Skólavarðan - 01.04.2009, Qupperneq 28

Skólavarðan - 01.04.2009, Qupperneq 28
28 SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 9. ÁRG. 2009 STÆRÐFRÆÐI í LEIKSKóLA Fyrir um það bil ári vöknuðu hjá mér spurningar um stærðfræðinám barna í leikskólum. Er almennt lagt mikið upp úr því og hverju skilar það? Í aðalnámskrá leikskóla, sem er „fagleg stefnumörkun um uppeldis- og menntunarhlutverk leik- skólans“, er ekki gerð krafa um slíkt. Að vísu ber að örva vitsmunaþroska barnsins með því að veita því lærdómsríkt og örvandi umhverfi. Þjálfa ber athyglisgáfu, hugsun, minni og einbeitingarhæfni barnsins ásamt því að þroska hugtakaskilning þess en hvergi er minnst á orðið stærðfræði. Við sem vinnum í leikskólum könnumst þó vel við að kennd sé stærðfræði með notkun margvíslegra kubba svo sem einingakubba Pratt, legó og margskonar annarra kubba- gerða. Form, stærð, flatarmál og lengdarmæl- ingar af ý msum toga eru hugtök og hlutir sem einnig er unnið með. Í leikskólanum þar sem ég kenni, Álfaborg á Svalbarðsströnd, er mikið unnið með perlur. Perlur eru efniviður sem nota má í tengslum við stærðfræði þó að þær séu alla jafna ekki það sem fólki dettur fyrst í hug þegar það leiðir hugann að þessari námsgrein. Eftir að hafa fylgst með börnum, og þá sérstaklega stúlkum, vinna með perlur í Álfaborg verð ég að viðurkenna að gildi þeirra sem námsefniviður er ótvírætt. Hæfnin sem börnin hafa komið sér upp er aðdáunarverð eins og sjá má. Við fyrstu sý n er ótrúlegt að þetta sé afrakstur vinnu fimm ára stúlku. Ekki einvörðungu gætir nákvæmni í úttalningu heldur má sjá speglun í efra verkinu og í því neðra má greina að byrjað var í miðju verksins (4x4) og þaðan þróast vinnan yfir í reglu, þ.e. eftir því sem nær dregur köntunum. Þegar ég fór að beina athygli að perlunum kom í ljós að ekkert barn stekkur fullskapað fram í vinnu með þennan efnivið. Það fer fram mikil þjálfun í samhæfingu augna og handa og útreikningum á mynstri við vinnu með perlur. Algengast er að byrjendur fáist við það eitt að fylla brettið ý mist með ein- litum perlum eða þeim litum sem verða fyrir fingrunum. En vinnan þróast og leikurinn fer að snúast um liti og munstur. Mynstur geta gengið út á speglun eða hliðrun og verið einföld eða flókin, allt eftir því sem verkast vill. Það er líka athyglisvert að fylgjast með því hvernig svona listaverk verða til. Stundum taka þau nokkra daga og stundum eina leikstund. Þegar ég velti því fyrir mér af hverju börnin í ö ðrum leikskólum sem ég hafði unnið í voru ekki svona áhugasöm um perluvinnu þá komu mörg svör upp í hugann. Perluvinna er ef til vill ekki mikil á sumrin og ég hafði einungis unnið í öðrum leikskólum á þeirri árstíð. Kannski voru hin börnin sem ég hafði unnið með of ung. En mestu held ég að skipti að í Álfaborg fá börnin að fara heim með „perlið“ sitt. Með því er þeim gefið færi á að skoða það og ígrunda og þannig fá þau umbun fyrir vinnu sína og eiga eitthvað sem þau sköpuðu. Ígrundun á vinnu er öllum mikilvæg og ekki síst börnum sem eru að læra. Með því að leyfa þeim að eiga sitt „perl“ og fara með það heim tel ég að við séum að gefa þeim færi á þessu og það leiðir til þess að þau læra meira. Rý num aðeins í það hvernig þróaður „perl- ari“ vinnur. Miðpunkturinn og kantarnir eru það sem allt sný st um. Í þessu tilfelli tók vinnan nokkra daga og stundum þurfti að „rekja upp“ til Perlur Hugleiðingar um stærðfræðinám í leikskóla

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.