Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Page 8
8 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009
Í kjaranefnd 20092010 sitja eftir taldir iðjuþjálfar: Berglind Indriðadóttir,
Dagný Þóra Baldursdóttir, Ólöf Leifs
dóttir, Hulda Birgisdóttir, Helga
Guðjónsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Sigurbjörg Hannesdóttir og Bergdís
Ösp Bjarkadóttir (í fæðingarorlofi).
Netfang nefndarinnar er kjaranefnd.ii@
sigl.is. Á heimasíðu Iðjuþjálfafélags
Íslands (IÞÍ) er að finna eyðublað fyrir
fyrirspurnir til kjara nefndar, undir
hlekknum kjaramál. Hugmyndin á bak
við eyðublaðið er annars vegar að
tryggja það að allar nauðsynlegar upp
lýsingar berist nefndinni og hins vegar
að flýta fyrir afgreiðslu fyrir spurna.
Fyrirspurnir til kjaranefndar
Kjaranefnd svaraði á þriðja tug fyrir
spurna frá félagsmönnum varðandi
kaup og kjör á starfsárinu 20082009.
Margar þeirra snérust um hvernig skyldi
skilgreina ný störf og röðun í launatöflu,
en í kjölfar breyttra aðstæðna í efnahags
málum bárust allnokkrar fyrirspurnir
um réttmæti hagræðingaraðgerða á
stofnunum, svo sem uppsagna á föstum
greiðslum og öðrum kjörum. Því miður
kom það í ljós að í einhverjum tilfellum
beittu stofnanir ólögmætum vinnu
brögðum, svo sem uppsögnum á kjara
samningsbundnum kjörum. Mikið og
gott samstarf var við önnur félög innan
Bandalags háskólamanna (BHM), ekki
síst félaga okkar í SIGL, um samræmd
viðbrögð þegar bregðast þurfti við
slíkum aðgerðum. Einnig veitti forysta
BHM og kjara og réttindahópur
banda lagsins góðan stuðning og ráðgjöf.
Í nokkrum málum leitaði kjaranefndin
álits lögfræðings BHM. Það kom því
berlega í ljós að stór bakhjarl eins og
BHM kemur sér vel þegar á reynir.
Nú í sumar og haust hafa kjara
nefndinni ekki borist neinar fregnir eða
fyrirspurnir frá félagsmönnum varðandi
breytingar á kjörum í kjölfar niður
skurðar eða annarra hagræðingaraðgerða.
Enn og aftur viljum við því hvetja
félagsmenn til að fylgjast vel með sínum
málum og láta okkur vita ef breytingar
verða, svo sem breytingar á launa
greiðslum, skerðing á starfshlutfalli að
frumkvæði stofnunar eða aðrar breyt
ingar á ráðningarkjörum – það er mjög
mikilvægt fyrir okkur að fá fregnir af því
hvað er að gerast á vinnu stöð unum.
Einnig er rétt að minna á að stofnana
samningar eru í fullu gildi, þar með talið
starfsaldurs og lífaldurs tengdar hækkanir
þar sem samið hefur verið um þær. Og
ef svarið við spurn ingunni í yfirskrift
pistilsins er „nei“, er kominn tími til að
renna yfir seðilinn! Nýlegt dæmi er um
að ónýttur persónu afsláttur hafi „núllast“
á milli mánaða, þrátt fyrir að starfs
maðurinn ætti um 180 þúsund eftir
þegar betur var að gáð.
Trúnaðarmenn
Sumar þeirra fyrirspurna sem kjara
nefnd berast eru þess eðlis að vel upp
lýstir trúnaðarmenn á vinnu stöð unum
ættu að geta veitt svör við þeim. Í
tengslum við trúnaðar manna námskeið
á vegum BHM í byrjun mars 2009,
sendi kjaranefndin hvatningu til félags
manna um að kjósa trúnaðarmenn á
vinnustöðunum. Viðbrögðin voru mjög
góð og er nú skráður trúnaðar maður á
flestum stærri vinnustöðum iðjuþjálfa.
Sjóðir BHM
Nú þegar margir hafa minna á milli
handanna vill kjaranefndin vekja athygli
félagsmanna á sjóðum BHM. Athugið
að stéttarfélagsgjöld eru dregin af
launum félagsmanns hjá Iðjuþjálfafélagi
Íslands og eru þau 1,5% af dagvinnu
launum. Greiðslur í sjóðina eru hins
vegar mótframlag frá vinnuveitanda og
eru þær mismunandi hlutfall af launum
eftir því um hvaða sjóð er að ræða.
Nokkrir sjóðir starfa á vegum BHM
eða í tengslum við BHM og má afla sér
ítarlegra upplýsinga um starfsemi þeirra
á vef BHM, www.bhm.is. Hér er hins
vegar stutt ágrip af starfsemi og helstu
úthlutunarreglum sjóðanna.
Elsti og stærsti sjóðurinn er Orlofs
sjóður BHM, sem hefur það markmið
að auðvelda sjóðfélögum að njóta orlofs.
Sjóðurinn á yfir 40 húseignir víða um
land, þar af eru yfir 30 í heilsársnotkun.
Aðildin verður virk um leið og byrjað er
að greiða í sjóðinn þannig að félagsmenn
geta strax fengið orlofshús utan sumar
orlofstíma ef þau eru laus, en þá gildir
reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Á
sumarorlofstíma er hins vegar úthlutað
samkvæmt umsóknum og punktakerfi
og þá fær sá úthlutað sem á flesta
punkta.
Sjúkrasjóður BHM er aðeins opinn
félagsmönnum aðildarfélaga sem starfa
á almennum vinnumarkaði. Hlutverk
sjóðsins er að veita fjárhagsaðstoð í
nánar tilteknum tilvikum, og styðja við
endurhæfingu og forvarnir samkvæmt
nánari úthlutunarreglum. Réttindi
félagsmanna í sjóðinn verða virk þegar
greiðslur hafa borist sjóðnum í sex
mánuði samfellt.
Styrktarsjóður BHM er fyrir starfs
menn ríkisins, sveitarfélaga og sjálfs
eignarstofnana. Markmið sjóðsins er að
styrkja sjóðfélaga með fé og koma
þannig til móts við tekjutap vegna
ólaunaðrar fjarveru vegna veikinda eða
annarra persónulegra aðstæðna. Einnig
er markmiðið að bæta útgjöld vegna
ýmiss konar heilbrigðisþjónustu og
óvæntra áfalla sjóðfélaga. Sömuleiðis
verða réttindi félagsmanna virk þegar
greiðslur sex mánaða hafa borist sjóðn
um en þar af þurfa þrír mánuðir að vera
samfellt. Við hvetjum félagsmenn til að
kynna sér nánar úthlutunarreglur sjóðs
Kjaranefnd
– Lest þú launaseðilinn þinn?