Skólavarðan - 01.12.2008, Síða 4
4
LEIÐARI
Forsíðumynd: Hugrún Hannesdóttir og Ásgerður Diljá Karlsdóttir
nemendur í Landakotsskóla á leið heim úr skólanum.
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir
stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Ísafold
Skólavarðan, s. 595 1120 (Kristín)
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík
EFNISYFIRLIT
Formannspistill: Það er gott að vera þar sem gleðin býr 3
Leiðari: Sama rósin sprettur aldrei aftur 4
Gestaskrif: Að borða ljóð 5
Kjaramál: Fæðingarorlof 7
KÍ: Niðurskurður og viðbrögð 8
Bók: Orðspor eftir Gunnar Hersvein 10
Umræða: Heimspekikennsla í meira en aldarfjórðung á Akureyri 11
Fréttir: Kennarar velja besta bíó, sálrænn stuðningur, annaruppbót o.fl. 12
Kennaraviðtalið: Listin eykur vellíðan og gerir okkur glöð 13
KÍ: Aukafulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara 16
Ráðstefna: Að marka spor – fjölmenn ráðstefna RannUng og FL 18
Fyrirlestur: Fagmennska leikskólakennara 18
Skólasöfn í grunnskólum: Í hjarta skólans 21
Hönnun og smíði: Rannsókn á verkefnavali grunnskólanemenda 22
Pistill: Fíflarækt 24
Listir: Hjónin Margrét og Stephen semja bækur saman 24
Rannsókn: Álag og ágreiningur í grunnskólum 25
KÍ: Stjórnendur í framhaldsskólum á góðu námskeiði 26
Fréttir: Ný Bínubók, Rannsóknasjóður leikskóla lagður niður o.fl. 28
Námsgögn: Sólblómanám, verðlaunuð kennsluforrit í náttúruvísindum 30
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Eiríkur Jónsson eirikur@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir
sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið
Kristín Elfa Guðnadóttir
Lj
ós
m
yn
d
:
K
ri
st
já
n
Va
ld
im
ar
ss
on
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 8. ÁRG. 2008
Nemandi í leikskóla sagði í tilefni af umræðu um liti og tilfinningar:
„Það er rauður dagur hjá mér. En það er svartur dagur hjá pabba.“
Þetta atvik átti sér stað einn af upphafsdögum ástandsins. Þegar
börnin voru orðin kreppuvanari tveimur mánuðum síðar voru
nokkrar stelpur í fjórða bekk grunnskóla að búa til leikrit og taka
senur upp á gemsana sína. Leikritið hét Þegar alþingismennirnir
stálu jólunum. Ein lék Davíð og önnur Geir. Af spjalli við kennara
heyri ég af líðan nemenda, hún virðist mismunandi eftir búsetu og
kannski erfiðara í nýjum hverfum á höfuðborgarsvæðinu en víða
annars staðar. Unglingur skrifaði fallega hvatningargrein í Moggann
og sagði meðal annars: „Jafnvel þótt ég sé bara fimmtán ára þá
hugsa ég mjög mikið um pólitík, stjórnir og daglegar fréttir á Íslandi.
Sérstaklega núna nýlega, þar sem staðan á íslensku krónunni
snertir okkur öll. Það er hægt að líta á þingmennina eins og okkur
börnin í efstu bekkjum grunnskóla og upp í framhaldsskóla,“ segir
greinarhöfundur Sunna Kristinsdóttir, „það bara hvílir meiri ábyrgð
á þeim. Ég er í nemendaráði í mínum skóla og hef tekið eftir því að
við „krakkarnir“ högum okkur alveg eins og lítil þjóð. Jafnvel þótt
við viljum öll það sama, þ.e. að allir séu ánægðir með okkar vinnu
og árangur, þá höfum við öll mismunandi hugmyndir um hvernig
við gætum farið að því.“ Einn af þessum þingmönnum, Guðbjartur
Hannesson fyrrverandi skólastjóri á Akranesi, skrifaði grein um
skólamál á Vesturlandi í Skessuhorn þann 21. október. Hann segir
meðal annars: „Nú þegar áföll eru í efnahagslífinu og atvinnuhorfur
slæmar er mikilvægara en nokkru sinni að efla menntun, rannsóknir
og nýsköpun, horfa til framtíðar og bæta okkar samfélag með nýjum
gildum og góðum tækifærum fyrir fólk til náms alla ævi.“
Börn og unglingar hlusta á fréttir og fylgjast með okkur sitja
þungbúin framan við fréttaveiturnar. Þau sem eru viðkvæm geta
borið skaða af. Margir unglingar sem velta fyrir sér sjálfsvígi sýna
einhver af eftirfarandi hegðunareinkennum: Tala um sjálfsvíg eða
almennt um dauðann, tala um að „fara burt“, tala um vonleysi eða
að þau séu með samviskubit, draga sig í hlé frá vinum eða fjölskyldu,
missa áhugann á að taka þátt í því sem þeim fannst áður gaman,
eiga erfitt með að einbeita sér eða hugsa skýrt, breyta svefnvenjum
sínum eða matarvenjum, hegða sér hættulega eins og með því að
drekka áfengi, nota eiturlyf eða keyra hratt.
Þann 20. október sl. var Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi á börnum.
Samtökin Barnaheill héldu ráðstefnu af því tilefni en þau opnuðu
nýverið nýjan upplýsingavef, Verndum börn gegn ofbeldi. Þar er gátlisti
með vísbendingum um vanlíðan hjá barni: Skapsveiflur; mikill grátur;
minnkandi matarlyst og breytingar á matarvenjum; breytingar á
hegðun í skóla eða gagnvart öðru fólki; persónuleikabreytingar;
óframfærni/hlédrægni; hræðsla við að fara heim eða strok að
heiman; erfiðleikar við að einbeita sér; óútskýrð hræðsla svo sem við
myrkur, að vera eitt, við tiltekið fólk eða staði eins og svefnherbergi
eða salerni; svefnvandamál, martraðir og/eða hræðsla við að fara
að sofa eða sofa eitt.
Fjölmargir aðilar hafa sett forvarnir á oddinn í starfi sínu
undanfarnar vikur og má nefna Heimili og skóla og SAFT verkefnið,
Kennarasambandið, Lýðheilsustöð, Landlæknisembættið og
verkefnið Þjóð gegn þunglyndi ásamt upplýsingavef þeirra um
geðheilsu barna og ungmenna umhuga.is, ráðuneyti menntamála
og félagsmála, reykvíska vefinn Börnin í borginni, Rauða krossinn,
ýmis sveitarfélög og skólaskrifstofur, BUGL, Umboðsmann barna og
marga fleiri.Ekki má gleyma að Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans var
þann 5. desember sl. og af því tilefni var settur á netið hinn stórgóði
vefur Sjálfboðaliði.is, Fátt er meira þroskandi fyrir börn en að kynnast
sjálfboðaliðastarfi. Í lokin - ef fólki líður illa er ekki nóg að klappa því
á bakið og segja því að vera jákvætt, eins og Kolbrún Baldursdóttir
sálfræðingur hefur bent á (sjá m.a. grein í DV 9. október). Fólk þarf
að fá að tala um hlutina og aðrir þurfa að taka sér tíma til að hlusta.
Svo þarf í sameiningu að finna út hvað er enn gott og í lagi. Það er
býsna margt!
Gleðileg jól,
Kristín Elfa Guðnadóttir
Sama rósin sprettur aldrei aftur
Mikilvægi kennara og menntunar, börn sem líður illa,
forvarnir og gátlistar