Skólavarðan - 01.12.2008, Síða 8
8
ÁFRAM KENNARAR
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 8. ÁRG. 2008
Eiríkur Jónsson formaður KÍ hefur varað við
og talað gegn niðurskurði í skólakerfinu, slíkt
hið sama hefur menntamálaráðherra gert,
reyndar á sama tíma og skorið er hressilega
niður í ráðuneytinu og framhalds-skólunum
sem það rekur. Sveitarfélög berjast í
bökkum og ráðningarbann er nú veruleiki
sem skólar standa frammi fyrir, kennara-
uppsagnir er hafnar (samanber uppsögn
heimilisfræðikennara í Hrafnagilsskóla)
og svona má áfram telja. En undir þessu
má hins vegar ekki sitja. Niðurskurður til
menntamála hefur leitt til ófarnaðar fyrir
samfélög sem fara þá leið í þrengingum. KÍ
beinir því til félagsmanna sinna að setja sig
í samband við skrifstofuna í Kennarahúsinu,
s. 595 1111, ef þeir eru í óvissu um einhver
mál er varða starf þeirra og starfsöryggi.
Sama ef um uppsagnir er að ræða. Um þær
gilda sérstök ákvæði sem mikilvægt er að
vinnuveitendur virði.
Vonarhópurinn
Allir sem láta sér annt um menntun
þurfa sameiginlegan vettvang til að ráða
sínum ráðum. Þegar hefur verið stofnað
til mikilvægs samstarfs hér og þar, til að
mynda er Kennarasambandið og mennta-
vísindasvið HÍ farin að ræða saman um
mikilvæg málefni tengd menntun, nánari
upplýsingar um þetta samstarf verða birtar
á vef KÍ www.ki.is innan tíðar. Þá hefur
fulltrúi KÍ að undanförnu starfað í sk. Vonar-
hópi með fulltrúum menntavísindasviðs
HÍ og Landlæknisembættisins. Í hópnum
er rætt um samfélagsaðstæður og áhrif
þeirra á störf kennara, skólastjórnenda og
annarra starfsmanna skóla. Mikið mæðir á
starfsmönnum skóla sem gegna mikilvægu
hlutverki gagnvart nemendum og fjölskyldum
þeirra við þessar óvenjulegu aðstæður.
Haldnir verða fundir og einnig er fyrirhugað
að bjóða fram liðveislu og fræðslu í skólum
á komandi mánuðum.
Þann 3. desember sl. var haldinn fundur
í Stakkahlíð á vegum hópsins undir
yfirskriftinni Ástandið í grunnskólunum
haustið 2008. Þar fluttu erindi þau Ásgeir
Beinteinsson skólastjóri, Edda Rós Karls-
dóttir hagfræðingur og Páll Skúlason
heimspekingur. Fundinum var sjónvarpað
og auglýsing um hann send öllum félags-
mönnum KÍ. Upptöku má skoða á mms://
st reymir.kh i . i s/s jonvarp_upptokur/
Utsending03122008.wmv
Börnin í borginni
Þá má nefna teymi sem stofnað var til af
Reykjavíkurborg og nefnist Börnin í borginni.
Kennarar eiga aðild að teyminu og þar með
möguleika á að berjast gegn niðurskurði.
Hlutverk teymisins er að: 1. Fylgjast með
líðan barna og starfsfólks í leikskólum,
grunnskólum og í frístundastarfi á vegum
Reykjavíkurborgar. 2. Leita leiða til að
minnka og hafa áhrif á vanlíðan vegna
álags og streitu. 3. Fylgjast með tölulegum
upplýsingum sem gefa vísbendingar um
breytta fjárhagsstöðu heimilanna. 4. Stuðla
að samvinnu þeirra aðila sem koma að
málefnum barna og unglinga í borginni. Sjá
nánar á www.rvk.is/desktopdefault.aspx/
tabid-1488/2281_read-12722/, þar er meðal
annars fréttabréf teymisins og hagnýtir
tenglar. Lesendur sem búa yfir upplýsingum
um hag barna eða hafa hugmyndir sem þeir
vilja koma á framfæri geta sent tölvupóst á
netfangið bornin@reykjavik.is
Enn vantar heildarvettvang á landsvísu
Auk þess sem hér hefur verið nefnt eru
ýmsir að ræða saman um skóla, nemendur
og börn, má þar nefna Heimili og skóla,
Landlæknisembættið, Miðstöð heilsuverndar
barna, stjórnmálaflokkana og fleiri. Yfir-
lýsingar hafa verið birtar í þeim tilgangi
að standa vörð um hag barna og er það
vel. Vefsvæðið Umhuga.is var stofnað með
margvíslegum gagnlegum upplýsingum.
Þá eru, auk Kennarasambandsins, aðildar-
félaga þess, menntamálaráðuneytisins,
skólaskrifstofa sveitarfélaga, Heimilis og
skóla og kennaramenntunarstofnana, til
nokkur fleiri samtök og opinberar sem
óopinberar stofnanir sem láta sig menntun
varða, má þar nefna Samtök áhugafólks um
skólaþróun og Félag um menntarannsóknir.
Enn skortir þó heildarvettvang á landsvísu til
að standa vörð um menntun, sem er, eins og
við vitum, eitt öflugasta vopn í baráttu fyrir
jafnrétti og velferð barna sem til er.
Samráð aðila vinnumarkaðar
Þann 27. nóvember sl. áttu fulltrúar KÍ
og annarra samtaka launafólks fund með
fulltrúum vinnuveitenda, þ.m.t. fulltrúum
ríkis og sveitarfélaga. Á þeim fundi var
rætt um hvort mögulegt væri að öll samtök
launafólks og vinnuveitenda kæmu sér
saman um meginlínur í kjarasamningagerð
á árunum 2009 og 2010. Í megindráttum
er spurningin sú hvort samtök launafólks
geti sæst á að laun hækki ekki um meira en
3,5% á árinu 2009 og 2,5% á árinu 2010.
Þetta væri að sjálfsögðu háð því að sæmileg
sátt næðist um mörg mál er varða þjónustu
ríkis og sveitarfélaga. Hér er fyrst og fremst
vísað til velferðarmála almennt og einnig
gjaldskrármála og annarra málaflokka sem
hafa áhrif á útgjöld fjölskyldna.
Samráð innan KÍ – ályktun um skólastarf
og menntun
Stjórnir og samninganefndir allra aðildar-
félaga KÍ til fundar þann 5. desember til að
ræða aðkomu KÍ að áframhaldi þessarar
vinnu. Þar flutti Oddur S. Jakobsson erindi
um efnahagsástandið og tengsl þess við
kjarasamningagerð og formenn félaga gerðu
grein fyrir stöðu kjaramála.
Á fundinum var samþykkt eftirfarandi
ályktun: „Sameiginlegur fundur stjórnar
og kjararáðs Kennarasambands Íslands
og stjórna og samninganefnda aðildar-
félaga KÍ skorar á menntamálaráðherra,
Alþingi og sveitarfélög að standa vörð
um menntun á Íslandi. Góð menntun er
grunnstoð samfélagsins og gildi hennar
verður ekki metið til fjár. Í því umróti sem
nú stendur yfir er áframhaldandi öflug
menntun landsmanna mikilvægasta
auðlind þjóðarinnar. Fundurinn skorar
á menntamálayfirvöld að verja skóla-
starf og menntun í landinu þannig að
nemendur og fjölskyldur þeirra geti
ávallt treyst á skólann sem öruggan og
þroskavænlegan vinnu- og dvalarstað.
Menntayfirvöld styðji þannig við bakið á
starfsfólki skóla sem nú þegar vinnur við
erfið skilyrði frekar en gera störf þess
erfiðari.“
Niðurskurður og viðbrögð