Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Side 6

Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Side 6
Í Fræðslu­ og kynningarnefnd 2009­2010 sitja Björg Hreinsdóttir, Bryn­ hildur Guðmundsdóttir, Helga Kristín Gestsdóttir, Rakel Anna Másdóttir og Sigrún Jóna G. Eydal. Anne Grethe Hansen og Kristín Thorberg byrjuðu í nefndinni á síðasta aðalfundi og sátu fram í júní en þá komu nýir fulltrúar inn í þeirra stað. Karen Björg Gunnars­ dóttir fór í fæðingarorlof á tímabilinu. Stöðugleiki hefur því ekki verið aðals­ merki nefndarinnar þetta árið. Helga Kristín gegnir formennsku í nefndinni en fyrir utan það skiptir nefndin ekki með sér hlutverkum. Hlutverk nefndarinnar hefur tekið stakkaskiptum á undanförnu ári. Áður var aðalhlutverk nefndarinnar að hafa yfirumsjón með fræðslumálum innan félagsins. Nefndin sinnir því enn í dag ásamt því að vinna að kynningarmálum. Stærsta og viðamesta verkefnið er að halda utan um og skipuleggja hið árlega verkefni Skólatöskudaga. Fræðslumál Lítið hefur verið lagt upp úr fræðslu­ fundum undanfarið og þess hefur verið spurt innan nefndarinnar hvort sam­ eiginlegir fræðslufundir heyri sögunni til, þar sem þátttaka félagsmanna hefur verið takmörkuð. Nefndin hefur skoðað aðrar útfærslur á fræðslufundum þar sem nauðsynlegt er að slíkur vettvangur sé til staðar. Þær leiðir sem hafa verið nefndar eru að hafa fundina á vinnutíma og að tengja þá starfi faghópa meðal iðjuþjálfa þannig að starf þeirra nýtist fyrir fleiri félagsmenn. Gaman er að geta þess að félagið skrifaði undir samning við Endurmenntun Háskóla Íslands nú í vor og því ætti að vera hægt að skipuleggja stærri og viðameiri námskeið í samvinnu við hana. Skólatöskudagar Í ár eru Skólatöskudagar haldnir í fjórða sinn á landsvísu að bandarískri fyrirmynd. Penninn­Eymundsson hefur styrkt verkefnið undanfarin ár og í fyrra hófst samvinna við Lýðheilsustöð og verkefnið „Göngum í skólann“ á vegum Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ). Vinna hefur verið lögð í að endur­ hanna skólatöskuálfinn og útbúa lita­ blöð og þrautablöð fyrir nemendur. Árið 2008 var þátttaka í verkefninu með ágætum, en um 70 iðjuþjálfar og iðjuþjálfanemar heimsóttu um 40 skóla eða 1920 nemendur. Tölur fyrir árið í ár eru ekki staðfestar en þátttaka var svipuð og í fyrra og heimsóttir voru um 40 skólar. Helsti munurinn milli ára er sá að þetta árið hittu iðjuþjálfar mun fleiri nemendur en árið á undan, eða um 3250 nemendur alls. Um­ fjöllun var um verkefnið í útvarpi, blöðum og netmiðlum. Hægt er að nálgast skýrslu vegna Skólatöskudaga 2008 á www.sigl.is og eins gögn sem þeim tilheyra. Kynningarmál Nefndin hefur leitað til Ragnheiðar Eiríksdóttur, nýsköpunar­ og þróunar­ stjóra hjá Bandalagi Háskólamanna (BHM), í tengslum við kynn ingarmál og leitað ýmissa leiða til að kynna iðjuþjálfun í samfélaginu. Kynn ingar­ herferð er kostnaðarsöm og því hafa verið farnar leiðir sem fela í sér lítinn kostnað en eru áhrifaríkar, t.d. í gegnum blöð, útvarp og netmiðla. Kynningarmál eru vaxandi verkefni í starfi nefndarinnar og hægt og rólega byggist upp þekking og reynsla í þessum málaflokki. Að lokum Fræðslu­ og kynningarmál fela í sér samvinnu við félagsmenn til að árangur náist og því viljum við hvetja ykkur til að vera dugleg að aðstoða okkur við að koma með hugmyndir og útfæra þær. Því fleiri sem eru virkir því meiri líkur eru á góðum árangri. Stöndum saman okkur sjálfum og faginu til hagsbóta! Með góðri kveðju fyrir hönd fræðslu- og kynningarnefndar, Helga Kristín Gestsdóttir formaður Fréttir frá fræðslu- og kynningarnefnd 6 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.