Skólavarðan - 01.03.2005, Blaðsíða 27
Samtök fámennra skóla eru félagsskapur
áhugafólks um málefni fámennra skóla
á öllum skólastigum. Þau voru stofnuð
á Flúðum árið 1989 og voru þá fyrst og
fremst samtök fámennra samkennslu-
skóla á grunnskólastigi en ná nú einnig
til fámennra leik- og framhaldsskóla.
Hlutverk samtakanna er að stuðla
að bættu og fjölbreyttu skólastarfi, efla
samstarf og samskipti fámennra skóla og
standa vörð um hagsmuni þeirra. Kennarar,
leiðbeinendur og skólastjórar í fámennum
skólum geta orðið félagar og einnig þeir
sem hafa áhuga á fræðslumálum og vilja
leggja samtökunum lið.
Þeir skólar sem falla undir skilgreiningu
samtakanna eru einnar deildar leikskólar
eða leikskólar þar sem fjórir eða færri
starfsmenn sinna uppeldi og kennslu barn-
anna, grunnskólar þar sem samkennsla
árganga á sér stað vegna fárra nemenda
í árgangi og framhaldsskólar með færri en
300 nemendur.
Í vetur eru starfandi 178 grunnskólar
og af þeim eru 60 fámennir. Leikskólarnir
eru um 267 og um 45 þeirra eru fámennir.
Einnig eru nokkrir grunnskólar reknir undir
einni yfirstjórn með aðsetur á tveimur til
þremur stöðum í fámennum einingum,
t.d. Grunnskóli Vesturbyggðar. Það sama
á við um leikskóla. Mennta- og fjölbrauta-
skólarnir eru 29 og af þeim eru 7 fámennir.
Þessu til viðbótar eru 13 sérskólar á fram-
haldsskólastigi sem allir eru fámennir.
Frá upphafi hefur eitt af megin við-
fangsefnum Samtaka fámennra skóla
verið endurmenntunarnámskeið fyrir
kennara í fámennum skólum. Nýjasta við-
fangsefni samtakanna á þessu sviði er nám-
skeiðs- og fræðsluvefur um samkennslu
og starf í fámennum skólum. Vefnum er
ætlað að vera í senn upplýsingaveita og
umræðuvettvangur um fámenna skóla og
kennslu í aldursblönduðum námshópum.
Einnig er hægt að nýta vefinn sem form-
legt námskeið þar sem þátttakendur geta
fræðst um hugmyndafræði samkennslu
og ólíkar leiðir við skipulag hennar. Í efni
á vefnum er gengið út frá að samkennsla
og einstaklingsmiðað nám séu nátengd
fyrirbæri og þess vegna getur vefurinn
orðið öllum að gagni sem vilja fræðast um
einstaklingsmiðað nám og leita leiða til
að gera það að veruleika, hvort sem þeir
kenna í fámennum skólum eða fjöl-
mennum. Slóðin að vefnum
er http://skolar.skaga-
fjordur.is/sfs/
Samtökin halda
ársþing þar sem
menntamál eru
rædd, fyrirlestrar
eru haldnir
og skólafólk
úr fámennum
skólum vítt og
breitt að af land-
inu fær kærkomið
tækifæri til að hitt-
ast, bera saman bækur
sínar og miðla upplýs-
ingum sín á milli.
Þá halda samtökin úti heimasíðu en
þar má finna ýmsar upplýsingar um sam-
tökin, stjórn þeirra, lög og tengiliði, en þeir
eru einn í hverjum landsfjórðungi, einn í
Kennaraháskóla Íslands og einn í Háskól-
anum á Akureyri. Á heimasíðunni er einnig
gagnlegt krækjusafn tengt kennslufræði
sem nýtist vel í fámennum skólum ásamt
námskeiðs- og fræðsluvef
um samkennslu og einstak-
lingsmiðað nám. Slóðin
er http://www.ismennt.
is/vefir/sfs/
Stjórn samtakanna
skipa nú: Þórunn Júlíus-
dóttir, leikskólanum
Kærabæ á Kirkjubæjar-
klaustri formaður, Fanney
Ásgeirsdóttir, Grunnskóla
Svalbarðshrepps í Þistil-
firði ritari og Jóhanna
María Agnarsdóttir,
Grunnskólanum í Hrísey
gjaldkeri. Þingstjórn sam-
takanna er nú á Vestur-
landi og formaður hennar
er Jóhanna Sigrún Árna-
dóttir kennari í Grunn-
skólanum í Búðardal.
Næsta ársþing verður
haldið að Varmalandi í
Borgarfirði 9. apríl næst-
komandi. Meðal umfjöll-
unarefna þar er einstaklingsmiðað nám,
útiskóli í leik- og grunnskóla og staða
fámennra skóla í landinu og hlut-
verk þeirra í byggðaþróun.
Þá verður Fjölbrautaskóli
Snæfellinga, sem er
fámennur framhalds-
skóli, kynntur en
hann hóf starf-
semi sína í haust.
F y r i r k o m u l a g
k e n n s l u n n a r
þar á bæ er fjöl-
breytt útfærsla
dreifnáms sem er
spennandi kostur
fyrir þróun fámennra
skóla á Íslandi. Hægt er
að nálgast skráningarblað
á heimasíðu samtakanna.
Höfundur er Þórunn Júlíusdóttir formaður
Samtaka fámennra skóla.
Ljósmynd: Þórunn Júlíusdóttir.
Nýr námskeiðs- og fræðsluvefur um samkennslu
og starf í fámennum skólum
Börn á leikskólanum Kærabæ
á Kirkjubæjarklaustri í leik sem
leggur grunn að stærðfræðinámi.