Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Qupperneq 13
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 • 13
ferð verkja og gildi verkja. Útkoman
sýndi að greinilegur munur var á upp
lifun verkja þó einnig hafi verið hægt
að finna samsömun (t.d í því að yngra
fólkið bæri sig verr). Asíubúar, Filipsey
ingar, Saudíarabar og Írar voru lík
legastir til að gefa munnlega til kynna
verkina sína. Afríkubúar voru hinsvegar
í afneitun og neituðu yfirleitt verkj
unum. Tilfinningalegur sársauki var
líklegri til að vera settur í orð hjá Filips
eyingum og Írum en minna hjá Asíu
búum, Afríkönum og Saudíaröbum.
Öll þjóðarbrotin töldu mismunandi
hvernig verkir væru upplifðir og tjáðir
af ríkum og fátækum og einnig væri
munur á kynslóðum (Cultural attitudes
and beliefs about pain, 2004).
Könnun gerð árið 2002 sýndi að það
að hlusta á skjólstæðinginn, hlusta eftir
upplifunum hans af því hvernig það er
að vera verkjasjúklingur og búinn að
missa flest önnur hlutverk, gaf með
ferðaraðilanum innsýn inn í heim við
komandi. Menningaráhrifin á verki þ.
e. frásagnir eða sögur sem leyfa okkur
að skyggnast inn í líf skjólstæðingsins
og skilja merkingu verkja, sjúkdóma,
lífs og dauða, segja okkur hvernig
upplifun skjólstæðingsins er og hvernig
við getum hjálpað. Frásagnirnar geyma
líka upplýsingar um hvert hafi verið
leitað lækninga, hvað sé viðeigandi að
stinga upp á varðandi meðferð, fjöl
skyldusaga og hlutverk fjölskyldunnar
í lífi einstaklingsins. Þannig kynnumst
við ólíkri menningu (Pain – Inter
national Assosiation for the study of
Pain, 2002).
Það þarf kannski í byrjun að búa til
„sameiginlegt land“, Hvergistan, þar
sem skjólstæðingurinn verður að lúta
ákveðnum reglum sem mótaðar eru í
okkar menningu og hinsvegar verðum
við að skilja skjólstæðinginn okkar og
veita rými fyrir aðra menningarsýn á
líðan og tilveru einstaklingsins.
Skjólstæðingar hafa skoðanir á verkj
um og hömlunum sínum við iðju.
Þessar skoðanir eru persónulegar en
einnig samgrónar hverri menningu.
Oft eru þessar skoðanir mótsagna
kenndar og órökréttar en erfiðar að
breyta. Þegar iðjuþjálfi er tilbúinn að
samþykkja og skilja gildismat og venjur
skjólstæðings síns eykst nálgunin við
skjólstæðinginn og líkurnar á að sam
vinnan og meðferðin verði ábótasamari
(Main, 2004; Paul, 1995).
Leiðbeiningar fyrir viðtal:
• Hvað telur þú að hafi valdið
verknum?
• Hvað telur þú að muni hjálpa
þér?
• Hvernig bregst annað fólk við
verkjunum þínum? (fjölskylda,
samstarfsfólk, starfsmenn)
• Hvernig tekst þú á við verkinn?
• Hvernig tekst þú á við vinnuna?
(Main, 2004)
Því minna sem við vitum og því
hræddari sem við erum við upplifun
okkar, þeim mun meira reiðum við
okkur á umhverfi okkar. Áhrifa um
hverfisins gætir í hugsunum okkar og
hegðun. Þetta er umhugsunarvert fyrir
okkur sem meðferðaraðila, því á annan
bóginn reiðir skjólstæðingurinn sig á
sitt fólk (maka, ættingja og vini) en á
hinn bóginn okkur heilbrigðisstarfs
fólkið. Hvernig ber þessum skilaboðum
saman?
Heimildir:
Lovering, S. (2004). Cultural attitudes /
beliefs about pain: A collaborative
inquiry journey. Action Research e
Reports, 22. Sótt 30. desember 2004,
frá http://www2.fhs.usyd.edu.au/arow/
arer/022.html.
Krefting,L.H. og Krefting,D.V (1993).
Cultural influences on Performance. Í
Cristiansen. og Baums, Occupational
Therapy; Enabling, Function and
WellBeing. Second edition. Bls 336
361. Slack Incorporated 1997. Carolyn
Manville.
Lewandowski, M.J. (2006). The Chronic
Pain Care Workbook. New Harbinger
Pubns. Inc.
Main,C.J. og Waddell,G. (2004). Beliefs
about back pain. Í Gordon Waddell
(ritstj.) The Back Pain Revolution. bls.
221239. Churchill Livingstone 2004.
Edinburg. (
Mirkopoulos, C og Evert, M.M. (1994).
Cultural Connections: A challenge
Unmet. The American Journal of
Occupational Therapy, 48 (7) 583
585.
Pain – International Assosiation for the
study of Pain (2001). Ethnicity and
Pain. Sótt 30. desember 2004, frá
http://www.iasppain.org/PCU014.
html.
Pain – International Assosiation for the
study of Pain (2002). Culture and
Pain. Sótt 30. desember 2004, frá
http://www.iasppain.org/PCU025.
html.
Pain Research & Management – Official
Journal of the Canadian Pain Society
(2002). Pain: A culturally informed
experience. Sótt 30. desember 2004 frá
http://www.pulsus.com/Pain/07_02/
ng_ed.htm.
Paul, S. (1995). Culture and its Influence
on Occupational Therapy Evaluation.
Canadian Journal of Occupational
Therapy. 62 (3), 154161.
Waddell, G. (2004) The Back Pain
Revolution. Second edition. Churchill
Livingstone 2004. Edinburg.
Menning hefur áhrif á trú og
viðhorf til verkja en
bakgrunnur einstaklingsins
og þrýstingur frá fólki í sömu
aðstöðu hefur einnig áhrif á
verkjahegðun.
■
Bókhald
og ráðgjöf
Byggðaþjónustan ehf