Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 58

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 58
kvæðan hátt undir fyrirsögninni „Íslensk sýning í Kaupmannahöfn 1905“. Á sumri komanda verður haldin stór þjóðleg sýning í Tivoli, hinum fræga skemmtistað í Kaupmannahöfn, á munum og gripum frá Ís- landi og Færeyjum og frá hinum dönsku ný- lendum, Grænlandi og vestur-indversku eyjun- um. Fyrir sýningu þessari hefir gengist danskt kvenfélag, er nefnist „ Dansk Kunstflidsforen- ing“. [. . . ] Til er ætlast að íslenzka sýningin gefi sem greinilegasta hugmynd um alt líf og menn- ing hinnar íslenzku þjóðar bæði að fornu og nýju. Á þar meðal annars að vera eftirlíking af laglegum íslenzkum sveitabæ með öllu tilheyr- andi, hestar á beit o.fl. Íslenskar stúlkur á þjóð- búningi eiga að sjá um sýningu o. s. frv. (Ís- lensk sýning í Kaupmannahöfn 1904:190) Aðeins þremur dögum síðar birtist svo harðorð grein Gísla Sveinssonar nemanda í Kaup- mannahöfn, undir fyrirsögninni „Sýningin í Kaupmannahöfn frá hjáleigum Danaveldis. Ís- landi stórhætta búin“: Mál það er komið á dagskrá hér í Kaupmanna- höfn og farið að því að vinna, að á sumri kom- andi verði haldin sýning, sem lönd þau, er liggja undir Danaveldi, Ísland, Færeyjar, Grænland og Vesturheimseyjar, skuli efna til. Þetta nær því til okkar, sem hver maður getur séð, og má ekki undir höfuð leggjast að gefa því gaum og tilkynna íslenzku þjóðinni, hvað verið er að gera. [. . . ] Sýningin ber nafnið: Hjáleigu – eða hjálendusýningin (Udstilling for Kolonierne, samt for Bilandene); slengja Danir þannig hjá- leigunafninu á lönd þau, er talin voru, öll til samans. Á sýningunni eiga þau líka að komast fyrir „í bróðerni“, hvert við hliðina á öðru. Þar eiga Íslendingar að skipa sama sessinn og Grænlendingar eða Skrælingjar, Færeyingar þann sama og Blökkumenn frá Vesturheims- eyjunum dönsku [. . . ] Það á að fá íslenzkar stúlkur til þess að sýna sig þar í þjóðbúningum, jafnframt því, að heill hópur hálfnakinna Svert- ingja og selskinnsvafðra Skrælingja verður rek- inn þangað. (Gísli Sveinsson 1904:197). Gísli bendir einnig á að í Tívolí, þar sem sýning- in átti að fara fram, hafi lengi tíðkast að sýna til dægrastyttingar og skemmtunar „ýmis konar afbrigði hálfvilltra þjóða, og skringimyndir og ‘hundakúnstir’ flökkulýðs“. Hann vísar þar til þess ramma sem slíkar sýningar stilla einstak- lingum upp í og sögulegs og félagslegs sam- hengis slíkra sýninga. Síðar í texta sömu grein- ar leggur Gísli enn sterkari áherslu á þá skömm sem fylgi því að Íslendingar séu settir til sýnis samhliða öðrum nýlenduþjóðum. Þykir Dönum því við eiga að sýna þar fágæti frá undirlægjum sínum, er þeir telja vera. Hefir til dæmis eitt blaða þeirra komist svo að orði, að aðalmarkmið sýningar þessarar sé, að gefa mönnum kost á að kynna sér og sjá með eigin augum lágmark menningarinnar hjá hinum ósiðuðu þjóðflokkum, er Danaveldi lúta. Hvern- ig lízt mönnum nú á? Virðist þjóðinni ekki þörf- um landsins síns vel borgið og sæmdar þess dásamlega gætt með þessu, er til stendur, að fari fram í höfuðstað ríkisins? Nei – svo skyni skroppin er þjóðin ekki ennþá, og svo sljó er ekki sómatilfinning hennar, að hún sjái eigi hví- lík svívirðing vofir yfir henni, hvílíka smán er verið að brugga henni, landinu og menningu þess! Það er sem sé hvorki meira né minna en að geysi-voði ógnar menningu landsins okkar og áliti þess meðal annara þjóða; það á að setja okkur á bekk með siðlausum villiþjóðum (og til þess hefir tekist að fá liðsinni nokkurra Íslend- inga), – það á að svívirða okkur í augum alls hins mentaða heims! (Fjallkonan 16. desember nr. 50. bls. 197). Aðrir íslenskir stúdentar erlendis háðu einnig harða baráttu gegn sýningunni. Í sama blaði birtist frétt frá Stúdentafélaginu í Höfn, þar sem fjallað er um umræður félagsins um þetta mál. Á fjölsóttum fundi voru margar ræður flutt- ar og töluðu allir samkvæmt höfundi fréttarinn- ar á móti sýningunni. Tillaga sem sett var fram af formanni félagsins, cand. jur. Sig. Eggerz, fékkst samþykkt með öllum greiddum atkvæð- um gegn tveimur. Hér er brot úr tillögunni sem er mjög keimlík umkvörtunum Gísla: „Er oss það kunnugt, að þar eru einkum sýndir villtir þjóðflokkar, sem að einhverju leyti eru frá- brugðnir menntuðum þjóðum. Í þetta skipti á að sýna jafnhliða oss Svertingja og Grænlend- inga, þykir oss slíkt ósamboðið menningu vorri og þjóðerni, og skorum því fastlega á þá Íslend- inga, sem sæti eiga í sýningarnefndinni, að af- stýra hluttöku Íslands í sýningunni.“ Þrír ís- lenskir ráðgjafar höfðu verið valdir til að að- stoða við sýninguna, þeir Hannes Hafstein, Finnur Jónsson prófessor og Valtýr Guð- mundsson dósent, en Hannes Hafstein sagði af sér í kjölfar þessara mótmæla eins og fram kemur í frétt í Fjallkonunni 28. des. 1904. Tengsl slíkra sýninga við vald og yfirráð koma einnig í ljós í umfjöllun Skírnis um heims- sýninguna nokkrum áratugum fyrr í Lundúnum árið 1886, en þar segir Jón Stefánsson pistlarit- ari; „Nýlendusýningin í Lundúnum 1886 opnaði augun betur á Englendingum fyrir því, að fjórð- ungur mannkynsins og sjöttungur jarðarinnar lýtur þeirra valdi“ (Skírnir 1888:18). Í þessum íslensku blaðagreinum eru sýningar á fólki sett- ar í samhengi við jaðarstöðu þeirra og hlutverk sem herfang valdameiri þjóða. Hlutverk sýning- anna er fyrir greinarhöfundum þess tíma ekki eingöngu að sýna hið furðulega, heldur skapa þær einnig landamæri milli þeirra sem eru fram- andi og ósiðmenntaðir og hinna sem eru þátt- takendur í framförum og nútímanum. Út frá slíku samhengi er ef til vill ekki undarlegt að ís- lenskir námsmenn hafi brugðist harkalega við. Sýningar á öðrum Í gegnum söfn og sýningar voru skapaðar sög- ur sem voru þræðir orðræðu sem voru hluti af stærri vef heimsmyndar Vesturlanda.55 Í gegn- um þessar sýningar almennt endurspeglast og mótast ákveðnar víddir valda milli hópa. Það er mikilvægt að muna söguna, ekki eingöngu vegna þess að hún sé mikilvæg í sjálfu sér heldur einnig vegna þess að við búum við af- leiðingar hennar í samtímanum. Misskipting auðs og valds í heiminum í dag er tilkomin vegna sögu sem hafði samverkandi hug- myndafræðilega og efnislega þætti. Heimssýn- ingarnar, eins og fyrr var sagt, eru eingöngu einn þráður í slíkri sögu. Það sem gerir þær einnig áhugaverðar er að við sjáum í þeim krist- allast mörg sömu munstrin og við höfum nú í samhengi við orðræðuna um „hina“ almennt. Orðræðan sem sýningarnar tóku þátt í að skapa virðist því hafa verið ótrúlega lífseig með því að endurskapa sig við nýjar aðstæður. Við búum ennþá við hugmyndafræðilega skiptingu heimsins í þessa tvo hluta og í raun er erfitt af fjalla um heiminn án þess að vísa í heiti sem endurspegla ákveðin valdaform,56 sem vísa í sinni gegnsæjustu mynd í fyrrverandi nýlendu og herraþjóð. Rannsóknir gefa til kynna að fé- lagsleg form eins og ferðamannaiðnaður byggj- ast á sömu framleiðslu á „hinum“, á sömu valdatengslum þeirra sem horfa og horft er á. Sumir fræðimenn hafa haldið því fram að í 52 Örheimur Ímyndar 6.12.2002 15:25 Page 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.