Skólavarðan - 01.03.2005, Blaðsíða 7
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
7
endalaust í öskustó. Það er skólastarfi
fjötur um fót ef launakjör kennara, skóla-
stjórnenda og námsráðgjafa eru ekki
þokkalega góð. Þar megum við ekki bara
líta til launanna heldur til starfskjaranna
yfirleitt. Það þarf að vera nægur tími til að
sinna kennslunni, undirbúningi og þeim
störfum sem vinna þarf með nemendum
og að skólarnir hafi eðlilegt svigrúm til að
sinna þróun, framfarastarfi og átta sig á
þeim breytingum sem samfélagið krefst
að þeir taki þátt í.“
Árið 1999 ákváðu stéttarfélög kennara
á Íslandi að ganga í bandalag og Kennara-
samband Íslands hið nýja hóf störf árið
2000. Var þetta heillaskref?
„Já, tvímælalaust. Það má eiginlega
segja að hugmyndin um að sameina alla
kennara í ein heildarsamtök hafi fylgt mér
allt frá því ég byrjaði sjálf að kenna. Og
ekki má gleyma því að viðleitni til að sam-
eina kennara hafði staðið allt frá 7. áratug
síðustu aldar. En það vill svo skemmtilega
til að alheitustu sameiningarsinnarnir
voru við kennslu með mér á Austurlandi.
Ég fékk m.ö.o. gott uppeldi sem kennari
í að berjast fyrir þeirri hugsjón að sam-
eina kennara í eitt félag. Ég man eftir
sjálfri mér talandi um þetta strax 1983.
Það voru margir sem höfðu þessa hugsjón
og stundum tók á eins og á 9. áratugnum
þegar alvarleg tilraun sem gerð var til að
sameina HÍK og hið gamla KÍ mistókst.
En þegar gerð var ný atlaga var verkinu
gefinn nægur tími. Ég er sammála Eiríki
Jónssyni, formanni Kennarasambandsins
og samverkamanni mínum til margra ára,
að sennilega hefur það skipt sköpum um
sameininguna að okkur tókst vel að vinna
saman í erfiðum kjarasamningum og verk-
falli árið 1995. Þá komu grunn- og fram-
haldsskólakennarar baráttumálum sínum
sameiginlega í höfn. Það sem á eftir kom
var léttara. Ég held að sameining kennara-
félaganna hafi tvímælalaust verið heilla-
skref og ákaflega ánægjulegt að leikskóla-
kennarar bættust fljótlega í hópinn.“
Hvernig breytist aðkoma þín að mál-
efnum kennarastéttarinnar nú þegar þú
sleppir hendinni af FF?
„Á löngum ferli breytast áherslur og
áhugamál. Núna stöndum við frammi fyrir
því að gera nýjan kjarasamning og ég
reikna með að það komi í minn hlut að
ljúka því verki sem hafið var. Ég finn hjá
mér mikinn áhuga á því að vinna áfram að
framgangi margra mála innan KÍ. Áhugi
minn hefur alla tíð beinst jafnt að skóla-
, mennta- og kjaramálum en atvikin hafa
hagað því svo að ég hef dregist mest inn
í gerð kjarasamninga. Nú vil ég gjarnan
geta beint sjónum mínum frekar að skóla-
og menntamálum og að þróun Kennara-
sambandsins sem heildarsamtaka. Ég hef
þá hugmynd að meistaranám í opinberri
stjórnsýslu, sem ég stunda um þessar
mundir, geti nýst vel í starfi mínu fyrir
Kennarasambandið. Svo vil ég gjarnan
geta sinnt kennslu og málefnum þýsku-
kennslu.“
Guðlaug Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Kristín Bogadóttir
Elna Katrín Jónsdóttir