Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Page 22
22 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009
Margar rannsóknir hafa verið gerðar bæði á Íslandi og erlendis á ein
stak l ingum með heilabilun. Hvernig
heila biluðum muni fjölga verulega, í
hvernig umhverfi heilabiluðum líði best,
hvernig umönnun og hjúkrun henti
þessum einstaklingum, hvernig best sé
að sinna aðstandendum og hvernig
fræðsla og menntun henti starfsfólki
sem sinnir þessum einstak lingum
(Oddur Ingi mars son, Thor Aspelund og
Pálmi V. Jónsson, 2004a).
Ef við lítum til nágrannaþjóða okkar
þá hafa t.d. Norðmenn sett upp heildar
stefnu varðandi umönnun aldraðra til
ársins 2015. Markmið þessarar stefnu er
að hafa yfirsýn yfir verkefni fram tíð
arinnar. Eitt af lykilatriðum stefn unnar
er að mæta þörfum heilabilaðra í fram
tíðinni og flokka Norðmenn heilabilun
efst í forgangsröð í skipulagi umönnunar
aldraðra til ársins 2015 (Norwegian
Ministry of Health and Care Services,
20052006).
Þegar verkefnastjórnendur kynntust
þessari stefnu kviknaði hugmynd um
það hvernig hægt væri að byggja upp
heildar stefnumótun innan Hrafnistu
fyrir ein staklinga með heilabilun og ýta
úr vör breytingum til að bæta lífsgæði
þeirra á hjúkrunardeildum Hrafnistu.
Okkar markmið með þessari stefnu
mótun er að:
• Setja fram heildstæða stefnu varð andi
umönnun heilabilaðra á Hrafnistu
• Staðfæra að íslenskum veruleika
niður stöður og hugmyndafræði
rannsókna ýmissa fræðimanna um
hvernig best verður búið að heila
biluðum á hjúkrunarheimilum, það
er að segja líkamlega, félagslega og
andlega
• Samþætta kenningar og að yfirfæra
þær niðurstöður í verki á hjúkr un
ardeild á Hrafnistu með þverfaglegri
vinnu margra starfsstétta
• Að auka og efla lífsgæði heimilis
manna Hrafnistu og aðstandenda
þeirra
• Að auka starfsánægju starfsmanna
• Að gera starfendarannsókn (e. action
research) við framkvæmd yfirfærsl
unnar við mat á árangri verkefnisins
Samkvæmt spá Hagstofu Íslands er
gert ráð fyrir að landsmenn verði
rúmlega 437.000 árið 2050, en við
upphaf ársins 2007 var íbúafjöldi
307.672. Ævilengd landsmanna vex og
má gera ráð fyrir að konur á Íslandi geti
vænst þess að verða 82,8 ára árið 2007
en 87,1 árs árið 2050, karlar geta vænst
78,9 ára aldurs árið 2007 en 84,6 ára
árið 2050 (Brynjólfur Sigurjónsson og
Ólöf Garðarsdóttir, 2007). Vegna þessa
má gera ráð fyrir miklum breytingum á
aldurssamsetningu þjóðarinnar og mun
því öldruðum fjölga verulega til ársins
2050. Árið 2050 er gert ráð fyrir að
7,5% íbúa verði áttræðir eða eldri
samanborið við 3,1% árið 2007.
Samhliða hækkun meðalaldurs og
fjölgun þjóðarinnar er heilabilun eitt af
vaxandi heilbrigðisvandamálum og einn
stærsti orsakavaldur vistunar á hjúkr
unar heimilum hér á landi sem erlendis
(Bond, Briggs og Coleman, 1993;
Oddur Ingimarsson, Thor Aspelund og
Pálmi V. Jónsson, 2004b).
Þegar lífsgæði aldraðra með heilabilun
eru skoðuð kemur í ljós að þrír lykil
þættir skipta máli en þeir eru líkamleg,
andleg og félagsleg vellíðan, auk þess
sem þættir eins og umhverfi, trú og
almenn lífsánægja skipta máli. Hjá
öldruðum þarf líka að veita vitrænni
getu sérstaka athygli (Borg, Hallberg og
Blomquist, 2006). Þótt ekki allir með
heila bilun þurfi sérrúræði, svo sem
lokaðar deildir, sýna rannsóknir að
Heildarstefnumótun varðandi
umönnun heilabilaðra á Hrafnistu
Verkefnastjórar og höfundar greinar
Hrönn Ljótsdóttir, félagsráðgjafi
Lovísa Agnes Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Hrafnistu Hafnarfirði
Sigurbjörg Hannesdóttir, deildarstjóri iðjuþjálfunar og félagsstarfs Hrafnistu í Reykjavík