sinnar.
Hann var örugglega farinn að
sakna hennar eftir þessa fjóra
mánuði og hefur ákveðið að nú
væri kominn tími til að sækja
hana. Þau sitja nú saman og
spjalla við ástvini um það sem á
daga þeirra hafði drifið frá því þau
hittust síðast.
Munda var einstök manneskja.
Fáum manneskjum hef ég kynnst
á lífsleiðinni sem eru eins hjálp-
samar og bóngóðar. Hún var hús-
móðir af lífi og sál og féll aldrei
verk úr hendi, ef hún var ekki að
elda, sauma, þrífa eða vinna önnur
heimilisverk heima hjá sér var
hún að þrífa fyrir aðra.
Munda hafði mjög gaman af
allskonar handavinnu og hand-
verki og var snillingur í höndun-
um.
Ekki var óalgengt að kostgang-
arar væru í mat og jafnvel gist-
ingu á Sólarveginum og það er
óhætt að segja að það jafnaðist á
við margra stjörnu hótel að gista
hjá Mundu og Óla.
Mér er minnisstætt þegar ég
var fyrstu áramótin mín á heimili
þeirra hjóna, þar var margt um
manninn, börn og tengdabörn.
Húsmóðirin stóð í eldhúsinu allan
daginn og reiddi fram hvern rétt-
inn á fætur öðrum, hver og einn
skyldi fá sinn uppáhaldsmat.
Þetta þýddi að aðalréttirnir voru
nokkuð margir.
En Munda hafði gaman af og
elskaði að hafa margt fólk í kring-
um sig og stjana við það.
Þegar þau Munda og Óli eign-
uðust húsbílinn var lítið stoppað
og keyrt um landið þvert og endi-
langt, stundum vestur að hitta
ættingja og vini, stundum bara að
elta veðrið og sólina. Ferðalögin á
húsbílnum voru áhugamál sem
þau áttu sameiginlegt og höfðu
mjög gaman af.
Munda var amma eins og ömm-
ur eiga að vera, elskaði barna-
börnin sín skilyrðislaust og gerði
allt fyrir þau. Hún gat setið enda-
laust með barnabörnin og síðar
langömmustrákana í fanginu og
lesið hverja bókina á fætur ann-
arri eða leikið við þau. Barnabörn-
in sóttu mjög í heimsókn, gistingu
eða að fá að fara rúntinn með afa
og ömmu. Oft var farið í lengri
ferðalög t.d. á húsbílnum og eitt-
hvað af barnabörnunum tekið
með. Ester og Munda amma voru
alla tíð sérstakar vinkonur og þeg-
ar yngri systurnar bættust í hóp-
inn var oft ágætt að eiga skjól í ró-
legheitunum hjá ömmu.
Fastir liðir á veturna hjá stelp-
unum mínum voru að fara til
Mundu ömmu í frímínútum með
vini sína með sér og þar beið kakó
og bakkelsi af bestu sort. Ég veit
að Munda saknaði þess þegar þær
uxu úr grasi og kláruðu grunn-
skólann.
Mikill er missir ömmu-
barnanna. Þau hjónin voru bæði
mikið barnafólk og höfðu mikla
ánægju af að hafa börn í kringum
sig.
Krakkar hændust mjög að
þessari góðu ömmu í Mýrinni og
var vinsælt að banka uppá hjá
Mundu og kíkja í heimsókn.
Missirinn að Guðmundu Sigur-
brandsdóttur er mikill en hún var
manneskja sem gaf svo miklu
meira af sjálfri sér en flestum er
unnt.
Ég þakka Mundu góða vináttu
og samfylgd. Minningin um ynd-
islega ömmu, langömmu og vin-
konu lifir.
Aðstandendum og vinum öllum
votta ég mína dýpstu samúð.
Helga.
Guðmunda starfaði hér í
Leikskólanum Barnabóli um
langt árabil, hér var hún vakin og
sofin yfir velferð ungra vina sinna
og ekki síst starfsfólksins sem
með henni vann.
Hér gekk hún í öll störf, gekk
rösklega til verks og vann verk sín
af dugnaði og eljusemi.
Við hér á Barnabóli þökkum
Guðmundu kærlega fyrir sam-
fylgdina í gegnum árin, ástvinum
hennar sendum við okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Við kveðjum Guðmundu með
ljóðlínum Ómars Ragnarssonar
um íslensku konuna:
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að
sér.
Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf
þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf.
Hún er íslenska konan, sem ól þig og
þér helgaði sitt líf.
Með landnemum sigldi’hún um svarr-
andi haf.
Hún sefaði harma. Hún vakti’er hún
svaf.
Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð.
Hún var íslenska konan, sem allt á að
þakka vor þjóð.
Ó! Hún var ambáttin hljóð.
Hún var ástkonan rjóð.
Hún var amma, svo fróð.
Ó! Athvarf umrenningsins,
inntak hjálpræðisins,
líkn frá kyni til kyns.
Hún þraukaði hallæri, hungur og fár.
Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár.
Hún enn í dag fórna sér endalaust má.
Hún er íslenska konan, sem gefur þér
allt sem hún á.
Ó, hún er brúður sem skín!
Hún er barnsmóðir þín
eins og björt sólarsýn!
Ó! Hún er ást, hrein og tær!
Hún er alvaldi kær
eins og Guðsmóðir skær!
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold.
Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöld-
ur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og
gaf þér sitt líf.
En sólin, hún sígur, – og sólin, hún rís,
og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís,
sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf:
Það er íslenska konan, – tákn trúar og
vonar,
sem ann þér og þér helgar sitt líf.
(Ómar Ragnarsson.)
Hinsta kveðja frá samstarfs-
fólki í Leikskólanum Barnabóli,
Guðlaug Grétarsdóttir.
✝ Bergljót Þór-arinsdóttir
fæddist á Hjarð-
arbóli í Fljótsdal
7. desember 1950.
Hún lést á
hjúkrunar-
heimilinu Dyngju,
Egilsstöðum 20.
ágúst 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Þórarinn
Bjarnason, f. 7.8.
1922 í Reykjavík, d. 21.2. 1994
í Neskaupstað, bóndi á Hjarð-
arbóli í Fljótsdal og Ingibjörg
Gunnarsdóttir, f. 13.3. 1926 á
Egilsstöðum í Fljótsdal, d.
24.7. 1990 á Egilsstöðum, hús-
freyja.
Maki Bergljótar er Gunnar
Jónsson, bóndi á Egilsstöðum í
Fljótsdal, f. 18.11. 1948. Synir
þeirra eru Gunnar, f. 10.7.
1984 og Egill, f. 4.10. 1988.
Bróðir Bergljótar er Gunnar,
f. 17.8. 1955, bóndi á Hjarð-
arbóli í Fljótsdal.
Bergljót ólst
upp á Hjarðarbóli
í Fljótsdal. Þar
gekk hún í öll al-
menn sveitastörf.
Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Al-
þýðuskólanum að
Eiðum vorið 1968
og samvinnuskóla-
prófi frá Bifröst
árið 1971. Að
námi loknu starf-
aði hún hjá Kaupfélagi Hér-
aðsbúa á Egilsstöðum og var
þar um skeið skrifstofustjóri.
Árið 1984 fluttist hún í Egils-
staði í Fljótsdal þar sem hún
stundaði búskap með manni
sínum, Gunnari.
Bergljót sat í sveitarstjórn
Fljótsdalshrepps 1990-1998 og
í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa
2006-2010.
Útför Bergljótar fer fram
frá Valþjófsstaðarkirkju í
Fljótsdal í dag, 29. ágúst 2015,
og hefst athöfnin klukkan 14.
Allt er í heiminum hverfult.
Samferðafólkið yfirgefur þessa
jarðvist og lífið tekur breyt-
ingum frá því sem að áður var.
Í stað þess að hringja í kæra
vinkonu mína, sest ég nú niður
til að skrifa um hana fátækleg
kveðju og minningarorð. Aðeins
tveimur dögum fyrir andlátið
heyrðumst við í síðasta sinn.
Leiðir okkar Beggu, eins og
hún var alltaf kölluð, lágu sam-
an er við hófum nám við Sam-
vinnuskólann að Bifröst haustið
1970.
Síðari veturinn deildum við
herbergi. Þægilegri félaga var
vart hægt að hugsa sér, utan
þess hve það fór í taugarnar á
mér þegar að hún svaf bara í
lestímunum, meðan að ég sat
og reyndi að berja fræðin inn í
hausinn á mér. Hún fékk þó
alltaf góðar einkunnir. Þannig
var Begga bráðgáfuð, traust og
trygg.
En þrátt fyrir að lítið færi
fyrir henni hafði hún nú alveg
sínar skoðanir á hlutunum og
gaf sig ekkert með þær. Begga
skrifaði greinar og ljóð í skóla-
blaðið því að hún var frábær
penni og hagyrðingur góður.
Eftir að skólagöngu lauk, höf-
um við haldið sambandi með
heimsóknum og símleiðis, þó
svo að stundum gæti maður
haldið að símalínurnar í Fljóts-
dalnum virkuðu aðeins í aðra
áttina.
Öllum er okkur úthlutað mis-
munandi aðstæðum í lífinu. Að-
stæðum sem að hver og einn
bregst við eftir föngum. Fyrir
allmörgum árum greindist
Begga með illvígan sjúkdóm,
sem að hún mætti af æðruleysi
og dugnaði. Þrátt fyrir að lífið
taki miklum breytingum, held-
ur það vissulega áfram, og eftir
lifir minningin um góða sam-
ferðakonu sem hafði yfir mörgu
að gleðjast.
Tveimur sonum sem vegnar
vel í lífinu, traustum og góðum
maka, sem nú sér fram á aukið
mannlíf í tengslum við
Óbyggðasetrið á Egilsstöðum í
Fljótsdal.
Kæra skólasystir og vinur
hvíl þú í friði. Gunnari og son-
um ykkar sendum við Valdimar
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þín vinkona,
Rósa.
Bergljót
Þórarinsdóttir
Í dag kveð ég góðan vin,
Helga Hörð Jónsson, en hann
andaðist þann 7. ágúst á Land-
spítalanum í Fossvogi eftir
þunga legu.
Minningar sækja fram. Í
byrjun 5. áratugar síðustu ald-
ar geisaði síðari heimsstyrjöld-
in, Ísland hersetið, húsnæðis-
skortur í Reykjavík, sem að
hluta til er leystur með ný-
byggingum.
Ný bæjarhverfi rísa. Miðtún-
ið byggist, en þar mætast tveir
snáðar, blanda geði, takast á,
verða vinir. Leiksvæði þeirra
er takmarkalaust, nær niður að
Helgi Hörður
Jónsson
✝ Helgi HörðurJónsson fædd-
ist 14. maí 1943.
Hann lést 7. ágúst
2015.
Útför Helga fór
fram frá Kópavogs-
kirkju 28. ágúst
2015.
Sökum misgán-
ings vantaði upp á
grein Þórarins E.
Sveinssonar sem
birtist hér í heild. Morgunblaðið
biðst afsökunar á þessu.
sjó í norðurátt, í
austur að Fúlalæk.
Hætturnar víða,
mógrafir, sjávar-
ströndin, Fúlilæk-
ur er markaði
óbyggðar víðáttur
í austri, en mögu-
leg ævintýri í
hverju spori.
Í minningunni
er endalaust sól-
skin og þótt tekist
væri á var það aðeins eðlilegt
skref á þroskabrautinni, er
styrkti vináttu okkar drengj-
anna.
Barnaskólanám var stundað
í Laugarnesskóla og gengum
við þrír félagarnir, Helgi,
Gunnar og undirritaður, til
skólans daglega.
Í byrjun voru skrefin mörg
enda ferðalagið langt, en stytt-
ist í eftir því sem árin liðu.
Nutum þar góðra bekkjar-
félaga og kennslu Skeggja Ás-
bjarnarsonar.
Varð íslenskur sagnaheimur
hluti tilveru okkar er leiddi
m.a. til þess að við þrír drengir
gengum undir jarðarmen,
blönduðum blóði, sórumst í
fóstbræðralag, skyldi eitt yfir
okkur alla ganga. Vináttan eið-
fest. Þannig var hluti daglegs
lífs okkar þriggja sjö ára vina
um miðja síðustu öld.
Helgi var elstur þriggja
bræðra, en foreldrar þeirra
voru þau Margrét Pétursdóttir
húsfrú og Jón Helgason rithöf-
undur.
Með þeim í Miðtúni 60 bjó
faðir Jóns, Helgi Jónsson, áður
óðalsbóndi að Stóra Botni. Var
Helgi eftirlæti afa síns og al-
nafna, en samband þeirra hef-
ur vafalítið leitt til þess að
Helgi bar hag svæðisins í botni
Hvalfjarðar mjög fyrir brjósti.
Faðir hans festi síðar kaup á
hluta jarðarinnar Litla Botns,
þar sem hann byggði fjölskyld-
unni sumarhús.
Var ættin þá komin aftur á
heimaslóðir. Naut Helgi ver-
unnar þar, var hann alla tíð
mikill náttúruunnandi og vildi
stuðla að friðun svæðisins eins
og kostur væri, þannig að nátt-
úran fengi haldist með sem
minnstri íhlutun mannsins.
Helgi var fagurkeri, naut
góðra bókmennta, fallegra
hluta og myndlistar. Átti hann
létt með að tjá sig í rituðu máli
og hafði þannig alla kosti góðs
rithöfundar, auk þess að vera
drátthagur umfram flesta.
Á unglingsárum okkar þótti
sjálfsagt að unnið væri með
skólagöngu.
Í byrjun menntaskólanáms
sumarið 6́1 fengum við pláss á
togara, veiðar stundaðar á
Halamiðum og við Grænlands-
strendur.
Um haustið landað í Hull,
stoltir, sigldir félagar við
skólasetningu.
Helgi kvæntist Gyðu Jó-
hannsdóttur dósent í ágúst 6́4
og héldu þau síðan til náms í
Kaupmannahöfn.
Eignuðust þau synina Jó-
hann Árna og Jón Ara, 7́1 og
7́3, en það ár fluttu þau heim.
Hóf Helgi þá störf sem blaða-
maður á dagblaðinu Tímanum
til ársins 7́6, en þá varð Rík-
isútvarpið starfsvettvangur
hans.
Ekki mun ég fjalla um störf
hans þar enda aðrir betur til
þess fallnir. Helgi er tvískilinn,
en síðari kona hans var Helga
Jónsdóttir lögfræðingur. Börn
þeirra eru Oddný, Sólveig og
Gunnlaugur.
Helgi var í reynd gæfumað-
ur í lífi sínu þótt síðastliðin
fimm ár hafi verið honum
þungbærari en flestir gerðu
sér grein fyrir.
Við Hildur færum börnum
hans og bræðrum, Pétri Má og
Sturlu, og fjölskyldum þeirra
allra okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Góðs vinar er saknað.
„Dreymi þig ljósið, sofðu rótt.“
Þórarinn E. Sveinsson.
Harpa Heimisdóttir
Útfararstjóri
Hrafnhildur Scheving
Útfararþjónusta
Kirkjulundur 19 210 Garðabær
sími 842 0204 www.harpautfor.is
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna fráfalls elskulegrar eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR ÁRNADÓTTUR,
áður til heimilis að Mánavegi 1,
Selfossi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Fossheima fyrir góða umönnun og stuðning á erfiðum tíma.
.
Einar Sigurðsson,
Vilborg Árný Einarsdóttir, Einar Hólm Ólafsson,
Sigurður Kristinn Einarsson,
Jarþrúður Einarsdóttir, Sigurbjörn Árnason,
Margrét Einarsdóttir,
Sonja Ingibjörg Einarsdóttir, Hrafn Stefánsson
og fjölskyldur.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við
fráfall dóttur minnar,
SÓLVEIGAR ANSPACH
kvikmyndara.
.
Högna Sigurðardóttir Anspach
og aðstandendur.