Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Page 23
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 • 23
heimateymi eða aðstandendur fylgi
viðkomandi heim af spítalanum. Iðju
þjálfi, hjúkrunarfræðingur og/eða
sjúkraliði, hittir skjólstæðinginn og
aðstandendur á fyrsta degi heima. Allir
skjólstæðingar fá afhenta möppu, svo
kallaða heimasjúkraskýrslu, en í henni
er samskiptablað, fyrirmælablað auk
allra helstu upplýsinga fyrir fagaðila,
skjólstæðinga og aðstandendur svo sem
vaktsímar hjá heimahjúkrun og viðeig
andi vaktsímar á LSH. Á fyrsta degi er
farið yfir möppuna með skjólstæðingum
og/eða aðstandendum. Allir teymis
meðlimir sem koma að máli skjólstæð
ingsins skrifa stutt skilaboð um fram
gang þegar það á við og/eða kvitta fyrir
komu. Einnig er mælt með að aðstand
endur skrifi skilaboð ef einhver eru.
Þetta fyrirkomulag auðveldar bæði fag
aðilum og aðstandendum að fylgjast
með gangi mála.
Hjúkrunarfræðingur, sjúkra eða
félagsliði sinna þjónustunni eftir þörf
um hvers og eins sem getur verið oft á
dag eða nokkrum sinnum á viku.
Öldrunarlæknir teymisins vitjar skjól
stæðinga innan viku frá útskrift af LSH
og vakthafandi öldrunarlæknir á bráða
deildum LSH sinnir útköllum utan
dagvinnutíma. Iðjuþjálfi og sjúkraþjálf
ari sinna skjólstæðingunum eftir þörf
um hvers og eins.
Þegar skjólstæðingarnir hafa aðlagast
því að vera komnir heim eða náð fyrri
færni, útskrifar teymið þá í samráði við
þá sjálfa og aðstandendur og haldinn
er fjölskyldufundur heima hjá skjól
stæðingnum. Þegar útskrift úr þjónust
unni hefur verið ákveðin sér teymið
um að tryggja að skjólstæðingurinn fái
viðeigandi þjónustu frá heimahjúkrun
og félagsþjónustunni. Ef fullreynt þyk
ir að skjólstæðingurinn geti ekki búið
heima lengur við þær aðstæður og þjón
ustu sem í boði er í samfélaginu þarf
viðkomandi e.t.v. að leggjast aftur inn
á LSH ef önnur varanleg úrræði svo
sem hjúkrunarrými eru ekki í boði.
Hlutverk iðjuþjálfa:
Hlutverk iðjuþjálfa í sérhæfðri heima
þjónustu fyrir veika aldraða er meðal
annars að veita íhlutun, ráðgjöf, upp
lýsingar og fræðslu til skjólstæðinga og
aðstandenda. Ráðgjöfin getur beinst að
skjólstæðingnum sjálfum og ástandi
hans sem og nánasta umhverfi hans
(heimili, nágrenni, fjölskyldu). Mat
iðjuþjálfa fer fram á heimili skjól
stæðings og felst í að komast að því
hvað hindrar viðkomandi í að gegna
hlutverkum sínum þ.e.a.s. skilgreina
hvaða vandkvæði eru á því að skjólstæð
ingurinn geti sinnt þeirri iðju sem
hann þarf og/eða langar að sinna.
Iðjuþjálfinn aflar upplýsinga um styrk
leika skjólstæðings sem íhlutunin getur
byggt á. Fram fer athugun (formleg
eða óformleg) á frammistöðu skjól
stæðingsins við ýmis verk og athafnir
daglegs lífs sem eru honum mikilvæg
hvort heldur sem er við eigin umsjá,
störf eða áhugamál. Iðuþjálfi fylgir eftir
að skjólstæðingurinn geti nýtt sér þá
fræðslu og íhlutun heima sem hann
fékk meðan hann var á LSH. Ef
heimilisathugun hefur ekki verið gerð
heima hjá skjólstæðingnum áður, þá
veitir iðjuþjálfi þá íhlutun og metur
þörf fyrir hjálpartæki til að bæta og
aðlaga umhverfið heima hjá skjól
stæðingnum. Iðjuþjálfi byrjar ýmist að
vinna með skjólstæðingnum þegar þeir
enn eru inniliggjandi á LSH eða eftir
að viðkomandi er kominn heim.
Íhlutun iðjuþjálfa í teyminu er gerð í
samráði við skjólstæðinginn og/eða
aðstandendur. Íhlutunin felst meðal
annars í að skjólstæðingurinn viðhaldi
og/eða auki hæfni sína, tilfinningalega,
félagslega, vitrænt eða líkamlega. Að
skjólstæðingurinn tileinki sér nýjar að
ferðir við að fást við þær athafnir sem
hann þarf eða langar að sinna þannig
að hann verði fær um að uppfylla hlut
verk sín í lífinu. Við íhlutun er höfð að
leiðarljósi sú færni við iðju sem við
komandi vill bæta frammistöðu sína
við eða auka ánægju sína við. Í íhlutun
inni eru notaðar athafnir og verk sem
eru mikilvæg og hafa þýðingu fyrir
skjólstæðinginn, en það getur verið
hluti af eigin umsjá, heimilisstörfum
og tómstundaiðju. Hér er t.d. átt við
þær athafnir að klæða sig, matast, kom
ast um í eigin umhverfi með göngu
grind og/eða í hjólastól og sinna
áhugamálum. Ýmis hjálpartæki geta
gert skjólstæðingnum kleift að vera
meira sjálfbjarga og búa lengur heima.
Þegar skjólstæðingar þurfa á hjálpar
tækjum að halda eru þau prófuð heima,
skjólstæðingurinn fær kennslu í að
nota tækin og tækin stillt að þörfum
hvers og eins. Iðjuþjálfi sækir síðan
viðeigandi hjálpartæki til Trygginga
stofnunar ríkisins (TR).
Lokaorð
Þrátt fyrir að sérhæfð heimaþjónusta
fyrir veika aldraða hafi aðeins starfað í
fáa mánuði þá hefur það sýnt sig að
þeir skjólstæðingar sem fengið hafa
þjónustuna hafa fundið mikið öryggi í
svo góðri eftirfylgd heim af LSH. Það
sem sérstaklega hefur þótt veita öryggi
er stöðugleiki í þjónustunni, tíðar heim
sóknir, þverfagleg þjónusta og gott
aðgengi að öldrunarlækni. Það hefur
einnig sýnt sig að skjólstæðingar og að
standendur þeirra sem fengið hafa
þjónustu hjá SHVA teyminu í kjölfar
útskriftar af LSH, hafa þurft allt að
eina til tvær vikur til að aðlagst því að
vera komin heim eða ná fyrri færni
eftir að hafa legið á spítala í lengri eða
skemmri tíma.
Til ábendingar
Í gegnum starf mitt í heimateyminu
hef ég séð mikilvægi þess að iðjuþjálfar
sinni eftirfylgni hvað varðar hjálpartæki
sem þeir sækja um til TR. Oftar en
ekki hefur komið í ljós að skjólstæðingar
kunna ekki að nota tækin og/eða að
tækin passa ekki þegar heim er komið.
Það er líka áhugavert að velta fyrir sér
hver ber ábyrgð á að hjálpartækin skili
sér til skjólstæðinga þannig að þau séu
notuð á réttan hátt og passi. Hvaða
ábyrgð bera iðjuþjálfar sem sækja um
tækin og/eða þeir sem afhenda tækin
til skjólstæðinga, hvort sem það eru
hin ýmsu fyrirtæki eða TR. Einnig
hefur komið í ljós þörf fyrir önnur
hjálpartæki þegar skjólstæðingurinn er
búin að vera heima í nokkra daga sem
ekki var hægt að sjá fyrir áður.
Um er að ræða nýbreytni í
meðferð og eftirfylgni við
veika aldraða. Ætluð þeim
sem geta og vilja útskrifast
heim af LSH en hafa þörf
fyrir fjölþættari þjónustu en
þegar er í boði í
samfélaginu.
■
Markmið þjónustu SHVA
teymisins er að tryggja sam
heldni í meðferð frá sjúkrahúsi
til heimilis og styrkja
aðlögunarhæfni skjólstæðinga
og/eða fjölskyldu eftir útskrift
af sjúkrahúsi.
■