Skólavarðan - 01.03.2005, Page 4
GREINAR
Sameining kennara var heillaskref 5
Viðtal við Elnu Katrínu Jónsdóttur.
Kynjaskipting vinnumarkaðarins á sér rætur í hugsun um störf 8
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir lektor í HÍ er gestapenni. Hún greinir frá fróðlegum
niðurstöðum úr könnun sem hún gerði.
Tónlistarfræjum sáð í Garðabæ 12
Skólavarðan fór í heimsókn í Tónlistarskóla Garðabæjar sem
er 40 ára um þessar mundir.Agnes Löve er skólastjóri þar.
Sjö dagar í Palestínu 14
Formaður Kennarasambands Íslands, Eiríkur Jónsson, segir frá ferð sinni til
Palestínu og fylgir úr hlaði þeirri hugmynd sinni að styðja palestínska kennara
til að endurvekja samtök sín.
Út um mó inn í skóg 16
Leikskólinn Álfheimar á Selfossi er skógarskóli. Þar læra börnin að
njóta útiveru og um leið að umgangast náttúruna af þekkingu og virðingu.
Meistaragráða í kennslufærði í Háskóla Íslands 18
Viðtal við Hafdísi Ingvarsdóttur dósent og forstöðumann
kennslufræðináms í Háskóla Íslands.
Að sjá tækifærin í umhverfi sínu 20
Skólavarðan fór í heimsókn í Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu og
tók Eyjólf Guðmundsson skólameistara tali. Það er mikil gróska í skólastarfinu
í FAS og mörg snúin mál leyst með hagkvæmum hætti þótt skólaumdæmið sé
ótrúlega víðfeðmt.
Samtök fámennra skóla 27
Þórunn Júlíusdóttir segir frá nýjum fræðslu- og námskeiðsvef
um starf og samkennslu í fámennum skólum.
FASTIR LIÐIR
Formannspistill 3
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands skrifar.
Smiðshöggið.
Fækkun eininga í stærðfræði á framhaldsskólastigi 31
Ragna Briem stærðfræðikennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð bendir
á staðreyndir sem blasa við og varða dýrkeypta skerðingu náms í stærðfræði.
Skóladagar 18
Myndasaga Skólavörðunnar.
Að auki
Fréttir af aðalfundum aðildarfélaga KÍ, mannabreytingum í stjórnum
og fleiru fróðlegu fyrir kennara.
Forsíðan
Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður KÍ og fráfarandi formaður FF prýðir forsíðu
þessa tölublaðs. Ritstjóri Skólavörðunnar tók við tal við Elnu í tilefni þess að
nokkrar breytingar verða nú á högum hennar.
Ljósmyndari er Kristín Bogadóttir.
Yf irsýn - innsæi
Sá sem fjallar um stóra málaflokka þarf að hafa yfirsýn yfir þau
og innsæi. Sá sem hefur vald til gera grundvallarbreytingar á
stórum málum en skortir yfirsýn og innsæi getur gert óbætan-
legan skaða. Stytting námstíma til stúdentsprófs er stórt mál og
mikilvægt að öll skref sem stigin eru í því máli þurfi að gaum-
gæfa vel. Þegar hugmyndinni var ýtt úr vör var því heitið að
haft skyldi samráð við kennara og almenning. Hér er auglýst
eftir því samráði.
Allir kennarar eru sammála ráðherra um að námskrár eigi
að vera í stöðugri endurskoðun. Eðlilegast væri að gera rann-
sóknir á gæðum námskráa, finna á þeim kost og löst, sníða af
þeim vankanta og þróa áfram það sem gefst vel. Lítið eitt lengri
tími til að læra til stúdentsprófs en tíðkast í öðrum löndum er
íslensku skólakerfi til sóma. Hvað geta ungmenni aðhafst upp-
byggilegra en að mennta sig? Hver kannast ekki við ráðvillta
stúdenta þótt þeir séu orðnir tvítugir? Bíður atvinnulífið þeirra
með opna arma?
Nú eru að baki aðalfundir allra aðildarfélaga Kennarasam-
bandsins. Nokkrar mannabreytingar hafa orðið í stjórnum
félaganna. Nýr formaður FG er Ólafur Loftsson og Akureyring-
urinn Aðalheiður Steingrímsdóttur tekur við formennsku í FF.
Við bjóðum þau velkomin í brúna. Elnu Katrínu fráfarandi for-
manni FF er þökkuð vel unnin störf en hún heldur áfram sem
varaformaður KÍ.
Eiríkur Jónsson formaður KÍ fór í sögulega ferð til Palestínu í
vetur og lýsir upplifun sinni hér í blaðinu. Hann hefur það mark-
mið að Kennarasamband Íslands styðji palestínska kennara í því
að endurvekja samtök sín og efla þannig skólamálin þar í landi
sem búa við skelfilegar aðstæður. Tillaga um þetta mál verður
lögð fram og ákvörðun tekin um þetta mál á þingi Kennarasam-
bandsins núna í mars.
Lesendum Skólavörðunnar voru svo glaðir yfir krossgátunni
í jólablaðinu að ég lét undan þrýstingi og birti eina til að leysa
yfir páskana.
Góða skemmtun og gleðilega páska,
Guðlaug
4
LEIÐARIEFNISYFIRLIT
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005
Ritstjóri: Guðlaug Guðmundsdóttir gudlaug@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Skóladagar - teiknimyndasaga: Ingi Jensson
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Svansprent
Forsíðumynd: Kristín Bogadóttir
Skólavarðan, s. 595 1118 (Guðlaug) og 595 1119 (Helgi).
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík