Félagsbréf - 01.03.1963, Blaðsíða 36
GYLFl ÁSMUNDSSON
Andatrú og sálarrannsóknir
I.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
dulræn fyrirbæri og andatrú nú að
undanförnu. Mætti því ætla að hér
væri verið að bera í bakkafullan læk-
inn að leggja fram eitt tillagið enn.
Ég tel að þ ví fari fjarri að svo sé,
svo fremi reynt sé að komast að ein-
hverjum sannleikskjarna. Áhugi manna
hér á landi á þessum málum er svo
útbreiddur, að vart munu dæmi þess
annars staðar í heiminum, en skoðanir
fjölmargra jafnframt svo tilfinninga-
bundnar, að það er rétt eins og traðkað
sé á þeirra helgustu dómum, ef
reynt er að ræða um þessi mál á rök-
rænan hátt. Þetta hefur glögglega kom-
ið fram í mörgum þeirra greina, sem
birzt hafa að undanförnu, einkum
þeim er helzt hafa reynt að standa fyr-
ir máli spiritismans. Jafnvel menn,
sem eiga að teljast menntaðir, eru há-
skólagengnir og kallaðir ke/inimenn,
hafa gert sig bera að ruglingi á grund-
vallarhugtökum og fádæma vanþekk-
ingu á því, sem þeir rita um.
Sem dæmi um þann rugling, sem
hér ríkir í andamálum, má benda á
það, að ekki er nokkur leið að átta
sig á, hverjir eru sálarrannsóknarmenn
og hverjir spiritistar. Að vísu er til-
24 FÉLAGSBRÉF
hneiging á fleiri stöðum en hér, að
spiritistar séu í sálarrannsóknarfélög-
um, effa þeir sem kalla sig sálarrann-
sóknarmenn séu í rauninni spiritistar.
En á fáum stöðum munu þessar tvær
hreyfingar renna jafnmikið saman og
hér, enda líta flestir hér á landi á þær
sem einn og sama hlutinn. — Mér hef-
ur skilizt, að þeir sem aðhyllast sálar-
rannsóknir telji sig leita eftir strang-
vísindalegum aðferðum, eftir því sem
unnt er að koma þeim við, aff rök-
um fyrir því hvaða öfl stjórni þeim
fyrirbærum, sem við oftast köllum yf-
irnáttúrleg, og hvort þessi öfl séu
annars heims en okkar. Spiritismi aft-
ur á móti grundvallast á þeirri trú, að
við getum og höfum náð sambandi við
aðra heima, og það samband lýsi sér
í áðurnefndum dulrænum fyrirbærum;
— stefna spiritismans miði síðan að
því að nota þær upplýsingar, sem þann-
ig fást, til að auka þekkingu okkar á
því, sem við tekur eftir dauða okkar.
Sálarrannsóknarmenn eru því í leit
að hlutlægri þekkingu; spiritistar telja
sig hafa öðlazt þá þekkingu. Þeir hafa
fyrirfram trú eða sannfæringu á því, að
við getum haft samband við framliðna.
Þeir kalla þetta að vísu sannanir.
Þeir telja, að maðurinn fái ekki tru