Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 33

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 33
bókina 14 ár í Kína um þá dvöl. Ólafur kemur frá Vestrinu til að innleiða vestræna siði í Austur- löndum. Hann hefur mjög sterka tilfinningu fyr- ir því að Kínverjar séu heiðingjar og tilheyri þar af leiðandi „hinum“ en ekki „okkur“. Ólafur leitar ekki vísindalegra orsaka á þeim miklu at- burðum sem urðu í Kína á þessum tíma en tel- ur allt sem illa fer eiga rætur að rekja til heiðni og allt gott til kristni. Hann aðhyllist kristna tví- hyggju ákaft og sér heiminn sem orustuvöll góðs og ills. Hann telur hegðun Vesturlanda gagnvart Kínverjum fullkomlega eðlilega. Hann hamrar á því að Vesturlandabúar standi Kínverj- um ofar; þeir sýni Kínverjum sanngirni og rétt- læti en uppskeri fátt nema vanþakklæti: Flestar þjóðir hafa um langan tíma sýnt Kínverj- um jöfnuð og fulla sanngirni í viðskiptum, og yf- irleitt hafa kristniboðarnir reynzt þeim velgerð- armenn.25 Hér er engu líkara en að Ólafur sé að andmæla algengri skoðun, þ.e. að Kínverjar hati útlend- inga, þar með talda kristniboða, að ósekju. Hins vegar er víst að Vesturlönd hafa varla verið slík- ir Samverjar sem Ólafur lýsir og 19. öldin ein- kenndist af viðskiptalegum og trúarlegum yfir- gangi þeirra. Ólafi kemur ekki heldur til hugar að leita skýringa á þeirri andúð gegn útlendingum sem braust út í Boxarauppreisninni aldamótaárið 1900 í yfirgangi erlendra heimsvelda (sem m.a. manna, ræningja og reyrða fætur kvenna: Utan frá hvirflinum höfðu þeir langan topp, sem náði ofan að buxnastrengi, og allir þeir, sem hann ei höfðu, voru latroner (ræningjar) eður óærlegir (æru- lausir). Af þessu fólki voru margir, sem lágu út á sjónum og eigi máttu á land koma fyrir þeirra þjófnað og rán. Þeirra klæðnaður var blá nankinsföt. [. . . ] Þessir menn eru vinsam- legir að tala við, eru hin vanski- legasta þjóð að gera kaup- höndlan með, því þeir eru hinir nærfærnustu þjófar . . . 15 Kvenfólkið hafði járnskó á fót- um sér, ei stærri en passa kunni átta vetra gömlu barni. Þetta skyldi vera þeirra straff fyrir undan far- in svik og pretti við þeirra keisara, og skyldi sú kynkvísl bera þetta straff, so lengi þar var einn maður af henni lifandi.16 Hvergi kemur fram í sögunni hvaðan Árni hef- ur skýringu sína á fótabúnaði kvennanna en þannig ber hann ókunna hluti upp að kunnum án þess að leggja dóm á. Slíkt hlutleysi og víð- sýni eru merkileg en ekki óþekkt í ferðasögum frá þessum tíma.17 Bent hefur verið á að Evr- ópumenn hafi borið mikla virðingu fyrir kín- verskri menningu fyrr á öldum en fyrst á 19. öld hafi viðhorf þeirra farið að einkennast af hugmyndum um evrópska yfirburði yfir asískri menningu.18 Það er ekki heldur fráleitt þar sem goðsagn- ir um framandi lönd fara ekki að myndast fyrr en tengslin eru orðin allveruleg og hafa ber í huga að heimsvaldastefna 19. aldar er for- senda óríentalismans. Munurinn á vestrænum viðhorfum frá ólíkum tímum til Kína kemur skýrt fram ef bornar eru saman ferðasaga Árna og ferðasaga Ólafs Ólafssonar trúboða en hún kom út 1939. Það er sitthvað að tala til heiðingja eða kristinna manna Á síðari hluta 19. aldar versnaði ástandið í Kína stöðugt. Vesturveldin réðu nánast öllu í efna- hagslífinu og sveifluðust á milli þess að skipta landinu upp í áhrifasvæði sín eða opna landið algjörlega fyrir erlendum áhrifum.19 Það varð úr að landið var opnað algjörlega fyrir erlendum fjárfestum og með þeim í för voru hermenn til að gæta hagsmuna þeirra.20 Allir ætluðu sér að græða á Kína og þróunin var hröð, árið 1890 voru 499 erlend fyrirtæki búin að koma sér fyr- ir í landinu, árið 1923 voru þau orðin 6.865.21 Enginn spurði Kínverja álits á þessum við- skiptasviptingum. Því er ekki skrítið að um og eftir 1890 hafi andstaða við útlendinga í Kína vaxið mjög. Kínverjar kenndu útlendingum um hörmulegt ástand samfélagsins og keisara- stjórnin gerði lítið til að sætta þessar andstæð- ur en tók fremur afstöðu með útlendingum en kínverskri alþýðu. Kínversk alþýða snerist því gegn erlendri heimsvaldastefnu og undanláts- semi keisarastjórnarinnar.22 Barátta alþýðunnar gegn útlendingum náði hámarki í tengslum við vestrænt trúboð. Kín- versk lög náðu ekki yfir trúboða og kristnir Kín- verjar gátu leitað á náðir þeirra ef þeir lentu upp á kant við aðra Kínverja. Því fjölgaði lagalegum árekstrum um leið og kristnum Kínverjum fjölg- aði.23 Einnig tóku margir trúboðanna ekkert tillit til siða og venja Kínverja og notuðu öll tækifæri til að efla áhrif sín. Að því kom að almenningur beitti valdi í samskiptum sínum við útlendinga. Í hvert skipti sem slíkt gerðist kröfðust trúboð- arnir skaðabóta sem þeir fengu oftast enda studdir af erlendu hervaldi.24 Ólafur Ólafsson var íslenskur trúboði sem dvaldist í Kína á þriðja áratugnum og skrifaði bls. 33 32 Kína Katrín Jakobs 6.12.2002 14:37 Page 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.