Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Qupperneq 18

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Qupperneq 18
1 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 þátttakendur sér og velja afar mis­ munandi leiðir til þess að ná settum markmiðum sínum enda þarfir hvers og eins ólíkar. Hugmyndafræði iðju­ þjálfunar fær notið sín einstaklega vel og sjá iðjuþjálfar m.a. um mikilvæga fræðslu og stuðning til þess að auka líkurnar á endurkomu þátttakandans inn á atvinnumarkaðinn. Iðjuþjálfar Janusar endurhæfingar aðstoða þátt­ takandann við að skoða hvaða þættir hafa áhrif á heilsuna, bæði atriði sem tengjast honum sjálfum, svo sem venjur og verklag við dagleg störf ásamt atriðum sem tengjast umhverfinu. Til að vinna að þessu og gera endur­ hæfinguna markvissari er kennsla og þjálfun í að setja raunhæf markmið sem unnið er með í hverri viku. Augljóst er að þar sem aðstæður þátttakenda eru stundum þess eðlis að ekkert má útaf bregða, þá er þörf á aðstoð Félagsþjónustunnar. Með tíman­ um hefur skapast gangkvæmur skilningur og góð samvinna milli Félagsþjónustunnar og Janusar endur­ hæfingar, samvinna sem allir aðilar hafa hagnast á. Tryggingastofnun ríkis­ ins er ekki síður mikilvægur hlekkur í atvinnuendurhæfingu og þjónustu við þátttakendur. Sérstök áhersla hefur því verið lögð á farsælt og gott samstarf við þá aðila sem vinna að hagsmunum þátttakenda þar. Þessi vinna beggja að­ ila hefur skilað sér í mörgum góðum úrlausnum þátttakendum okkar til handa. Janus endurhæfing og atvinnu­ markaðurinn Þátttakendur Janusar endurhæfingar hafa fjölbreytta og oft langa reynslu af atvinnumarkaðnum. Margir hafa reynt að halda sér í vinnu þrátt fyrir heilsu­ brest og minnkaða starfsgetu. Sumir hafa gert ítrekaðar tilraunir til að fara aftur að vinna og upplifað skipbrot þeg­ ar það tekst ekki. Þetta hefur svo haft neikvæð áhrif á sjálfsímynd og sjálfs­ traust einstaklingins. Hraðinn og sérhæf­ ingin á vinnumarkaðnum hafa aukist og kröfurnar um menntun verða sífellt meiri. Það er oft lítið pláss fyrir sveigjan­ leika og algengt er að vinnustaðir séu undirmannaðir. Reynsla margra þátt­ takanda er að starfslýsingum í fyrirtækj­ um sé ekki fylgt og óvæntar vinnu­ skyldur bætist við. Það reynist mörgum erfitt að hafa trú á sjálfum sér og eigin getu þegar heilsan og starfsorkan breyt­ ist. Þátttakendur lýsa fordómum vinnu­ markaðarins á langvarandi veikindum en einnig þeirra eigin fordómum á möguleikum sínum. „Ég myndi aldrei ráða svona manneskju til vinnu“ heyrist oft þegar þátttakandi er að lýsa sjálfum sér. Í endurhæfingunni er lögð áhersla á að þátttakendur verði öruggari í að meta starfsgetu sína, bæði takmarkanir og möguleika ásamt því að byggja upp sjálfstraustið miðað við breyttar forsend­ ur. Þeir fá leiðbeiningar í að tala um starfsgetu sína á jákvæðan og uppbyggi­ legan hátt og takast á við fordóma frá öðrum eða jafnvel sjálfum sér. Atvinnu­ viðtöl eru æfð þar sem þátttakendur þjálfa sig í að svara sígildum spurningum sem koma við slíkar aðstæður. Allir þátt­ takendur vinna að gerð eigin ferilskrár og æfa sig í atvinnuleit á netinu. Flestir finna sér vinnu sjálfir þegar endurhæfingin hefur náð því stigi og þeir eru tilbúnir til þess en þeim gefst einnig kostur á milligöngu Janusar end­ urhæfingar sem getur verið með ýmsum hætti. Í þeim tilfellum er fyrst haft samband við fyrirtæki og þátttakandan­ um fylgt í viðtöl eða þá að þátttakendur fá stuðning við að finna fyrirtæki sem hugsanlega hafa hentuga vinnu og þeir sjá sjálfir um samskiptin. Vinnu­ samningur Tryggingastofnunar ríkisins fyrir öryrkja hefur gefið mörgum tæki­ færi til að komast aftur út á vinnu­ markaðinn en þá endurgreiðir Trygg­ ingastofnun vinnuveitanda hluta af launum einstaklingsins. Varðandi þann þátt er gott samstarf við Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar sem hefur haft milli­ göngu við fyrirtækin um gerð samnings­ ins. Við höfum góða reynslu af vinnu­ samningnum fyrir nokkra þátttakendur sem hafa verið mjög lengi frá vinnu­ markaði og óskað eftir að fara hægt af stað og/eða hafa mjög skerta starfsgetu. Það eru fyrirtæki á markaðnum sem sýna sveigjanleika og vilja gefa fólki með skerta starfsgetu tækifæri og telja það samfélagslega skyldu sína. Reynsla okkar er að margir þátttakendur sem vilja komast í vinnu á almennum vinnumark­ aði fá vinnu við sitt hæfi. Hinsvegar er það því miður einnig reynsla okkar að þátttakendur sem vilja vinna fá ekki vinnu við hæfi. Í þessum tilfellum er það atvinnumarkaðurinn sem er vanhæf­ ur en ekki einstaklingurinn og dýrmætur starfskraftur nýtist ekki þjóðfélaginu . Þróun í þágu þjóðfélagsins Við uppbyggingu Janusar endur­ hæfingar var engin ein ákveðin fyrir­ mynd höfð í huga heldur íslenskt sam­ félag og þær aðstæður og möguleikar sem við höfum til atvinnuendurhæfingar hér á landi. Mikil þróunarvinna hefur og á sér enn stað enda er nauðsynlegt að taka sífellt mið af því umhverfi sem við lifum í. Hugmyndafræði starfseminnar leggur áherslu á að kerfið þjóni einstakl­ ingnum en ekki öfugt eins og oft vill verða. Þessi hugmyndafræði hefur fengið að blómstra í samfélagi okkar fyrir til­ stuðlan góðs skilnings og trausts margra mikilvægra hlekkja. Augljóst er að starfs­ fólk Janusar endurhæfingar hefur ekki einungis þjónustað einstaklinginn held­ ur einnig haft áhrif á umhverfi hans í víðri merkingu, þannig að umhverfið styðji við markmið hans sem best. Þetta sést vel á mælanlegum árangri starfsem­ innar sem er afar góður en hann var rúm 60% um síðustu áramót. Árangur telst þegar þátttakendur hefja störf á almenn­ um vinnumarkaði, vernduðum vinnu­ stað, fara í nám, eða eru í atvinnuleit. Það er því augljóst að tekist hefur að þróa atvinnuendurhæfingu sem samnýtir innviði þjóðfélagsins og er í þágu þess. Hugmyndir iðjuþjálfa um að geta haft áhrif á umhverfið í víðri merkingu eru ekki draumur einn heldur hafa fengið að njóta sín í starfsemi Janusar endur­ hæfingar og er ósk um að svo megi vera um ókomna tíð. Í endurhæfingunni er lögð áhersla á að þátttakendur verði öruggari í að meta starfsgetu sína, bæði takmarkanir og möguleika ásamt því að byggja upp sjálfstraustið miðað við breyttar forsendur ■ FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.