Skólavarðan - 01.04.2009, Page 13

Skólavarðan - 01.04.2009, Page 13
draga úr starfsemi sem lýtur að hljóm- sveitarstarfi, samspili, meðleik, heimsóknum og ferðalögum sem dæmi. Einnig eru til umræðu breytingar á kennslufyrirkomulagi en á trúnaðarmannafundi félagsins kom sú áhersla skýrt fram að standa ætti vörð um þjónustu í aðalfagi, þ.e. einkakennslu á hljóðfæri í forminu 60 mínútur á viku. Staðan í tónlistarskólum er vandmeðferðin og mikilvægt að halda þétt utan um skóla- haldið, óháð breytingum sem ráðist verður í, svo að starfsemin bíði sem minnstan skaða af til framtíðar. Margir skólastjórnendur hafa leitað til félagsins vegna niðurskurðarins og leita menn allra leiða til að standa vörð um störf fastra kennara við skólana og að þær breytingar sem farið verður í verði í sem mestri sátt við kennara. Kennarar sem hafa samband eru í mörgum tilfellum að leita upplýsinga um þau lög og reglur sem gilda um uppsagnir og vilja ræða framkvæmd annarra breytinga í tengslum við niðurskurð. Nokkuð hefur borið á því að kennurum finnst þeim stillt upp af ráðamönnum með valkostum sem brjóta í bága við reglur og réttindi kennara. Það er að sjálfsögðu með öllu ólíðandi og ekki sveitarstjórnarmönnum samboðið að fara þannig með vald sitt á þessum erfiðu tímum. Samhliða því að upplýsa félagsmenn um réttindi þeirra og veita aðstoð við kjaraleg atriði telur félagið þýðingarmikið að vinnan næstu misseri miði markvisst að því að styrkja stöðu tón- listarskóla og starfsemi þeirra. Ein leiðin að því marki er fagleg sókn. Við munum leggja áherslu á stór fagleg málefni sem varða stéttina og eru til þess fallin að stuðla að því að tónlistarskólar standi sterkari en ella þegar birta tekur aftur. Þetta eru mál eins og ný lög um tónlistarfræðslu, en vinna við þau hefur legið niðri hjá menntamála- ráðuneytinu, lenging kennaramenntunar til samræmis við menntun annarra stétta og athugun á kostum og göllum lögverndunar sbr. samþykkt frá ársfundi okkar í febrúar. Þá vinnur menntamálaráðuneytið að fram- kvæmd könnunar á listfræðslu á Íslandi og er félagið í samstarfi við ráðuneytið um þann hluta sem snýr að tónlistarskólunum. Í desember nk. verður norræn ráðstefna haldin á Íslandi undir yfirskriftinni „Inno- vation and Creativity in the hands of the young“ og vinnur félagið að því í samstarfi við menntamálaráðuneytið að fyrrgreindri könnun verði þar gerð ítarleg skil og sjónum beint sérstaklega að starfsemi tón- listarskóla. Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður FF Í fjárlögunum fyrir árið 2009 er flatur niður- skurður um 3% hjá framhaldsskólum. Þetta mun eflaust þýða aukið aðhald í rekstri skóla en við höfum ekki fulla yfirsýn ennþá yfir hvernig þetta kemur út í einstökum skólum. Við vitum þó að á næstu önn gæti orðið samdráttur í einhverjum skólum, til dæmis gjofsemgefur.is 13 Stofnanasamningar voru alls ekki hugsaðir sem farvegur til niðurskurðar. Það má ekki gerast. Fólk verður að vera á varðbergi gagnvart slíkum tilraunum. Lj ós m yn d : ke g ATvINNUöRYGGI KENNARA – HEILL NEMENDA

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.