Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Page 22
Hollráð er við höndina.
Hér er
dagskrártillaga:
Verum ekki að toga þetta til og frá.
Tökum fyrir næsta mál á dagsins skrá.
Í nefndaráliti sínu og ræðu á Alþingi kemur
Skúli Guðmundsson inn á þætti í skáldverkinu
Kristnihald undir Jökli sem annars hafa lítið ver-
ið ræddir en það er hvernig skattgreiðslum per-
sónanna sé háttað. Raunar setur Skúli saman
sjálfstæða frásögn sem byggir lauslega á at-
burðum úr verkinu og ef til vill má líta á þetta
sem nokkurs konar afbyggingu.
Ég hef lesið í nýlega prentaðri bók frásagnir
af einum embættismanni hérlendum. Sá
heitir Jón og er prestur á Snæfellsnesi í
námunda við Jökulinn. [. . . ] Sögn er um það,
að séra Jón Prímus hafi tekið sér ferð á
hendur um fjallveg örðugan til einnar ver-
stöðvar þar á nesinu þeirra erinda að gera við
vélar í frystihúsi. [. . . ] Ég er ekki viss um það,
að séra Jón Prímus geri háar kröfur til frysti-
hússins um borgun fyrir sína vinnu þar, því
þetta er, eins og ég tók fram áðan, eftir lýs-
ingum að dæma góðviljaður maður og vill öll-
um gott gera. En hitt tel ég alveg víst, að for-
ráðamenn frystihússins hafi séð sóma sinn í
því að láta prestinn hafa frítt uppihald, með-
an hann vann hjá þeim við að koma vélunum
í gang. Þá koma nú skattayfirvöldin til skjal-
anna. Þau meta til peningaverðs matinn,
sem fer ofan í prest þessa daga, sem hann
er að vinna þarna, og síðan er matsupphæð-
inni skellt ofan á embættislaun hans og
reiknaður tekjuskattur og útsvar af allri
summunni. Þannig koma skattamenn fram
við þennan þjón drottins.52
Nokkrir þingmenn taka þátt í umræðunum en
mesta athygli hlýtur svar Gylfa Þ. Gíslasonar
þáverandi menntamálaráðherra að hafa vakið:
Herra forseti. Ég ætla í þessu máli að fara að
dæmi hv, fyrri minni hl. fjhn., er hann rímaði
mál. sitt, og tala í léttum tón. Ef einhver
söngelskur hv. þm. kynni að vilja taka undir
það, sem ég segi, þá er lagið: Stóð ég úti í
tunglsljósi.
Fjárhagsnefndin ræddi um mikið skattamál.
Mjög ber það að harma, að allt fór það í bál.
Flest getur í þingnefndum furðulegt hent,
framsóknarmennirnir klofnuðu í tvennt.
Skúli reyndist andríkur og orti prýðisljóð,
þótt ekki væri skynsamlegt, sem þar í kvæði
stóð.
En Vilhjálmur reyndist skynsamur,
hann víst má eiga það,
þótt væri það lítið, sem hann festi á blað.
Er það nokkuð undarlegt, ef að er betur gáð
þótt einingin sé lítil og tvenn þeirra ráð,
því hér er ekki um að ræða hagsmunamál
fyrir hreina og góða,
dygga og trygga framsóknarsál.
[. . . ]
Maddama Framsókn, forðum oft sig furðu-
lega bar,
nú furðar menn að sjá, hve hún er mikið
skar.
Stundum hún andvarpar ein með sjálfri sér:
Er það máske feigðin, sem kallar að mér?53
Mörkin milli skáldskapar og veruleika eru þoku-
kennd bæði í Danmörku og á Íslandi. Eins og
sjá má er Alþingi ekki undanskilið – þar sem
tveir þingmenn koma saman verður til mikill
skáldskapur.
Yfirlýsing Halldórs Laxness um að Danir viti
ekki hvað heiður sé er einkar vandræðaleg þeg-
ar tekið er mið af umræðunni sem fór fram á Ís-
landi. Rithöfundurinn Anders Bodelsen sagði
um ummæli Laxness: „hægt [er] að halda því
fram, að við [Danir] séum ekki á neinn hátt
verulega frábrugðnir öðrum þjóðum Vestur-
Evrópu, þegar um peninga er að ræða.“54 Ef til
vill er mannskepnunni hagsýni eðlislægari en
heiður. Og hugmynd Íslendinga um heiður og
sóma virðist síst skýrari en Dana.
Týndi sonurinn
[Halldór Laxness] segir fullum fetum „Komm-
únisminn er jú landplága frá Eystrasalti til Kyrra-
hafs –.“
Það er vissulega nokkurs virði þegar maður
með lífsreynslu Halldórs Laxness mælir slík
orð. Þeir fjölmörgu Íslendingar, sem aðhyllzt
hafa kommúnismann á grundvelli þess mis-
skilnings að hann hafi skapað rússnesku fólki
góð og þroskavænleg lífsskilyrði ættu að hug-
leiða þennan boðskap Nóbelsskáldsins. Halldór
Laxness sagði þessu fólki einu sinni að komm-
únisminn væri fullkomnasta þjóðskipulag á
jörðinni. Margir Íslendingar trúðu því. Nú hefur
þetta fræga skáld allt aðra sögu að segja:
„Kommúnisminn er jú landplága alveg frá
Eystrasalti til Kyrrahafsins –“ 55
Vísir fjallar reglulega um framgang Sonning-
málsins hér heima. Lítið er þó að græða á
fréttaflutningi Vísis um málið í Danmörku eins
og fréttin um verð Kristnihalds undir Jökli ytra
ber vitni. Morgunblaðið færir landsmönnum
aftur á móti reglulega fréttir af gangi mála ytra
og spyr auk þess skáldið álits öðru hverju.
Hinn 4. febrúar er greint frá umfjöllun Berl-
ingske Tidende og Politiken um verðlaunaaf-
hendinguna. Þar er sagt að blöðin telji alþjóð-
lega frægð og listhæfileika Laxness ráða því
að hann hafi orðið fyrir valinu. Lítið er skrifað
um þann hluta umfjöllunar Politiken sem birt-
ist undir dulnefninu Tempest en efni viðtalsins
sem birtist með greininni rakið nokkuð ná-
kvæmlega. Eftirfarandi er endursögn Morgun-
blaðsins á efni greinar í Berlingske Tidende:
[B]ókmenntagagnrýnandinn Emil Frederik-
sen [skrifar], að það sé Ísland, sem sé heiðr-
að í persónu Laxness. „Það er okkur
ánægja, að fáni Íslands verður dreginn að
hún yfir Kaupmannahafnarháskóla við af-
hendingu Sonning-verðlaunanna og mun
vitna um bræðralagið milli landa okkar og
þann mikilleik, sem Ísland býr yfir einnig á
okkar tímum. Og það mun ekki rýra á
nokkurn hátt rétt Laxness til þess að koma
fram sem fulltrúi lands síns, og sem sá er
athyglin beinist að, að nokkrir okkar hugsi
með vinsemd til Gunnars Gunnarssonar og
Sigurðar Nordals“, skrifar Emil Frederiksen,
sem leggur áherzlu á, að það sem sé full-
komlega sérstætt við Laxness sé undra-
verðir hæfileikar hans í frásagnalist. En sem
talsmaður réttar hinna kúguðu til hjálpar er
málefni mannúðarinnar eitt af því, sem
hann hefur lagt meiri áherzlu á en flestir
aðrir í samtíð okkar, segir Emil Frederiksen
að lokum.
Á eftir þessari úttekt fylgir samantekt á lífs-
hlaupi C. J. Sonning. Sagt er frá því að sjóður-
inn sem við hann er kenndur reki nokkrar íbúð-
ir á Frederiksberg og nefnd á vegum Hafnarhá-
skóla sjái um úthlutanir úr honum. Þessi frétt
gefur ekki tilefni til að ætla annað en allir hlut-
aðeigendi muni hljóta nokkurn sóma af Sonn-
ingverðlaunum, þ.e. Halldór Laxness, C.J.
Sonning, Hafnarháskóli, Íslendingar og Danir.56
16 Laxness Haukur Ingv 6.12.2002 14:15 Page 22