Skólavarðan - 01.03.2005, Blaðsíða 26

Skólavarðan - 01.03.2005, Blaðsíða 26
26 SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005 Á aðalfundi Félags tónlistarskólakennara þann 16. febrúar síðastliðinn voru tvö mikilvæg málefni tónlistarskólanna tekin til sérstakrar umfjöllunar auk venjulegra aðalfundarstarfa. Skólastefna félagsins var kynnt og síðan voru hópaumræður um hlutverk hennar og mikilvægi sem framtíðarsýnar í starfinu. Sameiginleg framtíðarsýn getur verið vopn í hags- munabaráttu félagsins og afl til að virkja faglega umræðu og þátttöku í uppbygg- ingu tónlistarskólanna. Skólastefna FT er hluti af skólastefnu Kennarasambands Íslands 2005-2008 og þar er lögð áhersla á að lög um tónlistarskóla miði að því að skipa þeim sess til jafns við aðrar mennta- stofnanir og tryggi jafnt aðgengi að tónlistarnámi óháð aldri, efnahag, menn- ingarbakgrunni og búsetu. Jafnframt að staða tónlistarskóla verði styrkt innan heildstæðrar skólastefnu sem nær til allra skólagerða. Á aðalfundinum var einnig rætt um drög að lögum um tónlistarskóla og tón- listarnám. Í framhaldi af því var ákveðið að félagið beitti sér sérstaklega á næst- unni fyrir virkri umræðu og upplýsinga- gjöf um málefni tónlistarskólanna, bæði á vettvangi Kennarasambands Íslands og hjá sveitarstjórnum, öðrum samstarfs- og hagsmunaaðilum og síðast en ekki síst hjá almenningi. Á fundinum var Sigrún Grendal Jóhannesdóttir kosin formaður til næstu þriggja ára og tveir nýir stjórnarmenn voru kjörnir. Stjórnina skipa: Árni Sigur- bjarnarson, Jón Sigurðsson, Jón Hrólfur Sigurjónsson og Sæmundur Rúnar Þóris- son. Frekari upplýsingar og umfjöllun um aðalfundinn og málefni hans er að finna á heimasíðu FT á www.ki.is ásamt því að ítar- leg umfjöllun verður um fundinn í næsta fréttabréfi félagsins. AÐALFUNDUR FT Aðalfundur Félags tónlistarskólakennara

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.