Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 37

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 37
leiðslutölur, skoðar aðbúnað verkamanna og kynnir sér húsakynni. Þessar upplýsingar leiða allar í átt að sömu niðurstöðu: með byltingunni hafa kjör almennings stórbatnað, framleiðsla aukist og fleira í þeim dúr. Eftir byltinguna hef- ur sjálfsvirðing Kínverja einnig stóraukist en hún hafði ekki verið upp á marga fiska eftir óp- íumstríðin og yfirgang vestrænna heimsvelda í landinu. Magnús kemst því að þeirri niðurstöðu að með sósíalismanum megi ná fram miklum hagvexti um leið og félagslegur aðbúnaður manna sé stórbættur. Allar þessar lýsingar á Kína leiða einnig í ljós að sósíalisminn getur tekið á sig ýmsar mynd- ir. Þannig er Magnús mun hrifnari af kínversku útfærslunni en þeirri sovésku. Hann tekur Kína fram yfir, ólíkt mörgum öðrum íslenskum kommúnistum. Þannig bendir hann á að Sovét- menn hafi reynt að þröngva aðferðum sem séu miðaðar við sovéskar innanlandsaðstæður upp á önnur ríki, til dæmis Júgóslavíu og Kína. En Magnús aðhyllist mismunandi leiðir til sósíal- isma, telur sovésku leiðina enga sérstaka fyrir- mynd og bendir á það lögregluríki sem þar ríkti: Andstæðingar kínversku byltingarinnar halda því fram að Kína sé lögregluríki, fólk hlýði af einskærum þrælsótta, menn geti átt von á því á hverri nóttu að lögreglan berji að dyrum og hirði þá eins og tíðkaðist í Sovétríkjunum um skeið. Jafnt kynni mín af daglegu lífi og andrúmslofti í Kína sem af bókum þeirra er- lendra blaðamanna og sérfræðinga sem ég treysti bezt hafa sannfært mig um að þetta er fjarri lagi.52 Magnús ræðir einnig sérstakar aðstæður í Kína, þar sem bændur hafi gert byltingu en ekki verkamenn sem stangast auðvitað á við stranga túlkun á marxískri kenningu: Árið 1927 stofnaði Maó Tsetung fyrstu bændaráðstjórn sína í Húnan-héraði í sunn- anverðu Kína og gekk þá í berhögg við marx- istískar fræðikenningar sem töldu verkalýðs- stéttina óhjákvæmilega forsendu sósí- alistískrar byltingar.53 Hann telur Kínabyltinguna þó betur heppnaða á margan hátt en aðrar sósíalískar byltingar og er einnig hrifinn af kínversku útfærslunni á komm- únismanum. Hann telur kínverskar alþýðu- kommúnur til dæmis bera höfuð og herðar yfir samyrkjubúin.54 Þá tekur Magnús undir með Maó um að manndýrkun eigi ekki heima í sósíalísku samfé- lagi og gagnrýnir persónudýrkun á Lenín og Stalín. Hins vegar líst Magnúsi ekki á þá þróun sem sé hafin í Kína í þessa átt og telur að Maó ætti að sporna við henni hið fyrsta: Meðan manndýrkun var hin opinbera stefna í Sovétríkjunum höfðu Kínverjar allt annan hátt á. Þeir settu lög sem bönnuðu að borg- ir, verksmiðjur og götur væru skírðar í höfuð- ið á lifandi mönnum, afmæla leiðtoganna er aldrei minnzt, þess var til að mynda ekki get- ið einu orði í kínverskum blöðum þegar Maó varð sjötugur í fyrra, og sumir Kínverjar sem ég sagði frá afmælinu höfðu ekki hugmynd um það. Alkunnur er sá síendurtekni boð- skapur Maós að forustumenn á öllum svið- um og stigum eigi að vera hógværir og lítillát- ir, þjónar en ekki herrar. [. . . ] Eftir þessa skýru stefnuyfirlýsingu og fyrri reynslu er þeim mun kynlegra að sjá þá Maódýrkun sem nú er ástunduð í Kína. Hitt liggur í aug- um uppi að það eru deilur kommúnistaflokka Sovétríkjanna og Kína sem valda þessum umskiptum. [. . . ] En þótt þessi sé skýringin er fyrirbærið í senn óviðfelldið og hættulegt. Það er ekki sízt óviðfelldið vegna þess að Maó Tsetung á annað betra skilið en þetta tilbeiðslugum . . . 55 Fram kemur að allt stefnir í menningarbylting- una þegar Magnús er í landinu; þannig eru komnar fram hugmyndir á þessum tíma um að menntamenn skuli vinna líkamlega vinnu sam- hliða kyrrsetustörfum til að þeir missi ekki tengslin við alþýðuna.56 Þetta líst Magnúsi ekk- ert illa á í sjálfu sér en afleiðingar menningar- byltingarinnar eru auðvitað þekktar frá síðari tímum og ekki til umræðu hér. Kína sem valkostur við Vesturlönd er rauður þráður þessarar ferðasögu, eins og hjá Birni. Til að mynda lýsir Magnús fangelsisaðstæðum í Kína sem eru töluvert mannúðlegri en þekkjast á Vesturlöndum og telur þær til fyrirmyndar.57 Hann telur þó að sú heildarhyggja sem tíðkist í Kína eigi ef til vill ekki heima í einstaklingsmið- uðu samfélagi Vesturlanda enda sé hún enginn fylgifiskur sósíalismans heldur eigi rætur í hinni ævafornu kínversku menningu.58 Bók Magnúsar er markviss frásögn. Henni er ætlað að sannfæra íslenskan almenning um ágæti kínversks þjóðskipulags. Hann ræðir við fjölmarga alþýðumenn og sannfærir lesendur sína um að bylting hafi verið óumflýjanleg í kínversku samfélagi á fyrri hluta 20. aldar. Magnús reynir hins vegar að forðast alla útópíuhugsun og óríentalisma. Hann fer í kringum goðsögnina og reynir að losna undan henni. Hann kastar ekki fram órökstuddum athugasemdum um að í Kína sé eilíft sumar og að Kínverjar brosi allan daginn. Hann gerir ekki heldur mikið úr mismun Austurs og Vesturs. Allt sem Magnús segir er rökstutt með hagtöl- um og viðtölum í anda sósíalískrar vísinda- hyggju. Hann vill ekki falla í þá gryfju að dásama Kína á forsendum tilfinninga heldur leggur mikið upp úr því að frásögnin sé trú- verðug og skotheld fyrir gagnrýni hægri- manna. Niðurstaða hans er sú að kínverska aðferðin sé raunhæfur kostur fyrir önnur sam- félög á leið til sósíalisma. Hengjum ketti erlendu njósnaranna Árið 1972 kom út bókin Folda eftir Thor Vil- hjálmsson. Í henni standa þrjár sjálfstæðar ferðasögur sem eru skáldskapur; eru þannig eins konar skopfærsla ferðasögunnar sem að jafnaði á að vera sönn frásögn. Slíkar skáld- ferðasögur eru þekktar frá fyrri öldum í tengsl- um við útópíuformið, oft og tíðum fóru menn þá til ímyndaðra landa eins og Gúllíver sem heimsótti Putaland og Risaland og fleiri lönd. Slíkar sögur voru nánast jafn vinsælar á 18. öld og sannar ferðasögur.59 Saga Thors er þó öðru- vísi. Henni er ætlað að afbyggja ferðasagna- formið og um leið goðsögnina um Kína. Frásögnin í miðju Foldu, Önnur skýrsla: Sendiför, er frásögn af Kínaferð íslenskrar sendinefndar og minnir grunsamlega á Kínaæv- intýri Björns Þorsteinssonar sem hafði þegar birst í þáttum í Þjóðviljanum. Ekki er því útilok- að að hér sé um beina skopstælingu að ræða. Í bók Björns kynnumst við fyrirmyndarlandinu. En á bak við hverja útópíu býr ranghverfa henn- ar, svokölluð dystópía eða anti-útópía.60 Frá- sögn Thors er í átt við slíkan viðsnúning. Thor ýkir stórlega frásögn sína og gerir fárán- lega. Íslensku sendimennirnir eru auðtrúa mjög (og eiga væntanlega að vera hliðstæður við Björn og félaga í Kínaævintýri hans) og Kín- verjarnir eru ófeimnir við að viðra skoðanir sín- ar sem eru oft all öfgakenndar. Til að mynda hittir sendinefndin Kínverja nokkurn í flugvél- inni á leið til Kína sem tengir H.C. Andersen við kommúníska teoríu: bls. 37Mitt Kína, þitt Kína 32 Kína Katrín Jakobs 6.12.2002 14:37 Page 37

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.