Skólavarðan - 01.08.2003, Blaðsíða 18
DANMERKURHEIMSÓKN
Ákveðin og vita hvað þau vilja
Að kvöldi miðvikudagsins 30. apríl
lagði starfsfólk leikskólans Sólvalla
á Seyðisfirði land undir fót og hélt
af stað áleiðis til Kaupmannahafnar.
Erindið var að skoða þrjá leikskóla
og starfsemi þeirra.
Den integrerede institution
Ryesgade 22
Fyrsta heimsóknin var á Ryesgade
22. Þaðan er upphaflega komin
sú fyrirmynd sem starfað er eftir í
leikskólanum Sólvöllum Seyðisfirði. Þar
er vöggustofa, þ.e. börn á aldrinum 0-
3 ára og leikskóli þar sem börnin eru
á aldrinum 3 – 6 ára. Deildirnar eru
aldursblandaðar, þau eldri læra að
umgangast þau yngri og öfugt. Börnin
eiga þó sín heimasvæði þar sem þau
geta fengið að leika sér með leikföng
sem hæfa þeirra aldri, án truflunar
frá yngri eða eldri börnum. Lögð
er áhersla á frjálsan leik sem helstu
náms- og þroskaleið barnsins. Börnin
fá mat í leikskólanum en til að spara
í matarinnkaupum koma þau með
nesti og matarpakka á föstudögum.
Leikskólagjöldin í leikskólanum eru
tekjutengd. Foreldrar greiða aðeins
eitt gjald sama hve langur vistunartími
barnsins er. Það þykir þó ekki gott að
hafa barn í mjög langri vistun og sumir
foreldrar telja að það sé ákveðinn
gæðastimpill að hafa vistunartíma
barnsins frekar í styttra lagi.
Starfsmenn við leikskólann eru 21,
16 kvenmenn og 5 karlmenn, þar af er
einn garðyrkjumaður. Karlmennirnir
starfa sem leiðbeinendur en eru
menntaðir á öðrum sviðum (t.d.
verkfræðingar eða með aðra
menntun). Þeir gera gjarnan við það
sem bilar og sjá um viðhald. Börnin
eru þá jafnvel tekin með í viðgerðir ef
hægt er.
Í leikskólanum er starfsmanna-
herbergi sem er opið börnunum þegar
þau eru í rólegum leik. Það er liður
í að starfsfólkið upplifi börnin ekki
sem „truflun“ í umhverfinu, þó svo
að það sé að taka kaffitímann sinn.
Frá leikskólanum er innangengt á
elliheimili sem börnin fara stundum
í heimsóknir á. Það hentar mjög vel
sérstaklega fyrir yngri börnin.
Undirbúningur fyrir skólagöngu
felst aðallega í að lögð er áhersla
á félagsþroska elstu barnanna, að
þau séu sjálfstæð og sjálfsörugg.
Grunnskólakennarar sem hafa fengið
börn frá leikskólanum hafa látið vita
að þau séu ákveðin og viti hvað þau
vilja.
Fredens Sogns
Leikskólinn Fredens Sogns er 75 ára
gamall. Þar eru 45 börn á aldrinum
tæpplega þriggja til sex ára. Þar eru
þrjár aldursblandaðar deildir með 16,
17 og 12 börnum. Starfsmennirnir eru
níu, þar af tveir karlmenn. Á hverri
deild er einn uppeldismenntaður
starfsmaður. Starfsfólkið skiptist á að
halda deildarfundi. Leikskólinn er eins
konar sjálfseignarstofnun sem kirkjan
rak fyrr á tímum. Í yfirstjórn er ennþá
einn úr ráði kirkjunnar, einn frá hverri
deild en enginn frá sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið sér þó um rekstur hvað
varðar fjármálin. Við leikskólann er
starfandi foreldrafélag.
Opnunartími leikskólans er frá
06.30-17.15. Börnin eiga að vera
mætt fyrir kl: 09.30. Frá 06.30-08.20
er rólegur tími. Börnin fara svo hvert
inn á sína deild. Ef einhverjir hafa
verið að leika saman af sitthvorri deild
þá mega þeir halda því áfram. Eftir
hádegið hvíla yngri börnin sig. Þá eru
starfsmannaskipti, sumir fara heim
og aðrir koma í staðinn. Starfsfólkið
rokkar til með vinnutíma. Kl: 14.00 er
boðið upp á ávexti. Í sparnaðarskyni
koma foreldrar með ávexti einu sinni
í viku. Börnin koma með matarpakka
alla daga nema á föstudögum. Þá
borða allir saman máltíð sem útbúin
er í leikskólanum
Unnið er með börnunum í
aldursskiptum hópum. Stuðst er við
flokka þar sem tilgreint er hvað börnin
eiga að geta á hverju aldursskeiði.
Þannig er einnig unnið með elstu
börnunum. Samvinna er við grunnskóla
í hverfinu. Grunnskólakennari kemur
á fund með starfsfólkinu og fræðir
það um hvaða þætti er gott að
leggja áherslu á áður en barnið hefur
skólagöngu. Foreldrar fá bækling
með heim þar sem tilgreindir eru þeir
þættir sem barnið á að vera búið að
tileinka sér við upphaf skólagöngu.
Góð samvinna er við sérfræðinga á
ýmsum sviðum. Haldnir eru fyrirlestrar
á starfsmannafundum og fundir með
starfsfólki. Starfsmannafundir eru
einu sinni í mánuði, 4 klst.
Vettvangsferðir eru frekar
algengar. Hver deild hefur sinn dag
til að fara út í bæ og heimsækja t.d.
dýragarðinn. Á vorin er síðan fjögra
daga ferðalag (“koloni”). Fyrsti
dagurinn fer í að koma sér fyrir. Næsta
dag er fjársjóðsleit með vísbendingum.
Þann þriðja er skreyttur salur og
undirbúið náttfatapartý. Á fjórða
degi, föstudegi, er tekið til á svæðinu
og keyrt heim. Þá standa foreldrarnir
fyrir utan leikskólann með danska
fánann og taka á móti börnunum!
Enghave Remise
Þriðji leikskólinn sem við
heimsóttum er 30 ára gamall.
Hann var upprunalega byggður
sem neyðarstofnun, (þegar skortur
var á leikskólaplássum) en árið
1993 var honum breytt í núverandi
form. Hann er opinn frá kl. 06.30
– 17.00. Í leikskólanum eru 90 börn
á aldrinum 0 – 6 ára. Leikskólanum
er skipt í vöggustofu og leikskóla.
Fyrir yngstu börnin (0-3ja) eru gula
og rauða stofan með tólf börnum í
hvorri stofu. Í fjólubláu stofu, bláu
stofu og grænu stofu eru 22 börn á
aldrinum 3-6 ára. Í hverri stofu eru
heimsókn í þrjá danska leikskóla
18