Skólavarðan - 01.04.2009, Side 14

Skólavarðan - 01.04.2009, Side 14
14 SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 9. ÁRG. 2009 í yfirvinnu. Staða framhaldsskólans er mjög óljós, við heyrum ýmsar hugmyndir um niðurskurð á fjárveitingum til skólanna fyrir árið 2010 og næstu ár. Mesta áhyggjuefnið er fjárlögin fyrir árið 2010 og næstu ár á eftir. Enn er ekki búið að birta neina ramma fyrir 2010. Við leggjum mikla áherslu á að menntamálaráðuneytið forgangsraði í opinbera menntakerfinu með það að mark- miði að standa vörð um kjarnastarfsemi skólanna, utanumhald og umsjón nemenda. Ráðuneytið þarf að svara ýmsum spurning- um svo sem hvort skólarnir eigi að standa opnir fyrir atvinnulausa. Við hvaða hópum eiga framhaldsskólar að taka, þeim nemendum sem eru á hefðbundnum framhaldsskóla- aldri eða mun breiðari hópi eins og hefur verið í mörgum skólum? Einnig höfum við nefnt að ráðuneytið skoði hvort hægt sé að leggja til hliðar um stundarsakir einhver verkefni sem raska ekki heildarhagsmunum nemenda. Mikilvægt er að ráðuneytið for- gangsraði verkefnum og starfsemi og veiti skólastjórnendum leiðbeiningar um mark- mið og leiðir. Ráðuneytið þarf að fara í þessa skilgreiningarvinnu. Það er mikilvægt að allir haldi ró sinni, ég ítreka að enn liggja upplýsingar um fjárveitingar til skóla árið 2010 ekki fyrir. Það er líka mjög mikilvægt að muna hvar ábyrgðin á ákvörðunum liggur þegar þar að kemur: Hjá ráðuneyt- inu og stjórnendum skóla. Það gengur ekki að kennarar taki þátt í skuldbindandi umræðum og ákvörðunum um niðurskurð. Kennarar í framhaldsskólum hafa áhyggjur, það fer ekkert á milli mála. Undanfarin ár, í svokölluðu góðæri, hefur verið mjög mikið aðhald í rekstri skólanna og kennarar finna m.a. fyrir því í fjölmennari námshópum og meira starfsálagi. Launaþróunin í fram- haldskólunum ber einnig með sér að fram- haldsskólakennarar voru ekki þátttakendur í veislunni miklu sem ríkti í samfélaginu. Þessar vikurnar erum við að búa okkur undir enn alvarlegri stöðu. Við skynjum mjög vel að staðan gæti orðið mjög alvarleg frá og með næsta ári og trúnaðarmenn, kennarar í samstarfsnefndum og stjórnir félagsdeilda ræða um og vinna í þessu með okkur í stjórn og samninganefnd félagsins. Þessi mál voru mikið til umræðu á trúnaðarmannanám- skeiði í febrúar og fulltrúafundi í mars. Við erum að vinna í upplýsingagjöf fyrir okkar fólk og sendum út efni um meðal annars hvernig bregðast skuli við því ef reynt er að koma ábyrgð á niðurskurði yfir á kennara. Ég ítreka að það gengur ekki að starfsmenn taki slíkar skuldbindandi ákvarðanir þó svo þeir geti að sjálfsögðu tekið þátt í opnum umræðum um stöðuna á kennarafundum. Við bjóðum félagsdeildum okkar upp á fundi til að ræða málin og við höfum líka fyrir- komulag erindrekstrar við félagsdeildirnar. Við erum sjö talsins í stjórn og samninga- nefnd félagsins sem skiptum framhalds- skólunum á milli okkar, höfum samband við okkar fólk í skólunum og fylgjumst með. Við erum með miðlægan kjarasamning og síðan þrjátíu stofnanasamninga þannig að það er að mörgu að hyggja. Hugsunin á bak við stofnanasamninga er að færa hluta samn- ingagerðar heim í hérað og gefa skólum og starfsmönnum tækifæri til að aðlaga áherslur að sínum þörfum. Þannig myndi gefast meðal annars meira færi á að bæta launin. Í þessu felst ábataskiptahugsun, að nota rekstrarafgang til að bæta kjör. En það er ljóst að þessi hugsun hefur ekki virkað í framhaldsskólunum, það sýna upplýsingar um launaþróunina. Stofnanasamningar voru hins vegar ekki hugsaðir sem farvegur fyrir niðurskurð! Kennarar verða að vera á varð- bergi og hafa strax samband við okkur ef og þegar áform koma fram um niðurskurð sem bitna á samningsbundnum kjörum. keg Félagsmenn! Lesið það sem þið fáið sent frá KÍ og aðildarfélögum ykkar innan sambandsins, þar geta verið mikilvægar upplýsingar um ykkar hag. Hringið eða sendið okkur upplýsingar um niðurskurð og til að fá upplýsingar sem varða störf ykkar og starfsöryggi. Kynnið ykkur upplýsingar á www.ki.is og undirsíðum aðildarfélaga. Skólarnir okkar eru: • Krókur í Grindavík krokur@skolar.is - Hulda • Kór í Kópavogi kor@skolar.is - Bjarney • Hamravelli í Hafnarfirði hamravellir@skolar.is - Salvör • Háaleiti í Reykjanesbæ haaleiti@skolar.is - Rósa • Ársól í Reykjavík arsol@skolar.is ungbarnaskóli - Berglind Í Ársól vantar einnig deildarstjóra. Kynnið ykkur starfsemina skolar@skolar.is, Pétur Einnig upplýsingar hjá unnur@skolar.is, Unnur Okkur vantar kennara fyrir næsta skólaár til að vinna að framgangi heilsustefnunnar. ATvINNUöRYGGI KENNARA – HEILL NEMENDA

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.