Skólavarðan - 01.08.2003, Qupperneq 4

Skólavarðan - 01.08.2003, Qupperneq 4
Leikskólabörn og erlend samvinna 7 Comeniusarverkefni í leikskólanum Jöklaborg. Tónlist fyrir ostagerðarmanninn 8,9 Dagana 25. - 30. júní var haldið þing norænna tónlistar - og tónmenntarkennara, NMPU, í Tónlistarhúsi Kópavogs. Meðal fyrirlesara var Robert Faulkner. Hvert stefnum við? 13 Hugleiðingar Jónu Benediktsdóttur að loknu samræmdu prófi í náttúrufræði. Menntun er lykill út úr fátækt 15 Eru heilu fjölskyldurnar dæmdar til að vera fátækar ættlið eftir ættlið? spyr Gunnar Jón Yngvason í grein sinni. Ákveðin og vita hvað þau vilja 18,19 Starfsfólk leikskólans Sólvalla lagði land undir fót í vor og sótti heim þrjá danska leikskóla. Brúum bilið 19 samstarf Leikskólans Sólvalla og Grunnskóla Grundarfjarðjar. Heimspeki með börnum 21,22,23 Jón Thoroddsen hefur undanfarið ár unnið að tilraunaverkefni í heimsspeki með nemendum í Grandaskóla í Reykjavík. Leikskólanemendur með einhverfu 24,25 Verið er að móta þjónustulíkan fyrir leikskólanemendur í Kópavogi sem greinst hafa með einvherfu og fjölskyldur þeirra. Erla Stefanía Magnúsdóttir og Sigrún Hjartardóttir segja frá verkefninu. Evrópuráðstefna Félags kvenna í fræðslustörfum 26,27 Dr. Lynne Scholefield hélt stórskemmtilegt erindi á fjölsóttri ráðstefnu á grand hótel í ágúst byrjun. Formannspistill 3 Eiríkur Jónsson skrifar. Gestaskrif 5,6 Hrafn Jökulsson skrifar um skákina og skólakerfið. Námsefni 10,11,12 Stoðkennarinn, Benjamín dúfa, Lesum lipurt, Náðargáfan lesblinda, Loftur og gullfuglarnir. Fréttir og smáefni 14,16,17,20 Árlegt mót FKE, Ný heimasíða FNS, haukur már sextugur, Málþing um stærðfræðikennslu, o.fl. Kjaramál og tilkynningar 28 Smiðshöggið 29,30 Knútur Hafsteinsson leitar á lendur goðsogna og veltir vöngum yfir framtíð íslenskur. FASTIR LIÐIR EFNISYFIRLIT GREINAR Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is Hönnun: Veruleiki ehf. Ljósmyndun: Jón Svavarsson Teikningar: Ingi Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells / kristin@oflun.is / sími: 533 4470 Prentun: Svansprent Forsíðumynd: Jón Svavarsson - Lækjarskóli Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi). LEIÐARI Stutt sumur og hippar á tunglinu Tilgáta: Hin raunverulega ástæða fyrir óbilandi trú Launanefndar sveitarfélaga og annarra viðsemjenda kennara á gildi lengingar skólaársins er sú að Launanefndin (og aðrir viðsemjendur) hafa ekki hugmyndaauðgi til að ímynda sér (finnst ykkur þessi setning löng? Prófiði að lesa Joyce eða Sigfús Bjartmarsson) að lífið geti snúist um annað en vinnu eða að fólk hafi yfirhöfuð rétt til að gera nokkuð annað en vinna og ef einhver láti sér detta það í hug eigi sá hinn sami ekki tilkall til að kalla sig Íslending og gildir þá einu hvort hann er fimm ára eða fimmtugur og alfa og ómega vinnunnar er ekki að kaupa sér jeppa þó bent hafi verið á einu sinni eða svo í Tímanum minnir mig árið 1983 að við Íslendingar séum neysluglöð þjóð heldur að inntak vinnunnar er vinnan sjálf rétt eins og inntak fjölmiðiðilsins er fjölmiðillinn sjálfur sem öllum hefur verið ljóst nema ef til vill fjölmiðlamönnum síðan Marshall McLuhan sagði það og svo Neil Postman fyrir átján árum í Amusing Ourselves to Death og jafnvel þá var háðsádeiluritið Mother Jones til og líka Der Spiegel en ekki Onion og þaðan af síður Baggalútur svo þetta stendur allt til bóta og háðið lifir enn þótt André Breton hafi reynt að eigna það súrrealistum og þið eruð eflaust farin að átta ykkur á að ég er bara leið af því að sumarið er búið eða svo gott sem og veturinn er langur og langt síðan ég var barn og átti langt sumar sem endaði aldrei en í sumar tókst mér þó að glæða að nýju áhuga minn á því sem er að gerast í heiminum eftir langan leiða með því að lesa bók eftir John Simpson hjá BBC og horfa á Óskarsverðlaunaheimildamyndina Bowling for Columbine og þá mundi ég líka eftir Cyrano de Bergerac sem var reyndar því miður ekki nógu skemmtilegt leikrit í Þjóðleikhúsinu í fyrra þrátt fyrir leikstjórn Hilmars Jónssonar sem er mjög góður leikstjóri og tónlistina hans Hjálmars H. Ragnarssonar en Cyrano var til í alvörunni og nokkurs konar forveri vísindaskáldsagnahöfunda og líka háðfugl eins og þeir Baggalútar og hann skrifaði bók þar sem hann ferðast til tunglsins og hittir mjög stóra menn eins og Gúlliver í Brobingdnab eða hvað það nú hét og þessir stóru menn skarta bronshulstrum minnir mig utan um kynfærin sem minna Cyrano á sverð samtíma síns (en hann var sautjándu aldar maður) og mennirnir furða sig á því að jarðarbúar hylli dauðann með þessum hætti á meðan þeir sjálfir hylla lífið og framgang þess því hvað gera sverð og þá í samtíma okkar byssur eins og í myndinni hans Michael Moore annað en drepa og hvað gera kynfæri annað en búa til líf og unað og því má segja að þessi tunglmaður hafi verið forveri hippanna og viljað meika love en ekki war og með þessa hugsun í höfðinu sættist ég við komandi vetur og jafnvel við Launanefndina (og aðra viðsemjendur) og óska okkur öllum gleðilegs komandi vetrar. Kristín Elfa Guðnadóttir 4

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.