Morgunblaðið - 29.08.2015, Síða 49
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Síðasta vetur rak ég kvikmyndaklúbb viðannan mann í háskólanum mínum í Ed-inborg og voru tónlistarheimildar-
myndir af margvíslegum toga á efnisskránni.
Við sýndum sígildar myndir (Dont look back),
nýlegar (The Punk Singer, sem fjallar um
Kathleen Hanna, brautryðjanda í feminísku
pönkrokki), skrítnar (Europe in 8 bits tekur á
jaðarstefnu í tölvutónlist þar sem gamall
vélbúnaður, svosem gamlar Nintendo leikja-
tölvur eru nýttar til tónlistarsköpunar) og
hömpuðum hinu óþekkta og alþekkta (við
sýndum heimildarmynd um Simply Red. Eng-
inn mætti). Einnig sýndum við nokkrar mynd-
ir sem hafa verið að koma fram síðustu miss-
eri og eiga sameiginlegt að brjóta upp hina
hefðbundnu, ég vil segja stöðnuðu, frásagn-
araðferð sem svona myndir styðjast einatt við.
Raunsatt
Þið þekkið venjulegu myndirnar. Þær
samanstanda af „talandi hausum“ (vinir,
hljómsveitarmeðlimir, blaðamenn), gömlum
klippum af tónlistarmanninum á sviði eða í
myndbandi og stillimyndum af ljósmyndum og
blaðaúrklippum (sem þysjað er inn á). Myndin
er svo leidd áfram í tímaröð og niðurstaðan
alltaf sú að tónlistarmaðurinn hafi verið góð
og gegn manneskja en vissulega uppfull af
mótsögnum. Um snilligáfuna er ekki efast og
hún er jafnan undirstrikuð með társtokknum,
uppskrúfuðum athugasemdum undir restina.
Er nema von að við séum orðin pínu
þreytt á þessu? Þegar eitthvað er orðið full
fyrirsjáanlegt er kominn tími á að hrista að-
eins upp í forminu og það hafa nokkrir leik-
stjórar verið að gera að undanförnu og hefur
myndum þeirra verið hampað, oftast rétti-
lega.
The Devil and Daniel Johnston, mynd frá
2005 sem fjallar um samnefndan jaðartónlist-
armann, er að einhverju leyti ákveðinn forveri
þessarar bylgju. Þessi frábærlega unna mynd
sló áður ókunnan tón þar sem teiknimynda-
innskot og ljóðrænt flæði gaf umfjöllunarefn-
inu meiri dýpt. Tónlistarmaðurinn var þá ekki
settur í hetjulegt ljós heldur var leitast við að
draga fram raunsanna mynd af viðfangsefn-
inu.
Bessaleyfi
Og það er þessi sannleiksleit, ef við getum
orðað það sem svo, sem hefur stýrt þessum
síðustu afrekum. Ég nefni hér nokkrar mynd-
ir sem dæmi. 20.000 Days on Earth með Nick
glysmeðferðum í svona myndum og veit ekki
hvernig á að snúa sér þegar ófullkomnunin
fær líka að sjást. Ein er þá mynd sem er all-
sérstök, The Possibilities Are Endless fjallar
um þrautagöngu Edwyn Collins (Orange
Juice) eftir lífshættulegt heilablóðfall. Upp-
setning myndar er tilraunakennd, sem er
áhugavert í sjálfu sér, en úrvinnsla ekki nægi-
lega góð. Myndin er eiginlega leiðinleg, svo ég
orði það bara eins og það er.
Mér finnst eins og hin þrautleiðinlega
þriggja tíma mynd Martin Scorsese um
George Harrison, þar sem Harrison var látinn
líta út fyrir að vera hálfguð, hafi verið ákveð-
inn endapunktur hvað „glansmyndirnar“
varðar. Ég hlakka því til að sjá fleiri myndir í
nýja stílnum. Nóg er af viðfangsefnunum.
Hinn „raunverulegi“ Jim Morrison, einhver?
Lengst inn í kviku
Aldrei séns Amy Winehouse var mikil hryggðarmynd síðustu æviárin eins og sést glögglega í heimildarmyndinni um söngkonuna.
Cave tekur sér stórkostlegt bessaleyfi hvað
form og frásögn varðar en með því, eins und-
arlega og það hljómar, komumst við miklu
nær Cave en ella. Montage of Heck (Kurt
Cobain) og Amy (Amy Winehouse) hafa verið
lofaðar mjög, þykja fara óþægilega nálægt
sínu fólki á stundum en þær hafa líka verið
settar niður. Faðir Winehouse er t.d. ekki sátt-
ur og er það nema furða. Fólk er orðið vant
» Tónlistarmaðurinn var þáekki settur í hetjulegt ljós
heldur var leitast við að draga
fram raunsanna mynd af við-
fangsefninu.
Gróska og nýsköpun
í tónlistarheimildar-
myndum Nick Cave,
Kurt Cobain og Amy
Winehouse njóta góðs af
Cave Stilla úr 20.000 Days on Earth. Cobain Á veggspjaldi Montage of Heck.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
Pierce Brosnan segir það alls ekki útilokað eða óeðlilegt
að í framtíðinni eigi kvikmyndagestir eftir að sjá samkyn-
hneigðan James Bond.
„Að sjálfsögðu, af hverju ekki? Reyndar veit ég ekki
hvernig það myndi virka og ég er ekki viss um að Broccoli
myndi vilja hafa Bond samkynhneigðan en það væri svo
sannarlega athyglisvert,“ segir Brosnan en Broccoli er
framleiðandi Bond-myndanna.
Orðrómur hefur farið á kreik að Idris Elba verði fyrsti
þeldökki leikarinn til að taka að sér hlutverk James Bond.
Það var í viðtali við Details-tímaritið sem Brosnan var
spurður um orðróminn og möguleikann á samkynhneigð-
um Bond. „Byrjum á því að fá frábæran leikara til að leika
Bond. Idris Elba hefur vaxtarlagið, persónuleikann og
nærveruna en ég held að Craig ætli að vera þarna í nokk-
ur ár í viðbót,“ sagði Brosnan í viðtalinu.
Bond? Idris Elba hefur
vaxtarlagið, persónuleikann
og nærveruna fyrir hlut-
verkið, að mati Brosnan .
Samkynhneigður Bond?
Síðasta bók rithöfundarins Terry Pratchett er komin út í
Bretlandi, tæpu hálfu ári eftir andlát hans. Pratchett
þekkja flestir aðdáendur fantasíubóka en hann skapaði
Discworld-sagnabálkinn og er nýjasta bókin sú fertug-
asta og fyrsta í röðinni.
Bókarinnar, sem heitir The Shepherd’s Crown, hefur
verið beðið með mikilli eftirvæntingu og höfðu fjölmarg-
ir aðdáendur Pratchett safnast saman við verslanir í
London, Oxford og í Newcastle nóttina áður en bókin fór
í sölu.
Pratchett lést í mars á þessu ári en hann hafði lengi
glímt við alzheimers-sjúkdóminn. Eftir hann liggja yfir
sjötíu bækur en hann lauk við síðustu bókina síðasta
sumar áður en sjúkdómurinn náði lokastigi sínu.
Rob Wilkins, vinur höfundarins, sagði í samtali við
BBC að erfitt hafi reynst að ljúka við bókina þar sem
heilsu Pratchetts hafi hrakað verulega síðustu mánuðina og hafi hann ekki náð að
fínpússa söguna eins og hann hefði viljað. Hann hafi þó enn notið þess að skrifa og
eftir hann liggi margar sögur sem hann hafði byrjað á en ekki lokið við.
Síðasta bók Pratchett komin út í Bretlandi
Afkastamikill Pratchett
skrifaði yfir 70 bækur.
Hljómsveitin Retro Stefson
heldur afmælistónleika á
Kex hosteli í kvöld kl. 21.
Hljómsveitin fagnar tíu ára
afmæli sínu á árinu. Lítið
hefur farið fyrir sveitinni síð-
ustu mánuði, hún aðeins
haldið örfáa tónleika, og er
ástæðan sú að hún vinnur nú
að fjórðu breiðskífu sinni,
Scandinavian Pain. Eitt laga
plötunnar hefur fengið að
óma í útvarpi frá því í mars
sl., „Malaika“.
Tónleikarnir eru í raun
tvöfaldir afmælistónleikar
því að bassaleikarinn Logi
Pedro Stefánsson á 23 ára af-
mæli í dag. „Hljómsveitin
mun leggja allt að veði til þess að gleðja afmælisbarnið og að sjálf-
sögðu fá tónleikagestir að njóta þess,“ segir í tilkynningu um tón-
leikana. Aðgangur er ókeypis.
Afmæli Retro Stefson á tónlistarhátíð-
inni Innipúkanum í byrjun mánaðar.
Retro Stefson 10 ára og Logi 23 ára
Morgunblaðið/Eggert
Frami, nýtt sviðsverk eftir Björn Leó Brynj-
arsson sem einnig leikstýrir því, verður frum-
sýnt í dag kl. 17 í Smiðjunni í Listaháskóla Ís-
lands, Sölvhólsgötu 13. Sýningin er á dagskrá
Reykjavík Dance Festival og Lókal leiklist-
arhátíðar. Verkið fjallar um þrá listamanns eftir
velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við
sjálfan sig, mann sem er á skjön við samfélagið
og nærir biturð sína gagnvart farsælasta lista-
manni Íslands ásamt því að vera heltekinn af
eigin líkamsvexti, eins og segir í tilkynningu.
Leikari í verkinu er Kolbeinn Arnbjörnsson.
Sviðsverkið Frami frumsýnt í dag
Björn Leó
Brynjarsson
STRAIGHTOUTTACOMPTON 4, 7, 10
ABSOLUTELY ANYTHING 4, 6, 8, 10
THE GIFT 8, 10:20
MINIONS - ENS TAL 2D 6
SKÓSVEINARNIR 2D 1:50, 4
FRUMMAÐURINN 2D 1:50
INSIDE OUT 2D 1:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 1:50
TILBOÐ KL 1:50 TILBOÐ KL 1:50