Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Page 31

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Page 31
studdu bjórfrumvarpið. Og þó að talsvert stærra hlutfall þingmanna af höfuðborgarsvæð- inu hafi stutt afnám bannsins en þingmanna úr dreifbýli studdi þó lítill meirihluti þingmanna úr dreifbýli frumvarpið. Meirihluti Alþýðubanda- lagsins studdi hins vegar áfram bjórbann árið 1988. Athygli vakti ákall 15 prófessora úr Læknadeild HÍ og lækna sem vinna við áfengis- meðferð til Alþingis um að fella frumvarpið þar sem bjórinn myndi ýta undir heildarneyslu áfengis og auka um leið heilsufarsvanda þjóð- arinnar. Í kjölfarið skrifuðu 133 læknar annað bréf til Alþingis um að ekkert samband væri á milli heildarneyslu áfengis og fjölda áfengis- sjúkra og mæltu með leyfi fyrir bjór. Lækna- stéttin taldi því bjórmálið heyra undir sérsvið sitt um leið og hún opinberaði klofning sinn til málsins. Fleiri þættir en vaxandi þéttbýlismyndun og breytt kjördæmaskipan á Alþingi áttu þátt í af- námi bannsins. Ísland hefur í sífellt ríkari mæli tengst og orðið hluti af hinu alþjóðlega samfé- lagi á síðustu áratugum. Árið 1950 þegar íbúa- tala Íslendinga var um 150 þúsund fóru aðeins 4300 Íslendingar til útlanda og 4400 ferðamenn heimsóttu landið. Árið 1970 höfðu átt sér stað veigamikil umskipti. Um það bil 27 þúsund Ís- lendingar fóru þá utan og um 53 þúsund ferða- menn heimsóttu landið. Árið 1988 þegar bjór- bannið var afnumið á Alþingi fóru um 150 þús- und Íslendingar utan, eða að jafnaði meira en tveir af hverjum þremur og um 130 þúsund er- lendir ferðamenn heimsóttu landið. Þróunin er skýr vísbending um að landfræðileg einangrun Íslendinga hafi verið rofin og stór hluti þjóðar- innar kynnst menningu annarra vestrænna ríkja, m.a. bjórdrykkju. Opnun landsins bæði út og inn á við hefur því smám saman grafið und- an tilvist bjórbannsins. Þróun íslensks þjóðfélags í átt til nútímalegri þjóðfélagshátta fól í sér fleiri hliðar. Áfengis- stefna stjórnvalda hefur sömuleiðis færst í frjáls- lyndari farveg á síðustu árum. Árið 1954 var ein- ungis einn veitingastaður á Íslandi með vínveit- ingaleyfi. Árið 1980 voru vínveitingastaðir orðnir 37, 1988 var fjöldi þeirra kominn í 148 og 1994 voru þeir orðnir 322. Á síðasta ári 2001 var fjöldi vínveitingaleyfa síðan kominn í 512 og er vöxt- urinn áþreifanlegastur á landsbyggðinni. Sama þróun hefur átt sér stað í fjölda áfengisverslana sem voru aðeins 7 á landinu öllu árið 1962, en voru orðnar 24 árið 1994 og 38 árið 2002. Áhrif bjórs á heildarneyslu og drykkjumynstur Hvaða áhrif hefur frjálslegri áfengisstefna haft á heildarneyslu áfengis á Íslandi? Ef litið er á neyslutölur sést að aukning hefur orðið á áfengisneyslu landsmanna á undanförnum ára- tugum. Árið 1966 nam heildarneysla áfengis 2,33 lítrum á mann en árið 1976 hafði hún auk- ist í 2,88 lítra. Aukningin hófst því áður en lög- gjöfin var gerð frjálslegri. Árið 1988, árið sem bjórbanninu var aflétt, var neysla áfengis kom- in í 3,39 lítra á mann. Árið 1990, fyrsta heila árið eftir afnám bannsins jókst neyslan í 3,93 lítra á mann eða um tæp 20 prósent frá því árið áður en bjórinn var leyfður. Árið 1995 var neyslan hins vegar komin niður í 3,6 lítra á mann sem er ekki miklu meira en fyrir afnám bannsins. Frjálslyndari áfengisstefna hefur þó óneitan- lega ýtt undir heildarneyslu áfengis hér á landi á síðustu árum og var hún orðin 4,86 lítrar af hreinum vínanda á mann árið 2001. Fullvíst má telja að afnám bjórbannsins er einungis einn liður af mörgum bak við þessa aukningu. Ís- lendingar drekka þó enn minna en flestar aðrar vestrænar þjóðir en heldur hefur dregið úr bil- inu milli okkar og annarra. Neyslumynstrið hef- ur einnig breyst og hlutfall sterkra drykkja minnkað. Færa má rök fyrir því að umgengni við áfengi hafi almennt batnað á Íslandi en vandi vegna áfengisfíknar ekki minnkað. Til- koma bjórsins hefur ekki leitt til áfengisneyslu á vinnustöðum eða meiri áfengisneyslu verka- fólks en annarra einsog bjórandstæðingar ótt- uðust lengi. Hins vegar er líklegt að áfengis sé neytt oftar á Íslandi í kjölfar lögleiðingar bjórs en líklegast minna í hvert sinn. Með breyttri samfélagsgerð á Íslandi og opnun samfélags- ins hefur kaupmáttur og frítími Íslendinga auk- ist og viðhorf til áfengis orðið líkara því sem tíðkast annars staðar í Vestur-Evrópu og heild- arneysla áfengis vaxið að sama skapi. Bjórbannið og stríðið gegn fíkniefnum Afnám bjórbannsins táknaði þó ekki endalok baráttu Íslendinga við vímuefnin. Í kjölfarið færðist nýr og aukinn kraftur í andstöðu Íslend- inga við fíkniefni sem staðið hefur yfir linnulítið síðan. Athyglisvert er að röksemdirnar eru ekki ósvipaðar umræðunum um bjórbannið eins og minnst var á hér að framan. Fíkniefnin, einsog lengi var álitið með bjórinn, eru álitin sérstök ógnun við unga fólkið og þar með framtíð þjóð- arinnar enda sýna mælingar að neysla fíkniefna er einkum bundin við yngri aldurshópa. Jafn- framt er töluverð hætta talin á að neysla al- gengasta fíkniefnisins kannabis leiði til neyslu harðari fíkniefna rétt einsog álitið var með neyslu bjórs og sterkara áfengis. Ekki er síður athyglisvert að talsmenn bjórs á Alþingi héldu því stundum fram að einmitt bjórinn væri skaðminni en sterkara áfengi þar sem bjór verkaði róandi en sterkt áfengi ýtti undir árásar- girni. Á sama hátt hafa lögleiðingarsinnar í Bandaríkjunum iðulega bent á að kannabis væri róandi efni meðan sterkt áfengi æsti menn meira uppi og áfengi væri því í raun skaðlegra vímuefni en kannabis. Í fyllingu tímans mun skyldleikinn milli áfeng- isbannsins og núverandi fíkniefnabanns vafalít- ið smám saman koma betur í ljós. Afleiðingar bannstefnunnar eiga einnig sitthvað sameigin- legt ekki síður en aukið frjálslyndi í vímuefna- málum hvort sem um áfengi eða önnur vímu- efni er að ræða. Smygl, ólagað og hættulegt áfengi, sérsveitir lögreglu til að uppræta með- ferð og neyslu áfengis með tilheyrandi fjölda- handtökum og fangelsunum, ofbeldi í undir- heimum, óheflaðir drykkjusiðir og mikill áfeng- isvandi eiga sér skýra samsvörun í nútímasam- félagi fíkniefnabannsins. En þrátt fyrir að hér sé að mörgu leyti um sambærilegan málaflokk að ræða er það efni í aðra sögu og stærri sem ekki verður sögð frekar hér að sinni. Helgi Gunnlaugsson (f. 1957) er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað fjölda greina um vímu- efnamál og er höfundur tveggja bóka þar sem komið er inn á málaflokk vímuefna: Afbrot og Íslendingar. Háskólaútgáfan, (2000) og Wayward Icelanders: Punishment, Boundary Maintenance and the Creation of Crime. University of Wisconsin Press, (2000). bls. 31Fíkniefnavandi fortíðarinnar 28 Bjórinn Helgi Gunnlaugs 5.12.2002 16:52 Page 31

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.