Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 6
Ljósið Endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð
Stofnfundur Ljóssins var haldinn
20. janúar 2006 en síðan þá hefur
mikið vatn runnið til sjávar og má
því segja að Ljósið sé formlega eins
árs. Starfsemin hófst haustið 2005,
þá aðeins tvo eftirmiðdaga í viku en
frá og með 1. febrúar 2006 hefur
hún verið starfrækt alla virka daga
frá klukkan 8 til 16. Markmið Ljóss
ins er að styðja við þá einstaklinga
sem hafa í kjölfar veikinda átt erfitt
með að fara útí þjóðfélagið á nýjan
leik.
Horft yfir fyrsta starfsárið
Það hafði verið draumur minn og
margra annarra að stofna endurhæfing
ar og stuðningsmiðstöð úti í þjóð
félaginu þar sem krabbameinsgreindir
og aðstandendur þeirra gætu komið til
að byggja upp líkamlegt, andlegt og
félagslegt þrek. Sjúkdómurinn og allt
meðferðaferlið hefur áhrif á alla fjöl
skylduna og frá upphafi starfseminnar
hafa aðstandendur verið velkomnir í
allt það starf sem fram fer í Ljósinu.
Við í Ljósinu leggjum mikla áherslu
á að umhverfið sé styðjandi, að það sé
heimilislegt, notalegt og að fólk finni
að það sé velkomið og allir jafn
mikilvægir. Sérstök áhersla er lögð á að
taka á móti fólki með hlýju og um
hyggju, þannig skapast notalegt and
rúmsloft og fólkið finnur fyrir sam
hug.
Við vinnum mikið útfrá lífsgæðum
og lífsgleði þar sem fólk kemur saman,
spjallar, hlær og nýtur þess að vera skap
andi og jafnframt byggja upp þrek eftir
oft erfiðar meðferðir. Mikilvægt er að
þeir einstaklingar sem koma í Ljósið
fái tækifæri til að byggja upp sínar
sterku hliðar svo auðveldara verði að
takast á við lífið í breyttum aðstæðum.
Lífið verður aldrei alveg eins og áður
þar sem sú reynsla að greinast með
krabbamein fylgir þeim ætíð. Sumir
eru tímabundið í endurhæfingu og fara
aftur í sömu hlutverkin og þeir voru í
fyrir greiningu, aðrir þurfa að skipta
yfir í ný hlutverk. Þá er mikilvægt að fá
stuðning til að geta horft fram á veginn
í nýjum aðstæðum.
Starfsemin
Ljósið er opið alla virka daga frá kl. 8
til 16, Reynt er að koma til móts við
þarfir sem flestra og að dagskráin
samanstandi af tilboðum sem ná til
líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar
uppbyggingar hvort sem er í hópastarfi
eða einstaklingsvinnu. Á síðastliðnu ári
hafa orðið til þrjú stöðugildi, 1,7 stöðu
gildi iðjuþjálfa og 1 stöðugildi jóga
kennara og aðstoðarmanns. Við leggj
um okkur einnig fram um að vera í
samvinnu við fyrirtæki og félagasamtök
sem koma með námskeið inní Ljósið
og gefa starfinu nýjar víddir.
Sköpun hefur fylgt iðjuþjálfun frá
upphafi og áður fyrr var talað um að
heilsa og listsköpun tengdust og þannig
hefði sköpunin læknandi áhrif. Frá
byrjun hefur mikið verið unnið með
sköpun í Ljósinu með það að markmiði
að veita andlega næringu og sjálfstyrk
ingu. Boðið er uppá ýmiskonar hand
verk sem hefur verið vinsælt bæði hjá
körlum og konum þar má nefna, ullar
þæfingu, tréútskurð, mósaík, leður
töskugerð, bútasaum o.fl. Þá hefur
leirlistin skipað stóran sess og nýlega
bættist glerlist við flóru handverksins.
Boðið hefur verið upp á jóga frá upp
hafi sem nýtur mikilla vinsælda. Reglu
lega er boðið uppá sjálfstyrkingar
námskeið og þá fáum við til liðs við
okkur sálfræðing og prest sem er sér
menntaður í fjölskyldufræðum. Sam
vinna er við Foreldrahús og þaðan
koma tveir listmeðferðarfræðingar með
10 vikna námskeið þar sem unnið er
með tilfinningar í gegnum mynd
sköpun. Í samvinnu við Kramhúsið er
boðið upp á dans og hreyfingu og
nýlega hófum við samstarf við líkams
ræktarstöðina Hreyfingu fyrir þá sem
vilja fara á almenna líkamsræktarstöð
fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra
■ Erna Magnúsdóttir,
Iðjuþjálfi, forstöðumaður
Ljósið Endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð
Neskirkju v/Hagatorg
107 Reykjavík
S: 561 3770
LykiLorð:
krabbamein, endurhæfing,
stuðningur
■
• IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007