Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 3
kæru lesendur
Að baki er frábært afmælisár Iðju
þjálfafélags Íslands og var sönn ánægja
að upplifa alla þá grósku og fagmennsku
sem einkennir félagið á þessum tíma
mótum. Á ráðstefn unni í septem ber
síðastliðnum mátti sjá að iðjuþjálfar
eru mjög virkir í rann sóknum og öðr
um fræði störfum. Það er von ritnefndar
að svo muni halda áfram og iðju þjálfar
sjái sér fært að birta niður stöður og
annað áhugavert efni í Iðjuþjálfanum.
Að þessu sinni er þema blaðsins Iðju
þjálfun í samfélaginu. Á síðustu árum
hefur iðjuþjálfum sem vinna utan stofn
anna fjölgað til muna og nýjar og
spenn andi stöður orðið til. Eins og sjá
má í könnun um stöðu iðjuþjálfunar á
Íslandi og þróun síðustu 30 ár, sem
birtist í síðasta tölublaði Iðjuþjálfans,
hefur iðju þjálfum fjölgað til muna
utan Reykja víkur og tæplega 20% starf
andi iðjuþjálfa vinna í störfum sem
ekki eru eyrnarmerkt iðjuþjálfun.
Í þessu tölublaði má lesa um ýms ar
nýjungar í faginu og spennandi verk
efni sem iðjuþjálfar víðs vegar um
landið eru að taka þátt í. Að auki birtist
umfjöllun frá Faghóp um iðjuþjálfun í
íslensku samfélagi (FIS) sem vegna
mistaka birtist ekki í síðasta blaði og
biðjum við hlutað eigandi velvirðingar
á.
Óskir hafa borist nefndinni um að
útgáfutíma blaðsins verði breytt þar
sem Iðjuþjálfaneminn hefur nú fest sig
í sessi og kemur út nánast á sama tíma.
Það er nær ótækt að svo skyld blöð séu
í samkeppni um efni og auglýsingar.
Iðjuþjálfinn mun því koma út að haust
lagi í framtíðinni. Til að auðvelda þessa
umbreytingu er stefnt að því að gefa út
2. tbl. af 29. árgangi næstkom andi
haust. Skorum við því á iðju þjálfa að
láta hendur standa fram úr ermum og
senda til okkar hugmyndir og efni sem
fyrst.
Að lokum viljum við þakka öllum
þeim sem komu að útgáfu blaðsins svo
sem með greinaskrifum og auglýs ing
um.
Með bestu óskum
um gleðilegt sumar
Ritnefnd Iðjuþjálfans
Frá ritnefnd
Efnisyfirlit
Stjórn IÞÍ
Lilja Ingvarsson, formaður
Birgit Schov, gjaldkeri
Sigrún Ásmundsdóttir
Sigurbjörg Hannesdóttir
Sigþrúður Loftsdóttir
Fanney Karlsdóttir, varamaður
Rósa Hauksdóttir, varamaður
Umsjón félagaskrár
Þjónustuskrifstofa SIGL
Ritnefnd (ritnefnd.ii@sigl.is)
Edda Björk Skúladóttir
Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir
Sigurborg Sveinsdóttir
Snæfríð Egilson
Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir
Ritstjóri
Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir
Prentvinnsla
Litlaprent
Forsíðumynd
Börn að leik við Hrafnagilsskóla
Gísli Dúa Hjörleifsson
Börn:
Aldís Lilja Sigurðardóttir
Kristófer Daði Ingason
Ólafur Ingi Sigurðarson
Monika Rögnvaldsdóttir
Ivalu Birna FalckPetersen
Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta texta og
færa til betri vegar. Vitna má í texta blaðsins ef
heimildar er getið.
Iðjuþjálfinn
Fagblað iðjuþjálfa
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 • 3
Pistill formanns ............................. 4
Ljósið Endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð ......................... 6
Pistill frá Siðanefnd ....................... 7
Létta leiðin er rétta leiðin .............. 8
Áhrif menningar
á verkjahegðun ........................... 10
Viðtal við Elínu Hrönn
iðjuþjálfa hjá Alcoa ...................... 14
Hjálpartækjamiðstöð TR á
Kristnesspítala í Eyjafirði ............. 15
Janus endurhæfing ehf. .............. 16
Ágrip úr B.Sc. verkefnum
iðjuþjálfanema frá Háskólanum
á Akureyri ................................... 19
Tæknin beisluð til hagsbóta fyrir
samfélagið .................................. 20
Sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika
aldraða ........................................ 22
Of geðveikur til að láta í
sér heyra? ................................... 24
Áhrif á Þátttöku
og Sjálfræði ................................ 27
Tæknileg úrræði og heilabilun
á Norðurlöndunum ..................... 30
Faghópur um iðjuþjálfun í íslensku
samfélagi .................................... 31
Ágrip úr B.Sc. verkefnum
iðjuþjálfanema frá Háskólanum
á Akureyri (framhald) ................... 31