Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Síða 22

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Síða 22
22 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 Sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika aldraða (SHVA) hófst í september 2006 og var hleypt af stokkunum fyrir tilstuðlan heilbrigðis­ og trygginga­ málaráðuneytis sem svar við útskriftar­ vanda Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH) á veikburða öldruðum. Um er að ræða samstarfsverkefni LSH og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) þar sem þverfaglegt teymi vinn­ ur í samvinnu við skjólstæðinga og/ eða aðstandendur að sameiginlegu markmiði. Sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika aldraða (SHVA) er nýbreytni í meðferð og eftirfylgni við veika aldraða. Þjónustan er ætluð þeim sjúklingum sem geta og vilja útskrifast heim af LSH en hafa þörf fyrir fjölþættari þjónustu en þegar er í boði í sam­ félaginu. Gert er ráð fyrir að þjónustan nái að jafnaði til 20 skjólstæðinga á hverjum tíma. Þegar verkefnið var sett á laggirnar var ákveðið að reynslutími þess yrði sex­ til tólf mánuðir. Myndað var þverfaglegt teymi (heimateymi) sem mun sinna þessari sérhæfðu heima­ þjónustunni fyrir veika aldraða. Í teym­ inu eru sjö stöðugildi ólíkra faghópa. Starfsmenn frá LSH eru öldrunarlæknir, klínískur sérfræðingur í öldrunarhjúkr­ un, iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari auk hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og félags­ liða frá HH. Miðað er við að þjónustan sé veitt í allt að tvær til tólf vikur fyrir 67 ára og eldri á höfuðborgarsvæðinu sem þurfa víðtækari fagþjónustu en þegar er í boði. Hlutverk teymisins er að stýra, skipuleggja og veita meðferð og eftirfylgni til veikra aldraðra við útskrift af LSH. Markmið þjónust­ unnar er því að tryggja samheldni í meðferð frá sjúkrahúsi til heimilis og styrkja aðlögunarhæfni skjólstæðinga og/eða fjölskyldu eftir útskrift af sjúkrahúsi. Teymið hefur aðsetur á LSH á Landakoti (LDK) til að byrja með en stefnt er að því að fá húsnæði á LSH í Fossvogi. Sjúkraskrár verða í vörslu LSH og skráðar í skráningarkerfin Sögu og RAI­HC. SHVA teymið hefur þegar þessi grein er skrifuð starfaði í tæpa sex­ mánuði og á þeim tíma hafa áherslur og þjónustu­ ferli stöðugt verið að breytast og þróast og eru enn í þróun. Í byrjun febrúar höfðu 35 skjólstæðingar verið innskrif­ aðir í SHVA teymið. Alls höfðu 12 skjólstæðingar verið endanlega útskrif­ aðir úr þjónustu teymisins í önnur úrræði. Markmið teymisins er að mæta ósk­ um aldraðra og gera þeim kleift að búa heima þrátt fyrir veikindi. Að veita markvissa, faglega, einstaklingshæfða meðferð og umönnun heima, fræðslu og ráðgjöf svo sem aukinn stuðning við skjólstæðinga og aðstandendur í kjölfar útskriftar af LSH. Þjónustuferli SHVA teymisins: Beiðnir til heimateymis koma frá Útskriftar­ og öldrunarteymi LSH og útskriftarteymum deilda á Landakoti. Teymið hefur fasta fundi tvisvar til þrisvar sinnum í viku sem notaðir eru sem skipulags­, teymis­ og innlagna­ fundir. Á innlagnarfundum teymisins er farið yfir nýjar beiðnir, metin þörf fyrir viðeigandi þjónustu og hvort hægt sé að veita hana. Út frá þeim þáttum eru beiðnir samþykktar eða hafnað. Á teymisfundum hittast allir teymismeð­ limir og farið er yfir alla þá skjólstæðinga sem eru að fá þjónustu. Ákvarðanir eru teknar varðandi þjónustuna, hvenær eigi að halda fjölskyldufundi og með­ ferðartími áætlaður. Þegar beiðnir hafa verið samþykktar hefur tengiliður SHVA teymisins samband við Útskriftar­ og öldrunar­ teymið eða útskriftaraðila á LDK til að skipuleggja og ákveða útskriftardag í samráði við viðkomandi deild og ábyrg­ an lækni. Tengiliður SHVA teymis setur sig síðan í samband við skjól­ stæðinginn og/eða aðstandendur á við­ komandi deild, símleiðis og /eða á fjöl­ skyldufundum. Þegar búið er að ákveða útskriftardag af LSH er ákveðið hvort fulltrúi frá Sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika aldraða ■ Auður Hafsteinsdóttir, iðjuþjálfi Endurhæfingarsvið Landspítali Háskólasjúkrahús Útskriftar- og öldrunarteymi LykiLorð: Sérhæfð heimaþjónusta, aldraðir, iðjuþjálfun, þverfaglegt teymi, teymisvinna ■ Hlutverk iðjuþjálfa í sérhæfðri heimaþjónustu fyrir veika aldraða er meðal annars að veita íhlutun, ráðgjöf, upplýsingar og fræðslu til skjólstæðinga og aðstandenda. ■

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.