Félagsbréf - 01.03.1963, Blaðsíða 91
næstsíðasta bók hennar, sem var næsta
óvenjuleg ástarsaga. Ilér er komin ný ástar-
saga, þar sem reyndar eru allar mögulegar
uppstillingar sögufólks.
John Braine: Lije at the Top (Eyre &
Spottiswoode, 18 sh) Braine hlaut fyrir nokkr-
um árum mikla frægð fyrir miðstéttarsögu
sina Room at the Top. 17 útgefendur höfðu
reyndar hafnað sögunni áður en hún kom út
og hlaut skjóta metsölu, síðan hefur vinsæl
kvikmynd verið gerð eftir sögunni. Nýja sag-
an er í óbeinu framhaldi hinnar fyrri.
Lawrence Durrell: The Alexandria Quartet
(Faber & Faber, 45 sh) Durrell hefur safnað
Alexandríu sögum sínum fjórum — Justine,
Balthazar, Mountolive og Clea — í eitt bindi,
samræmt textann og gert lítilshúttar breyt-
tngar. Þetta er endanleg útgáfa verksins, en
Alexandríukvartettinn er af sumum talin
merkasta skáldsaga sem út hefur komið í
Evrópu eftir stríð. Þessi útgáfa ætti að gefa
tilefni að meta verkið í heild sinni eftir
uð tízkuhrifningu hefur lægt.
P. H. Sawyer: The Age oj the Vikings
(Edward Arnold, 30 sh) Höfundur telur að
hingað til hafi afrek og áhrif víkinga á mið-
óldum verið mikils til ofætluð og vísar á
*mg flestöllum kenningum fyrri fræðimanna
um þessi efni. Bók hans er deilurit, höfund-
ur meiri kenningabrjótur en hlutlægur kenn-
'ngasmiður, en bókin má vel verða tilefni
endurskoðunar á vikingafræðum, segir Times
Literary Supplement.
Cecil Woodham-Smith. The Great Hunger
(Hamish Hamilton, 30 sh) Saga hungurs-
neyðarinnar miklu á írlandi á öldinni sem
(eið, sem stráfelldi þjóðina og hrakti hundruð
l'úsunda landflótta til Ameríku. Áhrifamikil
tjóðlífslýsing og þung ákæra á yfirstétt
landsins og brezku stjórnarherrana.
The Lelters oj Oscar Wilde (Hart-Davis,
4 gn) Wilde sagði sjálfur að hæfileikar sínir
birtust í skáldskapnum, snilligáfan í lífi sínu,
og bréfasafn hans er talið staðfesta þá kenn-
ingu.
Ilya Ehrenburg: First Years of the Revol■
ution 1918—1921 (MacGibbon & Kee, 25 sh)
í þessum hluta endurminninga sinna segir
Ehrenburg af frjálsræðisskeiði rússneskra
mennta- og listamanna fyrstu árin eftir bylt-
inguna. Skáldin Majakovskí og Pasternak,
leikhúsmaðurinn Meyerhold og margir aðrir
koma mjög við sögu. Frelsið tók bráðan endi
við valdatöku Stalíns, en Ehrenburg þrauk-
aði þótt Pasternak hlyti að þagna og Maja-
kovskí og Meyerhold létu lífið.
H. Montgomery Hyde: The Quiet Cana-
dian (Hamish Hamilton, 25 sh) Sir William
Stephenson er Kanadamaður, fæddur í
Winnipeg 1896 og af íslenzku fólki í móður-
ætt. Hann var flugmaður í fyrri heimsstyrj-
öld, um tima heimsmeistari í hnefaleikum,
íekkst síðan við uppfinningar og viðskipti
á sviði útvarps og sjónvarps, var orðinn
milljónamæringur um þritugt. Bókin er ævi-
saga hans, en fjallar að meginefni um starf
hans í þágu brezkrar og bandarískrar leyni-
þjónustu á stríðsárunum seinni, en þá leysti
hann mjög mikilsvert verk af höndum.
Arthur og Barbara Gelb: O’Neill, a bio-
graphy (Jonathan Cape, 55 sh) Fyllsta og
ýtarlegasta ævisaga O’Neills til þessa, fullar
1000 siður, byggð á öllum tiltækum heim-
ildum og viðtölum við aragrúa fólks sem
þekkti skáldið, enda er ævi hans og starfi
gerð skil í smæstu smáatriðum.
Iíeinz Politzer: Franz Kajka, Parable and
Paradox (Cornell University Press, $ 6.50)
Þýzk-amerískur bókmenntafræðingur fjallar
hér um verk Kafka. Bókin er talin hin bezta
sem hingað til hefur verið skrifuð um skáldið.
FÉLAGSBRÉF 55