Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Side 27

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Side 27
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 • 27 Matstækið Impact on Participation and Autonomy sem í íslenskri þýðingu er Áhrif á Þátttöku og Sjálfræði (ÁÞS) metur þátttöku og sjálfræði frá sjónar­ horni einstaklingsins. Matsækið er spurningalisti sem var þróaður þar sem þörf var á matstæki sem metur þátttöku og sjálfræði frá sjónarhorni einstaklinga. Í lokaverkefni greinar­ höfundar er fjallað um þátttöku og sjálfræði einstaklinga með mænuskaða og í þvi er hægt að skoða tilrauna­ útgáfu matstækisins. Áhrif á Þátttöku og Sjálfræði Þátttaka og sjálfræði eru mikilvægir þættir í lífi flestra. Sjálfræði er geta til þess að hugsa og framkvæma af frjáls­ um og sjálfstæðum vilja án hindrana. Til þess að einstaklingar sem búa við fötlun eða langvinnan sjúkdóm geti verið sjálfráðir verður að bera virðingu fyrir ákvörðunum þeirra og því sem þeir vilja og gera. Í mörgum tilvikum getur sjálfræði þeirra verið takmarkað. Það getur dregið úr möguleikum þeirra til þátttöku í daglegu lífi og haft slæm áhrif á bæði líkamlega heilsu sem og geðheilsu. Matstækið Impact on Partici­ pation and Autonomy sem hér eftir verður nefnt Áhrif á Þátttöku og Sjálfræði (ÁÞS) metur þátttöku og sjálfræði frá sjónarhorni einstaklingsins. Áhrif á Þátttöku og Sjálfræði kannar einnig að hvaða marki einstaklingar upplifa takmarkanir á þátttöku og sjálfræði sem vandamál (Kersten, einka­ samskipti 4. apríl 2006). Þátttaka Í gegnum lífið kynnist fólk mismun­ andi iðju og finnur með tímanum hverskonar iðju það vill geta stundað. Venjur og menning í hverju samfélagi hafa áhrif á hvað fólk lærir og gerir daglega. Hvað einstaklingur gerir á hverjum degi, hversu vel hann gerir það og hversu mikið hann nýtur þeirrar iðju sem hann stundar í daglegu lífi er háð stöðu, aldri, fjölskyldu, samfélagi, stuðningi frá umhverfinu og fleiri þáttum eins og til dæmis fötlun eða sjúkdómum (Law, 2002). Sjálfræði Sjálfræði hefur verið skilgreint með mismunandi hætti í gegnum tíðina. Cicirelli skilgreinir sjálfræði þannig að það sé hæfileikinn til að taka og fylgja meðvitaðri ákvörðun sem hefur það takmark að fullnægja þörfum og ná markmiðum sem eru í samræmi við eigið gildismat. Til þess að einstaklingur sé sjálfráður þarf hann að búa yfir ákveðinni hæfni. Hann þarf að hafa rökhugsun, dómgreind, hæfileika til þess að velta vöngum og bera saman valkosti, geta leyst vandamál og geta fylgt ákvörðun sinni eftir. Ýmsir þættir geta haft áhrif á sjálfræði til dæmis geðsjúkdómar, ungur aldur, þroska­ skerðing, viljaleysi til ákvörðunartöku eða reglur samfélagsins komi í veg fyrir sjálfstæða ákvarðanatöku (Cicirelli, 1989; Ingibjörg Ásgeirsdóttir, 2001). Guðmundur Frímannson heimspek­ ingur hefur skilgreint sjálfræði á svipað­ an hátt og Cicirelli en bendir um leið á að sjálfráður maður erfi siðgæði sitt í gegnum þær hefðir og menningu sem hafa verið í gildi hjá fyrri kynslóðum. Einnig nefnir hann að það sé afar menningarbundið hvernig sjálfræði og siðareglur í hinum mismunandi sam­ félögum heimsins séu (Guðmundur H. Frímannson, 1993; Ingibjörg Ás­ geirsdóttir, 2001). Höfundar matstækisins ÁÞS sem fjallað verður um hér á eftir horfa að hluta til öðruvísi á sjálfræði en hefur verið gert í gegnum tíðina. Þeir hafa kannað sjálfræði í tengslum við þátt­ töku einstaklinga í samfélaginu. Cardol og félagar telja það undirstöðu atriði sjálfræðis að virðing sé borin fyrir hugs­ unum, ákvörðunum og því sem ein­ staklingurinn gerir. Þeir telja nauð­ synlegt að hafa sjálfræði í huga þegar þátttaka er skoðuð. Ef einstaklingur býr við langtíma fötlun getur það hindr­ að sjálfræði hans og þátttöku í daglegu lífi. Starfsfólk í endurhæfingu getur ýtt undir sjálfræði einstaklings með því að hvetja hann til virkrar þátttöku í eigin endurhæfingu. Markmið einstaklingsins og gildi verða að vera skýr til að hann geti öðlast möguleika á að taka þátt í dag­ Áhrif á þátttöku og sjálfræði ■ Anna Soffía Vatnsdal iðjuþjálfi LykiLorð: Þátttaka, sjálfræði, fötlun, matstæki ■

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.