Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Síða 26

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Síða 26
2 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 hópsins. Eins og hann sjálfur orðar það, klifraði hann hægt og rólega upp „metorðastigann“. Hann byrjaði sem áheyrnarfulltrúi, vann sig upp og varð ritari, svo meðspyrjandi og endaði sem spyrjandi. Garðar fékk því bæði hvatn­ ingu og tækifæri til að prófa öll hlutverk innan hópsins. Hópurinn bar sam­ eiginlega ábyrgð á vinnunni og var það mikil áskorun. Garðar fékk gríðarlega mikið út úr öllu ferlinu. Meðal annars jókst sjálf­ straust hans og úthald vegna þess að hann fékk að sjá árangur, hann sá að hann gat gert alvöru hluti. Verkefna­ vinnan var gefandi og Garðar gat sýnt fram á færni í hópavinnu. Í gegnum ferlið fékk Garðar hlutverk og upplifði tilgang sem gaf honum von og trú á eigið líf. Garðar telur mjög mikilvægt að hafa rútínu yfir daginn. Að vakna á morgnanna og hafa markmið til að stefna að. Á Landspítalanum upplifði hann stöðnun, engin alvöru verkefni til að takast á við og lítið í boði nema föndur. Hann upplifði vonleysi og hélt að ekkert væri í boði fyrir utan spítal­ ann. Áður en Garðar veiktist vann hann 10 til 11 tíma á dag og munaði ekkert um að fara í líkamsrækt í einn til tvo tíma. Reynslan af verkefninu hefur gefið honum von um að komast út á vinnumarkaðinn aftur og getur hann nú hugsað sér að komast í dagvinnu. Við höfðum áhuga á að vita hvað Garðar telur iðjuþjálfa og aðra geta lært af þessari reynslu. Í fyrsta lagi nefnir hann mikilvægi stuðnings frá notend­ um. Þeir hafa aðra reynslu og annað sjónarmið en fagfólk, þekkja ferlið og þær aðstæður sem viðkomandi hefur gengið í gegnum. Í öðru lagi telur hann að góð samskipti og góður stuðningur frá umhverfinu séu lykilatriði í bata­ ferlinu. Fagaðilinn veitir bestan stuðn­ ing með því að vera til staðar. „Það er nálgunin sem skiptir megin máli, það er þessi persónulega nálgun fagaðila sem veitir manni öryggi“. Stefna félagsmálaráðuneytis um þjónustu við fötluð börn og full­ orðna 2007­2016 Í stefnu félagsmálaráðuneytisins um þjónustu við fötluð börn og fullorðna 2007–2016 kemur fram jákvætt við­ horf og velvilji ráðuneytisins gagnvart tækifærum og mikilvægi þess að hlustað sé á notendur og þekkingu þeirra (Félagsmálaráðuneytið, 2007). Í ávarpi sínu 9. nóvember 2006 fjallar Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra um að þátttaka og virkni fatlaðra í samfélaginu séu lykilorð í þeirri framtíðarsýn sem nýju stefnudrögin bera með sér þar sem sérhver einstaklingur hefur mikilvægu hlutverki að gegna. Þátttaka og virkni allra þegna í lífi og starfi samfélagsins styrkir forsendur þess til að það geti borið rík einkenni mannúðar, skilnings, virðingar og réttlætis. Ennfremur bendir hann á að betur má ef duga skal. Þótt hugmyndafræðin í þjónustu við fatlað fólk hafi staðist vel tímans tönn sé orðið tímabært að endurskoða þær grundvallarhugmyndir sem hún byggir á. Hann telur að félagsmálaráðuneytið þurfi stöðugt að vera opið fyrir nýjum viðhorfum og leiðum, meðal annars þeim sem gefist hafa vel í öðrum löndum (Félagsmálaráðuneytið, 2006). Í hinum nýju stefnudrögum er lögð áhersla á að fötlun sé ekki einungis skerðing á færni eða sjúkdómur sem einstaklingur kann að búa við. Félags­ legar aðstæður verða einnig til þess að fólk með skerta færni eigi þess ekki kost að taka fullan þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Hugtakið lýtur þannig að tengslum einstaklings með skerta færni við umhverfi hans. Með því er athygli beint að þeim félags­ og umhverfisþáttum sem takmarka jafn­ ræði, til dæmis tjáskiptum og aðgengi að upplýsingum og menntun. Enn fremur ber að nefna tækifæri til eðli­ legra búsetuhátta og þátttöku í atvinnu­ lífinu. Aukið jafnræði og ráðstafanir til að draga úr fötlun snúa því bæði að því að styrkja forsendur einstaklingsins til þátttöku og laga aðgengi að samfélaginu að þörfum hans (Félagsmálaráðuneytið, 2007). Mikilvæg atriði sem Magnús Stefáns­ son nefnir eru fagleg þekking og gæða­ starf. Ásamt enn frekari uppbyggingu á þjónustu við fötluð börn og fullorðna. Að þjónustan sé einstaklingsmiðuð, byggð á heildstæðri og sveigjanlegri þarfagreiningu í samráði við notendur á hverjum tíma. Hann segir að gæðum þjónustunnar og viðhorfum notenda til hennar verði fylgt eftir með reglubundn­ um hætti, meðal annars með könnunum meðal notenda og starfsfólks ásamt mati á árangri. Með því móti verði fylgst með því að settum markmiðum sé náð. Áhersla er lögð á að skapa traust milli stjórnenda, starfsfólks, notenda og aðstandenda þeirra, meðal annars með því að bregðast fljótt og örugglega við kvörtunum og ábendingum. Þá sé fylgst vel með nýjungum í þjónustunni ásamt því að gæta hagkvæmni í rekstri (Félagsmálaráðuneytið, 2006). Staða NsN í dag Eins og greinilega kemur fram í ávarpi félagsmálaráðherra sér félags­ málaráðuneytið gæðaþróunarverkefni sem tækifæri til betri, fjölbreyttari og árangursríkari þjónustu. AE starfsendur­ hæfing hefur gert þjónustusamning við félagsmálaráðuneytið um gæðaþróun á þjónustu við geðfatlaða sem heyrir undir ráðuneytið. Samningurinn er til tveggja ára og á fyrri hluta samnings­ tímabilsins verða fjögur sambýli skoð­ uð. Í ljósi reynslu á fyrri hluta samn­ ingstímans verður ákveðið hvaða starfsemi verður tekin út á síðari hluta samningstímans. Markmið þjónustu­ samningsins er að fá fram hvað það er í þjónustunni sem er að nýtast notendum og hvað ekki. Upplýsingum um fram­ boð og aðgengi að úrræðum sem tengj­ ast dagvistun, skapandi iðju, tómstund­ um, tækifærum til menntunar eða atvinnuþátttöku verður safnað saman ásamt upplýsingum um búsetumál og virkni einstaklinganna. Í gegnum gæða­ þjónustukannanirnar mun skapast þekking sem nýtt verður í fræðslu og námskeið fyrir starfsfólk og notendur. Heimildir: Félagsmálaráðuneytið (2006). Þjónusta við geðfatlað fólk. Sótt 8. febrúar 2007 frá http://felagsmalaraduneyti.is/radherra/ RaedurMS/nr/2898. Félagsmálaráðuneytið (2007). Þjónusta við fötluð börn og fullorðna – stefnumótun um þjónustu við fötluð börn og full­ orðna 2007 – 2016. Sótt 8. febrúar 2007 frá http://www.felagsmalaradu­ neyti.is/vefir/stefnumotun. Harpa Ýr Erlendsdóttir og Valdís Brá Þorsteinsdóttir (2004). Notandi spyr Notanda ­ Nýtt atvinnutækifæri geð­ sjúkra. Gæðaeftirlit á geðdeildum LSH. Nýsköpunarsjóður námsmanna og heil­ brigðis­ og tryggingamálaráðuneytið. Http://www.hugarafl.is „Mér fannst ég hafa fengið happadrættisvinning þegar ég vissi að verkefnið væri að fara í loftið“ ■

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.