Skólavarðan - 01.12.2008, Blaðsíða 17

Skólavarðan - 01.12.2008, Blaðsíða 17
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 8. ÁRG. 2008 17 FRAMHALdSSKóLINN FUNdAR Staða framhaldsskólans í tengslum við útfærslu og framkvæmd nýrra menntalaga Fundurinn hefur farið yfir helstu atriði nýrra menntalaga í samhengi við hugmyndir menntamálaráðuneytis um vinnu við útfærslu þeirra og framkvæmd. Fundurinn leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi: Samvinna komist á milli KÍ, yfirvalda menntamála og skólastjórnenda um fram- kvæmd nýju laganna, um inntak reglu- gerða, námskrármál og tengsl laganna við kjarasamninga. Mikilvægt er að skapa yfirsýn vegna samræmingar, upplýsinga og eftirfylgni. Endurskoðun almenns hluta aðalnám- skrár framhaldsskóla þarf að setja í for- gang. Markviss vinna í skólunum að útfærslu laganna byggist á því að sá hluti aðal- námskrárinnar sé skýr. Móta þarf skýrar leiðir fyrir nemendur til að fara milli grunnskóla og framhaldsskóla á mismunandi námshraða og til að stunda nám samtímis á báðum skólastigum. Í þeirri vinnu þarf að hafa til hliðsjónar tillögur starfshópa sem unnu að tíu skrefa sam- komulaginu. Markmið laganna um íslenskt stúdents- próf eru að það verði áfram almennt og víðfeðmt og veiti góðan undirbúning fyrir frekara nám. Í samræmi við þetta þarf að setja viðmið í nýrri aðalnámskrá fyrir framhaldsskóla um 240 námseiningar til stúdentsprófs. Endurnýjun kjarasamninga er forsenda þess að fjölgun vinnudaga og önnur ákvæði laganna sem snerta beint vinnutíma kennara geti komið til framkvæmda. Brýnar aðgerðir í menntamálum vegna samfélagsþrenginga Fundurinn lýsir yfir þungum áhyggjum af efnahagskreppu samfélagsins og alvarlegum áhrifum hennar á lífsafkomu almennings og heimila í landinu. Nauðsynlegt er að slá skjaldborg um velferðarkerfið og treysta undirstöður þess. Skólarnir gegna þar víð- tæku hlutverki. Efnahagur fjölskyldna má ekki ráða úrslitum um það hverjir geti notið þeirrar þjónustu sem stendur til boða í skólum landsins. Draga þarf stórlega úr gjaldtöku í skólakerfinu til að létta undir með fjölskyldum og heimilum. Þeir sem missa atvinnu sína eiga að geta styrkt stöðu sína með námi í framhaldsskólum og háskólum. Öll börn og ungmenni verða að geta notið námsvistar í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Stórefla þarf Lánasjóð íslenskra námsmanna og styrkja félagslegt hlutverk hans. Fundurinn telur þetta vera meðal brýnustu verkefna stjórnvalda vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem nú ríkir. keg www.janusbudin.is Amaróhúsinu Hafnarstræti 99-101 600 Akureyri s. 461-3006 Gott verð! Ullarfatnaður í miklu úrvali fyrir unga sem aldna. Senn koma jólin! Gefðu hlýjan og notalegan jólapakka frá JANUS. Barónsstíg 3 101 Reykjavík s. 552-7499 fax. 562-7499 Fundargerð og glærur á ff.ki.is undir Fundir/Fulltrúafundir/ Aukafulltrúafundur 7.nóvember 2008 Upplýsingar um ný lög og nýja menntastefnu: nymenntastefna.is Magnús Ingólfsson Sigurjón Mýrdal

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.