Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Page 15
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 • 15
Vefsíðan idjuthjalfun.is var upphaflega opnuð 24. október 2008 og
þá sem verkefni nemenda sem voru á
fjórða ári í iðjuþjálfun við Háskólann á
Akureyri. Markmiðið með síðunni var
að kynna iðjuþjálfun fyrir Íslendingum.
Vefsíðan var í senn ætluð almenningi
og fag mönnum, þar á meðal starfandi
iðju þjálfum, og því var frá fyrsta degi
ákveðið að safna saman sem mestu af
aðgengilegum upplýsingum um iðju
þjálfun á einn stað.
Í fyrstu voru aðallega sett inn gömul
verkefni frá nemendum í iðjuþjálfun.
Þetta voru verkefni sem talið var að
gætu nýst almenningi og starfandi iðju
þjálfum. Fljótlega vatt verkefnið upp á
sig og settar voru inn upplýsingar frá
iðjuþjálfum sem eru starfandi víðs vegar
um landið.
Áhersla var lögð á að hafa uppbygg
ingu vefsíðunnar fagmannlega en í senn
einfalda. Mikill áhugi kom fljótlega
fram meðal nokkurra nemenda á að
viðhalda vefsíðunni eftir útskrift, enda
mikilvægt að kynna iðjuþjálfun frekar
hér á landi.
Á idjuthjalfun.is má nú finna fréttir
um iðjuþjálfun á Íslandi, greinar sem
tengjast faginu, tengla yfir á gagnlegar
vefsíður og fjöldann allan af útgefnu
efni. Má þar nefna blaðið Iðjuþjálfa
nemann (útskriftarblað iðjuþjálfanema)
á tölvutæku formi, kynningu á starfsemi
iðjuþjálfa víðs vegar um landið, gömul
nemendaverkefni (sem aðrir geta von
andi nýtt sér) og upplýsingar um hin
ýmsu matstæki sem iðjuþjálfar nýta sér
nú þegar.
Vefsíðan er enn í þróun og það er von
okkar að hún stækki og eflist með
tímanum. Vefurinn er kjörinn vett
vangur fyrir markaðssetningu og upp
lýsingamiðlun sem iðjuþjálfar verða að
nýta sér. Við hvetjum alla sem vilja
bæta við efni eða koma með hugmyndir
að þróun vefsins að senda okkur póst á
idjuthjalfun@idjuthjalfun.is.
Fyrir hönd ritstjórnar idjuthjalfun.is
Sigurður Hólm Gunnarsson
iðjuþjálfi
Að lokum viljum við þakka:
* Elínu Ebbu Ásmundsdóttur fyrir að
trúa á þann eldmóð sem í okkur býr
* Iðjuþjálfafélagi Íslands og iðju þjálf
unarbraut Háskólans á Akureyri fyrir
stuðning og sveigjanleika
Um idjuthjalfun.is
– www.idjuthjalfun.is
Styrktarlínur:
Gigtarfélag Íslands
Ármúla 5
Reykjavík
Sjálfsbjörg
Endurhæfingarstöð
Akureyri