Skólavarðan - 01.03.2005, Qupperneq 30
30
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005
Augnhreyfingar verða færri, augunum miðar betur áfram í lín-
unni og lestrarhraði eykst. Letur er stórt og breitt. Björn Már
Ólafsson augnlæknir í Hafnarfirði hefur aðstoðað við sjónrænan
þátt verkefnanna.
Lestrar- og málþjálfunarverkefnin skiptast í 17 kafla og grund-
vallast hver kafli á einum samhljóða og samhljóðasamböndum
hans. Undirstaða hvers kafla er valdir orðalistar og er orðunum
raðað í fyrirfram ákveðna röð eftir fyrsta sérhljóða í orði.
Höfundur er Sigríður Ólafsdóttir sérkennari en hún hefur í ára-
tugi starfað við lestrarkennslu seinfærra barna, sérkennslu, tal-
kennslu og kennslu heyrnardaufra auk almennrar kennslu. Sigríður
gefur kost á að kynna Lesum lipurt. Upplýsingar: sigga@centrum.
is eða sigriduro@flataskoli.is eða í síma 8621455.
Garðabær og menntamálaráðuneytið styrktu gerð námsefn-
isins og Þróunarsjóður grunnskóla hefur veitti styrk til að gera
úttekt á verkefnunum 2003-2004. Útgefandi er Hjalli ehf.
Lesum lipurt fæst í Skólavörubúðinni.
Lestrar- og málþjálfunarverk-
efnin Lesum lipurt eru ætluð
nemendum á grunnskóla-
stigi, 1.-6. bekk, og miða að
því að þjálfa grunnfærni í
lestri. Verkefnin þjálfa grunn-
lestrartækni með áherslu á
augnhreyfingar.
Með námsefninu eru
farnar nýjar og óhefð-
bundnar leiðir. Verkefnin
þjálfa markvisst grunnlestr-
artæknina með áherslu
á réttar augnhreyfingar
þannig að lesturinn verður
lipur og átakalaus.
Verkefnin eru til þess fallin að teygja á sjónskerpusviðinu og
stækka þannig svæðið sem augun sjá skýrt í hverri augndvöl.
1
Lestrar- og málþjálfunarverkefni
Sigríður Ólafsdóttir
1
Fyrri hluti
Börn og menning er tímarit
fyrir áhugafólk um barna-
menningu sem kemur út
tvisvar á ári, að vori og
hausti. Blaðið er gefið út af
félaginu IBBY á Íslandi og
er eina tímaritið hér á landi
sem eingöngu er helgað
menningarlífi barna. Í blað-
inu birtast metnaðarfullar
greinar um hvaðeina sem
viðkemur barnamenningu,
t.d. bækur, leikhús, bíómyndir og myndlist, en einkum er
fjallað um það sem ber hæst hverju sinni á þessu sviði hér
á landi.
Útgáfa blaðsins Börn og menning er viðamesta verkefni IBBY á
Íslandi en auk þess stendur félagið ásamt öðrum samtökum árlega
fyrir bókakaffi sem og ráðstefnu í Gerðubergi þar sem fjallað er
um menningarlíf barna. IBBY á Íslandi á aðild að alþjóðlegu sam-
tökunum IBBY (International Board on Books for Young People)
og vinnur innan vébanda þeirra, til dæmis að útgáfu tímaritsins
Nordisk blad með systurfélögum sínum á Norðurlöndum.
IBBY á Íslandi hefur einnig staðið fyrir útgáfu smásagnasafn-
anna Ormagull og Auga Óðins í samstarfi við Mál og menningu
og í lok síðasta árs kom út Barnabókadagatal IBBY 2005 sem
gefið var í alla leikskóla landsins. Dagatalið var fyrsta eiginlega
lestrarhvetjandi verkefnið sem félagið tekst á hendur. Nánari
upplýsingar um félagið er að finna á www.ibby.is.
Allt áhugafólk um menningu barna er hvatt til að ganga í
félagið og fá tímaritið Börn og menning heim til sín tvisvar á ári.
Hafið samband við Brynju Baldursdóttur, brynjab@fg.is
Við erum þriggja manna fjöl-
skylda í námi í Danmörku
með þriggja ára barn. Við
ætlum að heimsækja föður-
landið í sumar og óskum því
eftir íbúðaskiptum frá 16. -
30. júlí 2005 (möguleiki á að
komast fyrr í íbúðina).
Okkar íbúð er þriggja
herbergja, 92 fm, á þriðju
(efstu) hæð í fjölbýli í Viborg á Jótlandi og óskum við eftir sambæri-
legri íbúð í Reykjavík. Íbúðinni fylgja öll helstu nútíma þægindi, s.s.
sjónvarp, DVD spilari og örbylgjuofn. Þvottaherbergi er í kjallara,
þvottavél og þurrkari.
Viborg liggur nokkuð miðsvæðis á Jótlandi og stutt er í Lego-
land, til Árósa, í ýmsa sumar/ævintýragarða svo fátt eitt sé nefnt. Til
nánari upplýsinga um borgina er hægt að skoða www.viborg.dk
Áhugasamir sendi rafpóst á sussa@tdc-broadband.dk
2. tbl. 2004 • 19. árg.
Tumi trítill og Jóra stóra
eru á stefnumóti
með litríka hatta og litríkar grímur
skreyttar með alskonar dóti.
„Mikið ertu í fallegum skóm,“ segir Tumi trítill
og gefur Jóru stóru blóm
þótt hann sé lítill.
En allt í einu sjá þau
köttinn hana Skoppu
með sinn flotta feld
og sína flottu loppu.
Nú fara þau
inní sirkustjaldið
og fara svo að baka
því brúðkaup verður haldið.
Sólveig Eir Stewart, 12 ára
Viðtalið • Sigrún Eldjárn
Leiklist • Bergur Felixson • María Reyndal
Silja Aðalsteinsdóttir
Bókmenntir • Anna Heiða Pálsdóttir
Úr smiðju höfundar
Kristlaug María Sigurðardóttir
Reykjavík - Viborg
Íbúðaskipti
Stuðningur við
barnamenningu
Lesum lipurt - nýtt lestrar- og málþjálfunarefni
Æf ingin skapar
meistarann
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR