Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Page 11
Staðan í dag
Í stéttarfélögunum starfa í dag 14
ráðgjafar sem Starfsendur hæfing ar
sjóður ber kostnað af. Á næstunni
munu 23 ráðgjafar hefja störf. Þessir
ráðgjafar hafa hitt mjög marga ein
staklinga sem búa við misjafna stöðu.
Margir koma og hitta ráðgjafana þegar
þeir koma inn í sjúkrasjóði, sumir eru
enn þá í veik indaleyfi hjá vinnu
veitanda og nokkrir eru enn í starfi, en
eru komnir í ákveðið veikindamynstur
þannig að gripið er inn í strax og
áætlun sett í gang í samstarfi við
atvinnu rekanda, ráðgjafa og lækni eða
annan með ferðaraðila einstaklingsins.
Í nokkrum tilfellum hefur niðurstaðan
orðið sú að viðkomandi starfsmaður
minnkar við sig vinnu tímabundið, fer
í ákveðin úrræði sem hafa verið metin
og heldur þar af leiðandi vinnusam
bandinu og vinnan er hluti af endur
hæfingunni.
Fókusinn hjá Starfsendur hæfingar
sjóði og ráðgjöfum sem eru í stéttar
félögunum er alltaf á vinnuna og
vinnusambandið. Ef einstaklingur
kemur til ráðgjafa er ein af fyrstu
spurningunum hvort viðkomandi sé
með vinnusamband og ef svo er þá er
unnið með það.
Fyrir utan beina vinnu við að sinna
ráðgjöfunum erum við hjá Starfs
endurhæfingarsjóði með mörg verkefni
í gangi. Það eru t.d. kynningar á öllum
heilsugæslum á landinu, kynningar
fyrir stjórnendur fyrirtækja varðandi
það að mynda strax tengingu ef þeir
eru með starfsmenn í veikinda leyfi,
verkefni með lífeyrissjóðum, vinna
með nýtt starfshæfnismat (örorkumat)
og fleira. Hugmyndir að nýju starfs
hæfnismati er sú skimun eða það mat
sem ráðgjafarnir vinna með ein
staklingunum og er hluti af nýju starfs
hæfnismati. Vinnan með nýtt starf
hæfnismat er mjög spennandi og þar
koma margir að.
Í heildina er þetta mjög spennandi
starf og mikið að gerast. Á þessum
vettvangi er gripið inn mun fyrr í
ferlinu heldur en við iðjuþjálfar erum
kannski vanir að gera. Það er mikilvægt
að hafa í huga að sá tími sem fólk er í
veikindaleyfi er mislangur, allt frá
þremur mánuðum upp í heilt ár. Þetta
er mjög mikilvægur tími sem þarf að
nýta vel, en allt of oft eru ráðgjafarnir
að hitta fólk sem er að klára sinn rétt
og lítið sem ekkert hefur verið unnið
með. Það er mikil vinna fram undan
hjá okkur og mikilvægt að það komi
fram að við erum ekki úrræði, en
nýtum öll þau úrræði sem eru til staðar
í dag og vísum einstaklingum þangað
ef þörf er á. Það þarf meiri fjölbreytni í
starfsendur hæfingarúrræði hér á Íslandi
í dag, fleiri úrræði sem tengja fólk með
skerta starfsgetu beint út á vinnu
markaðinn og vonandi getum við haft
áhrif til að finna þau.
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 • 11
www.oryggi.is
Aukin
þjónusta með
öryggishnapp
• Reykskynjari beintengdur vaktmiðstöð
fylgir hverjum hnapp.
• Hjá Öryggismiðstöðinni eru hjúkrunar-
fræðingar á vakt allan sólarhringinn.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
1
0
2
570 2400 og fáðu öruggari öryggishnapp!Hringdu í
ww .oryggi.is