Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Side 31

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Side 31
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 200 • 31 (s. 564 1544 bindrida@lsh.is). Þrátt fyrir að tæknileg úrræði hafi lítið verið kynnt hér á landi þá kannast flestir við eldavélarvara og svokallaða ráp­ mottu, en önnur úrræði hafa lítið verið í umræðu eða notkun. Fá þeirra tækja sem eru á markaðnum erlendis eru fáan­ leg hér en söluaðilar eru þó jákvæðir fyrir að flytja tækin inn eftir þörfum. Þar sem þekking og vitneskja um tækin er ekki mikil, enn sem komið er, er eftirspurnin lítil sem engin. Mörg þeirra tækja sem geta komið að notum hafa verið pöntuð beint frá framleiðendum í gegn um internetið. Oft er heilabilunarsjúkdómurinn kom­ inn á það hátt stig þegar tæknileg hjál­ partæki ber á góma, að einstaklingurinn er ekki lengur fær um að tileinka sér notkun þeirra tækja sem geta aukið virkni og sjálfstæði. Þess vegna þarf að kynna þessi úrræði fyrir skjólstæðingum, aðstandendum og heilbrigðisstarfsfólki, til þess að hægt sé að taka tæknileg úrræði í notkun sem fyrst eftir grein­ ingu. Seinna í sjúkdómsferlinu geta ým­ is öryggistæki komið að gagni og minnkað álag á aðstandendur og aðra umönnunaraðila. Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga og annarra minnissjúkra (FAAS) hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga og einnig starfsfólk á öllum þjónustustigum öldrunarþjónustu. Samstarfshópurinn vonast því til þess að niðurstöður verk­ efnisins muni skila sér í framtíðinni með aukinni notkun tæknilegra úrræða og þannig auka sjálfstæði, virkni og öryggi einstaklinga með heilabilun og aðstand­ enda þeirra. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar þær rannsóknir sem nefndar eru í greininni geta leitað fanga á eftirfarandi heimasíðum: • Um rannsóknirnar ASTRID, ENABLE og TED og fleiri rannsóknir um tæknileg úrræði má lesa í þessum sænska bækling: www.hi.se/global/pdf/2002/02356.pdf • Um Teknik og demens –sænskt átaks­ verkefni um tæknileg úrræði. Átta reynslusögur af notkunarmöguleikum tæknilegra hjálpartækja: www.hi.se/ Global/pdf/2006/06356­pdf.pdf • Upplýsingar um tæknileg úrræði á heimasíðu dönsku hjálpartækjamiðstöðv arinnar: www.hmi.dk/index­.asp?id=111 • Aldring og helse – Nasjonalt komp­ etensesenter www.nordemens.no Frá árinu 2003 hafa undirritaðar hist reglulega yfir hádegisverði og rætt ýmis málefni sem tengjast faginu og stöðu iðjuþjálfunar í íslensku samfél­ agi. Fljótlega kom sú hugmynd að væntanlega væru fleiri að velta þessum málum fyrir sér og grundvöllur fyrir að stofna faghóp. Við létum síðan til skarar skríða haustið 2004 og boðuð­ um til fundar í febrúar 2005. Tíu manns mættu og skipulag starfsins var ákveðið. Faghópurinn lætur sig varða iðju­ þjálfun á Íslandi og stöðu og hlutverk iðjuþjálfastéttarinnar í fortíð, nútíð og framtíð. Áætlað er að hópurinn skoði og ræði fagtengd málefni eins og sjálfstæði og vald iðjuþjálfastéttarinnar, ytri og innri ímynd fagsins og tækifæri til eflingar og framgangs. Vonast er til að þessi skoðun og umræða skili sér í tillögum að nýjum leiðum til að kynna og markaðssetja iðjuþjálfun. Ekki er fjallað um kjaramál eða þjónustu við einstaka skjólstæðingshópa. Hópurinn í sameiningu ákveður fundarefni fyrir 3 fundi í senn og 2 einstaklingar taka að sér að boða og skipuleggja fundi. Strax­ var ákveðið að fundarformið yrði óformlegt og engar fundargerðir eru skrifaðar. Nú í mars 2007 hafa 12 fundir verið haldnir og á þá hafa mætt allt frá sex­ upp í 12 manns. Rúmlega 20 manns eru á póstlista og fá tilkynningar um fundartíma og efni. Efni sem fjallað hefur verið um eru m.a. sjálfstæði og vald, tækifæri til eflingar, markaðs­ setning fagsins og ytri og innri ímynd fagsins. Er það almennt mál þátttak­ enda að umræður sem þessar séu gagn­ legar og þeir fari af fundi með „góða tilfinningu“ og sterkara fagsjálf. Á fund­ unum hittast gamalreyndir iðjuþjálfar og þeir sem eru að stíga fyrstu skrefin í faginu. Skipst er á skoðunum og tæki­ færi gefst til að læra hver af öðrum. F.h. FIS Björk Pálsdóttir, Guðrún Pálmadóttir og Lilja Ingvarsson Faghópur um iðjuþjálfun í íslensku samfélagi Framhald af bls. 19 Áhrif Ævintýrameðferðar á iðju barna með geðræn vandamál Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem rannsakað verður hvort og þá hvaða áhrif Ævintýrameðferð á Barna­ og unglingageðdeild Landspítala háskóla­ sjúkrahúss (BUGL) hefur á iðju barna á aldrinum 12­14 ára. Tilgangur rannsókn­ arinnar er tvíþættur; annars vegar að safna fræðilegum heimildum um Ævin­ týrameðferð og iðju barna, og hins vegar að safna upplýsingum um reynslu for­ eldra af þátttöku barna sinna í með­ ferðinni. Ekki hefur verið gerð rannsókn á Ævintýrameðferð hér á landi og verður með þessari rannsókn stuðlað að fræðileg­ um grunni meðferðarinnar. Einnig verður kannað hvort eitthvað megi betur fara í sambandi við meðferðina og með þeim upplýsingum verður hægt að bæta meðferðina. Hins vegar ef niðurstöður rannsóknarinnar styðja Ævintýrameð­ ferðina eins og hún er í núverandi mynd styrkir það trúverðugleika almennt á íhlutuninni. Rannsóknin er unnin í samstarfi við iðjuþjálfa á BUGL. Tekin verða viðtöl við foreldra níu barna sem lokið hafa þátttöku í Ævin­ týrameðferð u.þ.b. tveimur vikum eftir að meðferð lýkur. Viðtalsramminn sem stuðst er við er óstaðlaður og hannaður af rannsakendum. Í rannsókninni verður stuðst við Líkanið um iðju mannsins (MOHO) en samkvæmt því er hugsað um einstaklinginn út frá þrem einingum sem allar tengjast innbyrðis, vilja, vana og framkvæmdafærni. Með viðtölunum verður leitast við að fá upplýsingar um hvort og þá hvernig iðja barna breytist eftir þátttöku í Ævintýrameðferð á BUGL. Höfundar: Hildur Andrjesdóttir Oddný Hróbjartsdóttir Steinunn B. Bjarnarson Leiðbeinandi: Elín Ebba Ásmundsdóttir Ágrip úr B.Sc. verkefnum iðjuþjálfa- nema frá Háskólanum á Akureyri

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.